Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Drogba undir smásjá knattspyrnusambandsins Aganefnd enska knattspyrnusambandsins er nú að rannsaka hvort Didier Drogba gerðist brotlegur þegar áhorfandi réðist inn á völlinn eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum á dögunum. Dagblaðið Mirror segir myndir af leiknum sýna að Drogba hafi reynt að traðka á árásarmanninum þar sem hann lá bugaður á vellinum í haldi öryggisvarða. Maðurinn reyndi að kýla Frank Lampard og hefur verið settur í lífstíðarbann á White Hart Lane. 21.3.2007 16:15
Englendingar eru úr leik ef þeir tapa Miðjumaðurinn Idan Tal hjá Bolton segir að Englendingar muni ekki komast á EM 2008 ef þeir tapa fyrir Ísraelsmönnum í leik liðanna í Tel Aviv á laugardaginn. Tal er ísraelskur landsliðsmaður og segir það sama uppi á teningnum hjá sínum mönnum. Englendingar og Ísraelar hafa 7 stig líkt og Makedónar í 3.-5. sæti E-riðilsins. 21.3.2007 15:30
Ronaldo: Ég er enginn Galactico Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United vill ekki láta tengja sig við Real Madrid á Spáni og segist ekki vera neinn Galactico - en það er orð sem spænskir nota yfir stórstjörnur liðsins. Ronaldo virðist ætla að einbeita sér algjörlega að því að spila með enska liðinu þrátt fyrir þrálátan orðróm um að hann sé á leið til Spánar. 21.3.2007 14:17
Dean Ashton spilar ekki meira á leiktíðinni Framherjinn Dean Ashton spilar ekki meira með liði West Ham á leiktíðinni vegna ökklabrots sem hann varð fyrir í herbúðum enska landsliðsins í ágúst síðastliðnum. Læknir West Ham hefur nú staðfest að endurhæfingin hafi ekki gengið nógu vel og því verði leikmaðurinn ekki leikfær það sem eftir er af deildarkeppninni. 21.3.2007 14:12
Luke Young kallaður inn í enska landsliðið Varnarmaðurinn Luke Young frá Charlton var í dag kallaður inn í enska landsliðið fyrir leikina gegn Ísraelum og Androrra í undankeppni EM. Young kemur inn í hópinn í stað Micah Richards sem er meiddur. 21.3.2007 14:10
Deildarleik Chelsea og Man Utd frestað Síðari deildarleik Chelsea og Manchester United á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni hefur nú verið frestað til miðvikudagsins 9. maí eftir að bæði lið komust áfram í enska bikarnum. Leikurinn átti að fara fram 14 apríl en nú er ljóst að liðin mætast í næstsíðustu umferð deildarkeppninnar. 20.3.2007 23:07
Benitez vill varaliðin í deildarkeppnina Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur nú enn á ný áréttað að hann vilji sjá varalið stóru liðanna í úrvalsdeildinni skráð til keppni í neðri deildunum á Englandi. Hann segir þetta nauðsynlegt til að byggja upp betra landslið. Þetta fyrirkomulag segir hann hafa dugað vel í Frakklandi, Spáni og í Þýskalandi. 20.3.2007 15:30
Árásarmaðurinn í lífstíðarbann Ljótt atvik átti sér stað eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum í gærkvöld þegar áhorfandi hljóp inn á völlinn og reyndi að kýla Frank Lampard. Hér er myndband af atvikinu. Málið er í rannsókn hjá enska knattspyrnusambandinu, en maðurinn sem réðist inn á völlinn hefur verið dæmdur í lífstíðarbann. Hann er stuðningsmaður Tottenham, en hinn maðurinn sem hljóp inn á völlinn var stuðningsmaður Chelsea. 20.3.2007 14:01
Ronaldo: Ég er of góður Christiano Ronaldo var ekki sáttur við að vera enn á ný sakaður um leikaraskap í gærkvöld þegar hann skoraði sigurmark Manchester United í sigrinum á Middlesbrough í enska bikarnum. Ronaldo fiskaði vítaspyrnu og skoraði úr henni sjálfur - og Boro-menn sökuðu hann um leikaraskap. 20.3.2007 12:07
Áhorfandi reyndi að ráðast á Lampard Enska knattspyrnusambandið er nú að rannsaka atvik sem átti sér stað eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum í gærkvöldi þegar áhorfandi á White Hart Lane réðist að Frank Lampard hjá Chelsea. "Ég hélt að hann myndi ná að kýla mig - ég beygði mig bara," sagði Lampard. 20.3.2007 11:41
Chelsea og Man Utd kláruðu dæmið Chelsea og Manchester United eru komin í undanúrslit enska bikarsins eftir góða sigra í kvöld. Chelsea lagði granna sína í Tottenham 2-1 á útivelli og Manchester United kláraði Middlesbrough 1-0 á Old Trafford. 19.3.2007 22:06
