Enski boltinn

Deildarleik Chelsea og Man Utd frestað

NordicPhotos/GettyImages

Síðari deildarleik Chelsea og Manchester United á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni hefur nú verið frestað til miðvikudagsins 9. maí eftir að bæði lið komust áfram í enska bikarnum. Leikurinn átti að fara fram 14 apríl en nú er ljóst að liðin mætast í næstsíðustu umferð deildarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×