Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pardew að taka við Southampton Alan Pardew er að taka við knattspyrnustjórn Southampton en þessu greinir BBC frá. Southampton er í C-deild enska boltans og var nálægt því að fara í greiðslustöðvun. 16.7.2009 23:30
Benitez ætlar að gefa Voronin tækifæri á að sanna sig Knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool hefur enn trú á því að framherjinn Andriy Voronin geti staðið sig í ensku úrvalsdeildinni með Liverpool. 16.7.2009 18:45
John Terry fer með Chelsea-liðinu til Bandaríkjanna John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur verið orðaður við Manchester City á síðustu dögum en forráðamenn Chelsea hafa alltaf svarað því með að hann sé ekki til sölu. Terry hefur ekki tjáð sig sjálfur um málið en hann er nú á leiðinni til Bandaríkjanna í keppnisferð með Chelsea. 16.7.2009 15:00
Arsenal á höttunum eftir serbnesku undrabarni Knattspyrnustjórinn Arsene Wenger hjá Arsenal er samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar búinn að bjóða serbneska undrabarninu Veljko Batrovic til æfinga hjá Lundúnafélaginu. 16.7.2009 14:00
Middlesbrough staðfestir sölu Downing til Aston Villa Enska b-deildarfélagið Middlesbrough hefur staðfest að vængmaðurinn Stewart Downing sé á leiðinni til Aston Villa eftir að félögin tvö náðu saman um kaup á enska landsliðsmanninum. 16.7.2009 13:30
Adebayor vill hugsa málið - hefur áhyggjur af viðbrögðunum heima fyrir Emmanuel Adebayor er ekki tilbúinn að ganga frá félagsskiptum sínum frá Arsenal yfir í Manchester City þrátt fyrir að allt sé tilbúið - atvinnuleyfi, kaupverð og samningur. Ástæðan er að Tógómaðurinn hefur áhyggjur af því hvaða áhrif þetta muni hafa á orðspor hans heima fyrir. 16.7.2009 12:00
David Moyes er ekki tilbúinn að selja Lescott David Moyes, stjóri Everton, ætlar að gera sem í sínu valdi stendur til þess að halda Joleon Lescott á Goodison Park. Manchester City hefur mikinn áhuga á enska landsliðsmanninum og það hefur verið talað um 20 milljón punda tilboð í kappann. Það spillir ekki fyrir sögusögnunum að Lescott býr á Manchester-svæðinu. 16.7.2009 11:30
Eiður Smári er til sölu fyrir fimm milljónir punda - á leið til West Ham? Það lítur allt úr fyrir að Barcelona vilji losa sig við Eið Smára Guðjohnsen. Eiður hefur fengið skýr skilaboð frá þjálfaranum að hann eigi ekki mikla möguleika á að fá að spila mikið og nú hefur íþróttastjórinn Txiki Begiristain gefið það út að íslenski landsliðsmaðurinn sé til sölu fyrir fimm milljónir punda eða um rúman milljarð íslenskra króna. 16.7.2009 10:30
Capello segir Beckham verða að spila í Evrópu ætli hann á HM David Beckham hefur nú uppljóstrað það að Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hafi sagt við hann að hann verði að spila í Evrópu ætli hann sér að vera með á HM í Suður-Afríku næsta sumar. 16.7.2009 10:00
Benitez: Þurfum fullkomið tímabil til þess að vinna titilinn Rafael Benitez, stjóri Liverpool, viðurkennir það að Liverpool-liðið þurfi að eiga nánast fullkomið tímabilið ef þeim á að takast að vinna enska meistaratitilinn í fyrsta sinn síðan 1990. Liverpool endaði í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hefur aldrei fengið jafnmörg stig síðan enska úrvalsdeildin var stofnuð 1992. 16.7.2009 09:30