Emre sleppur í bili Miðjumaðurinn Emre hjá Newcastle var í dag hreinsaður af ásökunum um kynþáttaníð á knattspyrnuvellinum eftir að leikmenn Everton kvörtuðu undan honum eftir leik þann 30. desember í fyrra. Ekki þóttu nægar sannanir liggja fyrir svo hægt væri að aðhafast gegn leikmanninum, en hann á annað mál af svipuðum toga yfir höfði sér eftir að viðlíka kvartanir bárust undan honum frá liði Watford. 19.3.2007 20:30
Beckham hefur engar áhyggjur af félögum sínum Fyrrum landsliðsfyrirliðinn David Beckham hjá Real Madrid segist ekki hafa neinar áhyggjur af fyrrum félögum sínum í enska landsliðinu fyrir leikina gegn Ísrael og Andorra í undankeppni EM á næstu dögum. 19.3.2007 19:46
Warnock sendir Southgate tóninn Neil Warnock, knattspyrnustjóri Sheffield United, sendi kollega sínum hjá Middlesbrough tóninn í fjölmiðlum í dag og sagði vinnubrögð Gareth Southgate bera vott um vanvirðingu í garð andstæðinga Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni. 19.3.2007 19:27
David Nugent kallaður inn í enska landsliðið Framherjinn David Nugent hjá Preston var í dag kallaður inn í enska landsliðið og leysir þar af Darren Bent hjá Charlton sem er meiddur. Ef Nugent fær að spila með Englendingum gegn Ísraelum á laugardaginn, yrði það í fyrsta skipti á öldinni sem enskur landsliðsmaður sem leikur utan efstu deildar fær að spreyta sig með liðinu. Nugent á að baki leiki með U-21 árs liði Englendinga. 19.3.2007 18:52
Jermaine Jenas: Við getum lagt Chelsea Miðjumaðurinn Jermaine Jenas hjá Tottenham segir sína menn hafa fulla trú á því að geta slegið Chelsea út úr enska bikarnum í kvöld þegar liðin mætast í aukaleik á White Hart Lane um sæti í undanúrslitum keppninnar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og leikur Man Utd og Middlesbrough á Sýn - en þeir hefjast báðir um klukkan 20. 19.3.2007 17:02
Carragher: United og Chelsea eru betri en við Jamie Carragher leikmaður Liverpool viðurkennir að Manchester United og Chelsea séu talsvert sterkari lið en Liverpool og segir liðið ætla að einbeita sér að því að reyna að ná þriðja sætinu í úrvalsdeildinni. 19.3.2007 16:07
Lampard vill ekki fara frá Chelsea Frank Lampard segist vera orðinn leiður á sífelldum orðrómi um að hann sé að fara frá Chelsea og segist alls ekki vilja fara eitt eða neitt. "Ég hef ekki verið að tala um framtíð mína því nú er í gangi mikilvægur kafli á leiktímabilinu, en ég get fullvissað alla um að ég hef engan áhuga á að fara frá félaginu og hef aldrei hugleitt það," sagði Lampard í samtali við The Sun. 19.3.2007 15:00
Pearce: Ég á skilið að fá skammir Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segist eiga það fyllilega skilið að fá að heyra það frá stuðningsmönnum félagsins vegna lélegs gengi City í vetur. Liðið vann Middlesbrough um helgina eftir fimm töp í röð og var komið óþægilega nálægt fallsvæðinu fyrir vikið. 19.3.2007 14:15
Gareth Barry í enska landsliðið Steve McClaren landsliðsþjálfari hefur kallað bakvörðinn Gareth Barry frá Aston Villa inn í hóp sinn sem mætir Ísrael og Andorra í undankeppni EM í þessum mánuði. Þetta gerði hann vegna meiðsla þeirra Gary Neville og Micah Richards, sem báðir verða væntanlega að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Barry kom aftur inn í landsliðshópinn í febrúar eftir fjögurra ára fjarveru. 19.3.2007 13:32
Gerrard ómeiddur Miðjumaðurinn Steven Gerrard verður í landsliðshóp Englendinga í vikunni þrátt fyrir að hafa haltrað af velli í leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær. Gerrard fékk aðeins spark í sköflunginn og hefur staðfest að hann verði klár í slaginn með Englendingum gegn Ísrael í Tel Aviv í vikunni í undankeppni EM. 19.3.2007 03:03
Ekkert mark komið í bikarnum Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leikjunum tveimur sem standa yfir í enska bikarnum þar sem kominn er hálfleikur. Manchester United hefur verið betri aðilinn gegn Middlesbrough á Old Trafford, en jafnræði hefur verið með Tottenham og Chelsea á White Hart Lane. Sjónvarpsstöðvar sýnar eru með beina útsendingu frá báðum viðureignum sem hófust klukkan 20. 19.3.2007 20:54