Gylfi skoraði fyrsta mark Reading á undirbúningstímabilinu Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði undirbúningstímabilið vel með Reading í gærkvöldi en hann skoraði fyrsta mark liðsins í 5-1 sigri á Didcot Town. Gylfi er kominn aftur í herbúðir Reading eftir að hafa verið lánaður til Crewe á síðasta tímabili. 16.7.2009 09:15
Ferguson í viðræður við Birmingham Enska úrvalsdeildarfélagið Birmingham er að öllum líkindum að fá miðjumanninn Barry Ferguson frá Glasgow Rangers. Skoska félagið hefur samþykkt tilboð Birmingham og eru viðræður hafnar milli félagsins og Ferguson. 15.7.2009 22:23
Chelsea ítrekar að Terry fari hvergi John Terry, fyrirliði Chelsea, er ekki á leið til Manchester City. Þetta ítrekaði Lundúnafélagið í kvöld en City hefur í sumar gert nokkrar tilraunir til að krækja í leikmanninn. 15.7.2009 22:16
Johnson lék í vinstri bakverði hjá Liverpool í kvöld Liverpool lék sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við St. Gallen í Sviss. Glen Johnson lék sinn fyrsta leik með Liverpool en han nvar vinstri bakvörður. 15.7.2009 22:06
Aganefnd UEFA styttir leikbönn Drogba og Bosingwa Áfrýjun enska úrvalsdeildarfélagssins Chelsea vegna leikbanna Didier Drogba og Jose Bosingwa hefur verið tekin fyrir hjá dómstóli aganefndar knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) en leikmennirnir voru upphaflega dæmdir í fjögurra leikja og þriggja leikja bann eftir tapleik gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð. 15.7.2009 18:30
Adebayor færist nær Manchester City Samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar er framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Arsenal búinn að fá atvinnuleyfi til þess að spila fyrir Manchester City. 15.7.2009 18:00
Vonar að guð leyfi honum að að spila meira hjá Liverpool Nabil El Zhar, er knattspyrnumaður frá Morokkó, sem spilar með enska liðinu Liverpool. Hann fékk ekki mörg tækifæri á síðasta tímabili og hefur nú biðlað til guðs um að hann fá að spila meira næsta vetur. 15.7.2009 16:30
Chelsea búið að semja við miðjumann frá Serbíu Serbinn Nemanja Matic staðfesti í samtali við Dennik Sport í dag að hann hafi samþykkt fjögurra ára samningstilboð Chelsea og að Lundúnafélagið eigi ekki langt í land með að ganga frá kaupum á sér frá MFK Kosice. 15.7.2009 16:30
Sunderland í viðræðum við Portsmouth um kaup á Crouch Knattspyrnustjórinn Steve Bruce hjá Sunderland hefur staðfest að félagið sé í viðræðum við Portsmouth vegna fyrirhugaðra kaupa á framherjanum Peter Crouch en kaupverðið er samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar talið nema um 12 milljónum punda. 15.7.2009 16:00
Allardyce: Ætlum að gefa Vieri tíma til að sanna sig Knattspyrnustjórinn Sam Allardyce hjá Blackburn hefur trú á því að framherjinn gamalreyndi Christian Vieri hafi það sem þurfi fyrir ensku úrvalsdeildina. 15.7.2009 13:00
Hvað var Carlos Tevez með á hausnum ? - myndir Carlos Tevez var í gær kynntur sem nýr leikmaður Manchester City en hann hefur spilað með nágrönnunum í Manchester United undanfarin tvö tímabil. Tevez var nýkominn úr sumarfríi þegar hann mætti á City of Manchester Stadium til að hitta fjölda blaðamanna og ljósmyndara. 15.7.2009 12:30
Mark Hughes skorar á John Terry að koma til Manchester City Mark Hughes, stjóri Manchester City, hefur nú skorað á John Terry, fyrirliða Chelsea, að koma til Manchester-liðsins til að koma ferli sínum aftur á skrið. 15.7.2009 11:30
Bobby Zamora á leiðinni til Hull Fulham hefur samþykkt fimm milljón punda tilboð Hull í framherjann Bobby Zamora. Hull hefur verið að leita sér að sóknarmanni í sumar og ætlar nú að veðja á hinn 28 ára gamla Bobby Zamora. 15.7.2009 11:00
Aston Villa að kaupa Downing á tólf milljónir punda Stewart Downing er á leiðinni til Aston Villa samkvæmt frétt á Sky Sports en Middlesbrough hefur samþykkt að selja landsliðsmanninn sinn á 12 milljónir enskra punda eða um 2,5 milljarða íslenskra króna. 15.7.2009 10:41
Portsmouth nálgast yfirtöku Viðræður milljarðamæringsins Sulaiman Al Fahim um yfirtöku á Portsmouth eru vel á veg komnar og samkomulag að nást. Al Fahim er frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og reyndi að kaupa Manchester City á sínum tíma. 14.7.2009 22:00
Grant trúir því ekki að Terry fari frá Chelsea Þær sögusagnir að Manchester City ætli að krækja í John Terry, varnarmann Chelsea, eru ekki að verða lágværari. Avram Grant stýrði Chelsea 2008 og segir að það myndi koma sér verulega á óvart ef Terry myndi fara. 14.7.2009 19:30
Owen veit að hann var ekki fyrsti kostur Ferguson Margir stuðningsmenn Manchester United eru ekki ánægðir með að félagið hafi ekki keypt neina stórstjörnu til að fylla skarð Cristiano Ronaldo. Knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson biður menn þó um að sýna skilning. 14.7.2009 18:30
Manchester City langt frá því að vera hætt - Beckham næstur Kaupæði Manchester City virðist engan enda ætla að taka og nú eru erlendir netmiðlar farnir að greina frá því að liðið ætli að koma með David Beckham aftur í ensku úrvalsdeildina. 14.7.2009 15:30
Xabi Alonso vill fara frá Liverpool - búinn að tala við Benítez Xabi Alonso hefur tjáð Rafa Benítez, stjóra Liverpool, að hann vilji fara frá Anfield. Real Madrid hefur sýnt spænska miðjumanninum mikinn áhuga og vonast nú til að Xabi Alonso takist að sannfæra Benítez um að selja sig til Madridborgar. 14.7.2009 14:30
West Bromwich ætlar ekki selja fyrirliðann sinn til Fulham West Bromwich Albion hefur hafnað tilboði Fulham í fyrirliða sinn, Jonathan Greening. Greening hefur verið orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni eftir að West Bromwich féll úr deildinni í vor. 14.7.2009 12:30
Manchester City í viðræðum um kaup á Adebayor Manchester City hefur mikinn áhuga á að kaupa Tógó-manninn Emmanuel Adebayor frá Arsenal og BBC segir frá því á síðu sinni að félagið sé komið í viðræður við Arsenal um að kaupa kappann. 14.7.2009 12:00
Kári Árnason heillaði stjóra Plymouth upp úr skónum Kári Árnason er kominn langleiðina með að vinna sér inn samning hjá enska B-deildarliðinu Plymouth Argyle en hann stóð sig mjög vel í 2-0 sigri liðsins á Truro City í æfingaleik í gær. Kári kom inn á í hálfleik og heillaði stjórann upp úr skónum. 14.7.2009 11:30
Tottenham er búið að bjóða Patrick Vieira eins árs samning Enska blaðið Daily Mail birtir frétt í dag um að Tottenham hafi boðið Patrick Vieira, fyrrum fyrirliða Arsenal, eins árs samning. Blaðið segir einnig að ítalska liðið Inter Milan sé tilboðið að láta þennan 33 ára Frakka fara. 14.7.2009 10:00