Wenger: Tímabilið er búið hjá Walcott Arsene Wenger hefur staðfest að innkoma Theo Walcott hjá Arsenal í tapinu gegn Everton í dag hefði verið sú síðasta á tímabilinu, því leikmaðurinn muni gangast undir aðgerð vegna axlarmeiðsla seinna í vikunni. Hvað leikinn í dag varðar, sagði Wenger úrslit síðustu leikja sýna svart á hvítu að lið sitt skorti reynslu. 18.3.2007 21:40
Everton lagði Arsenal Andy Johnson tryggði Everton mikilvægan 1-0 sigur á Arsenal á Goodison Park í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins þegar komið var fram í uppbótartíma. Everton átti tvö stangarskot í leiknum og er nú komið í sjötta sæti deildarinnar. 18.3.2007 18:12
Pardew: Við erum á fínu skriði Alan Pardew var mjög sáttur við sína menn í dag þegar lið hans Charlton tryggðu sér sjöunda stigið sitt í síðustu þremur leikjum með sigri á Newcastle í dag 2-0. Charlton er enn í bullandi fallbaráttu, en staða liðsins hefur þó lagast til muna eftir góða rispu undanfarið. 18.3.2007 17:29
Benitez: Við verðum að skapa okkur fleiri færi Rafa Benitez, stjóri Liverpool, viðurkenndi að hans menn hefðu ekki spilað vel í markalausu jafntefli gegn Aston Villa á útivelli í dag. Hann sagði sína menn ekki nógu beitta í sóknarleiknum. 18.3.2007 17:15
Mikilvægur sigur hjá Charlton Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton unnu í dag gríðarlega mikilvægan sigur á Newcastle 2-0 í ensku úrvalsdeildinni. Zheng Zie skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark og fiskaði vítaspyrnu fyrir Charlton, sem lagaði stöðu sína í botnbaráttunni. 18.3.2007 15:46
Jafnt hjá Villa og Liverpool Aston Villa og Liverpool skildu jöfn 0-0 á Villa Park í bragðdaufum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. Steven Gerrard var skipt af velli hjá Liverpool og leit út fyrir að eiga við meiðsli að stríða, en Aston Villa hefur ekki náð að vinna Liverpool á heimavelli síðan árið 1998. Liverpool hefur nú hlotið 54 stig í fjórða sæti deildarinnar, einu stigi minna en Arsenal sem á tvo leiki til góða. 18.3.2007 15:42
Jol: Seljum Berbatov ekki fyrir 40 milljónir Martin Jol stjóri Tottenham, segir að félagið myndi aldrei geta hugsað sér að selja framherjann Dimitar Berbatov - ekki einu sinni þó það fengi 30-40 milljón punda tilboð í hann. Jol segir Búlgarann magnaða minna sig á Johan Cuyff. 18.3.2007 15:23
Ben Foster: Ég ætla ekkert að lesa blöðin á morgun Markvörðurinn Ben Foster hjá Watford sagðist eiga von á erfiðri viku með enska landsliðinu eftir að hann lét félaga sinn og markvörð Tottenham Paul Robinson skora hjá sér í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. 17.3.2007 20:23
Paul Robinson: Þetta var heppni Paul Robinson, markvörður Tottenham, viðurkenndi að hann hefði haft heppnina með sér í dag þegar hann skoraði mark af um 80 metra færi gegn Watford. Markið skoraði hann gegn félaga sínum í enska landsliðinu, Ben Foster. 17.3.2007 20:12
Vonarglæta hjá West Ham West Ham á enn veika von um að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann frækinn 2-1 útisigur á Blackburn í lokaleik dagsins. Christopher Samba kom heimamönnum yfir strax í upphafi síðari hálfleiks, en þeir Carlos Tevez (víti) og Bobby Zamora skoruðu tvö mörk á fimm mínútum þegar 15 mínútur lifðu leiks og tryggðu Lundúnaliðinu gríðarlega mikilvæg þrjú stig. 17.3.2007 19:13
Stóri-Sam reiður Sam Allardyce var reiður eftir að hans menn í Bolton steinlágu 4-1 á Old Trafford í dag. Hann sagði sína menn hafa gefið Manchester United þrjú mörk og það eftir föst leikatriði, sem eru venjulega sterkasta hlið liðsins í vörn og sókn. 17.3.2007 18:40
Ferguson: Frábær úrslit Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í dag þegar Manchester United burstaði Bolton 4-1 á Old Trafford og styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 17.3.2007 17:52
Auðvelt hjá Chelsea Chelsea vann í dag auðveldan 3-0 sigur á Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni og minnkaði forskot Man Utd á toppnum niður í sex stig á ný. Paul Robinson, markvörður Tottenham, var maður dagsins eftir að hann skoraði eitt marka sinna manna í 3-1 sigri á Watford. Manchester City vann fyrsta leik sinn í deildinni síðan á nýársdag þegar liðið skellti Middlesbrough á útivelli 2-0. Ekkert mark var skorað í leikjum Reading - Portsmouth og Wigan - Fulham. 17.3.2007 16:54
Paul Robinson markvörður skoraði fyrir Tottenham Enski landsliðsmaðurinn Paul Robinson hjá Tottenham afrekaði það í dag að skora mark fyrir lið sitt í leiknum gegn Watford. Robinson kom Tottenham í 2-0 í leiknum þegar hann tók aukaspyrnu úti á velli sem skoppaði yfir félaga hans í landsliðinu Ben Foster hjá Watford og í netið. Það er því ljóst að aumingja Foster þarf að hlusta á nokkra fimmaurabrandara frá félögum sínum í landsliðshópnum í næstu viku. 17.3.2007 16:32
Bakverðir Englands á meiðslalistanum Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga hefur eflaust grett sig í dag þegar hann fékk þær fréttir að tveir af hægribakvörðum enska landsliðsins meiddust í dag. Gary Neville fór af velli strax í byrjun leiks hjá Manchester United og er meiddur á ökkla. Micah Richards hjá Manchester City fór svo sömu leið í fyrri hálfleik gegn Middlesbrough og því útlit fyrir að hvorugur verði með landsliðinu í næstu viku. 17.3.2007 16:11
Ronaldo fór á kostum í stórsigri United Manchester United stefnir nú hraðbyri á að tryggja sér sigur í ensku úrvalsdeildinni, en í dag vann liðið sannfærandi 4-1 sigur á Bolton á Old Trafford. Ji-Sung Park og Wayne Rooney skoruðu tvö mörk hvor og Christiano Ronaldo lagði upp þrjú þeirra, en Gary Speed minnkaði muninn fyrir Bolton. 17.3.2007 14:40
Chelsea yfir 2-0 Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Andriy Shevchenko og Salomon Kalou skoruðu mörk liðsins. Tottenham hefur yfir 1-0 gegn Watford með marki Jermaine Jenas, en markalaust er í hinum leikjunum þremur sem standa yfir. Fylgist með stöðu mála á Boltavaktinni hér á Vísi. 17.3.2007 15:54
Ívar byrjar fyrir Reading Nú eru að hefjast fimm leikir í ensku úrvalsdeildinni. Ívar Ingimarsson er á sínum stað í byrjunarliði Reading sem tekur á móti Portsmouth, en þar er Brynjar Björn Gunnarsson á bekknum. Heiðar Helguson er á bekknum hjá Fulham sem sækir Wigan heim og þá hafa Chelsea og Tottenham ákveðið að hvíla lykilmenn sína í dag fyrir slaginn í bikarnum á mánudaginn. 17.3.2007 14:55
Mourinho vill halda í Lampard og Terry Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea vill ólmur halda þeim John Terry og Frank Lampard í röðum félagsins þangað til samningur hans rennur út árið 2010, en bresku blöðin hafa mikið ritað um að þeir væru á leið frá Chelsea í sumar. 16.3.2007 18:56
Ferguson og Giggs bestir í febrúar Sir Alex Ferguson og Ryan Giggs hjá Manchester United voru í dag útnefndir knattspyrnustjóri og leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem þeir félagar taka við verðlaununum saman, en þeir urðu einnig fyrir valinu í ágústmánuði. 16.3.2007 18:11
Ekkert óvænt hjá McClaren Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga gaf í dag út hvaða leikmenn yrðu í landsliðshópi hans fyrir leikina gegn Ísrael og Andorra í undankeppni EM. Joey Barton, Gareth Barry og Shaun Wright-Phillips detta út úr hópnum sem tapaði síðast fyrir Spánverjum í æfingaleik. 16.3.2007 16:21
Tímabilið búið hjá Walcott Framherjinn ungi Theo Walcott hjá Arsenal verður líklega ekkert meira með liðinu í vor. Hann þarf að fara í uppskurð á öxl, en hafði verið beðinn um að fresta honum vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Walcott, sem er 18 ára í dag, segir meiðslin hafa versnað undanfarnar vikur og ekki sé hægt að fresta aðgerðinni lengur. 16.3.2007 14:30
Wenger þarf enn að svara til saka Arsene Wenger hefur nú enn á ný verið kallaður inn á teppi hjá enska knattspyrnusambandinu. Wenger hefur verið kærður fyrir ósæmilega framkomu eftir úrslitaleikinn í deildarbikarnum gegn Chelsea á dögunum og hefur frest til 30. mars til að svara fyrir sig. Wenger kallaði aðstoðardómarann í leiknum lygara og sagði agareglur knattspyrnusambandsins óheiðarlegar. 15.3.2007 18:30