Steve Bruce er mjög ánægður með nýja leikmanninn sinn Steve Bruce, stjóri Sunderland, er í skýjunum með nýjan leikmann félagsins, Paulo da Silva sem er fyrirliði landsliðs Paragvæ. Það vita kannski fáir hver þessi 29 ára varnarmaður er en hann hefur undanfarin sex ár leikið með Deportivo Toluca frá Mexíkó. 14.7.2009 08:53
Var Tevez búinn að gera leynisamning við City í janúar? Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir Argentínumanninn Carlos Tevez hafa verið búinn að ákveða það fyrir löngu að yfirgefa herbúðir meistaranna í Manchester United. Hinn 25 ára Tevez skrifar undir hjá nágrönnunum í Manchester City þegar hann snýr aftur úr sumarleyfi á morgun. 13.7.2009 23:15
Paulo Da Silva í Sunderland Paulo da Silva, fyrirliði landsliðs Paragvæ, er nýjasti liðsmaður Sunderland. Þessi 29 ára varnarmaður hefur leikið yfir 50 landsleiki og skrifaði undir þriggja ára samning við Sunderland. 13.7.2009 20:30
Tottenham í baráttuna um Naughton Samkvæmt BBC hefur Tottenham blandað sér í baráttuna um Kyle Naughton, varnarmann Sheffield United. Naughton var kominn nálægt því að ganga til liðs við Everton fyrir helgi. 13.7.2009 19:30
Carlos Tevez búinn að gera fimm ára samning við Manchester City Carlos Tevez mun færa sig milli Manchester-liðanna og spila með City-liðinu næstu fimm árin. Tevez mun ganga endanlega frá nýjum samningi þegar hann stendst læknisskoðun á morgun. Þetta kemur fram á heimasíðu Manchester City í kvöld. 13.7.2009 18:58
Mörg ensk lið hafa sýnt hávöxnum Serba áhuga Ensku liðin Arsenal, Chelsea og Manchester City eru öll að kanna möguleika á að kaupa Serbann Neven Subotic frá þýska liðinu Borussia Dortmund. Subotic er aðeins tvítugur og 193 sm á hæð og þykir mjög efnilegur miðvörður. 13.7.2009 18:30
Michael Owen fær sjöuna hans Cristiano Ronaldo Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur ákveðið að Michael Owen fái að klæðast hinni eftirsóttu United-treyju númer sjö þegar hann hefur leik með liðinu í haust. Owen mun því taka við sjöunni af Cristiano Ronaldo sem félagið seldi til Real Madrid í sumar. 13.7.2009 14:47
Ferguson búinn að loka veskinu Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist vera búinn að loka veskinu og fleiri leikmenn verði ekki keyptir til félagsins í sumar. United hefur verslað Michael Owen, Antonio Valencia og Gabriel Obertan. 13.7.2009 14:39
Hartson greinist með krabbamein John Hartson, fyrrum landsliðsmaður Wales, greindist með krabbamein í gær. Hann er með krabbamein í eistum en það hefur einnig borist í heila hans. 13.7.2009 13:39
United ekki boðið í Zlatan Umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic hefur neitað þeim sögusögnum að Manchester United hafi lagt fram tilboð í leikmanninn. Framtíð Zlatans hjá Inter hefur verið mikið í umræðunni en hann gaf það út um helgina að Chelsea væri að sækjast eftir starfskröftum sínum. 13.7.2009 12:41
Adebayor og Tevez nálgast City Manchester City er komið í viðræður við Arsenal um kaup á sóknarmanninum Emmanuel Adebayor. Leikmaðurinn hefur mikið verið orðaður við AC Milan í sumar en Arsene Wenger vill halda honum í sínum röðum. 13.7.2009 12:29
Kompany missir af byrjun tímabilsins Vincent Kompany, leikmaður Manchester City, er meiddur á tá og mun líklega missa af byrjun tímabilsins. Þessi 23 ára Belgi hefur átt við þrálát meiðsli á tá að stríða og líklegt er að hann þurfi að gangast undir aðgerð. 13.7.2009 12:22