Fleiri fréttir

Danska lögreglan nær í austurevrópska þjófa

Ný rannsóknardeild hjá dönsku lögreglunni sér til þess að þjófar frá austur Evrópu sem stolið hafa úr dönskum verslunum og fyrirtækjum eru sóttir til saka í Danmörku.

Áfram tilkynnt um nauðganir í Osló

Ekkert lát er á bylgju nauðgana sem hrellt hefur íbúa Osló í Noregi undanfarnar vikur. Þrátt fyrir mikinn viðbúnað lögreglu og um 600 sjálfboðaliða á vakt í miðborg Osló um helgina var samt tilkynnt um tvær nauðganir í borginni.

Fyrsta opna réttarhaldið yfir fjöldamorðingjanum Breivik er í dag

Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar við dómshúsið í Osló en þar mun fjöldamorðinginn Anders Breivik í fyrsta sinn kom fram opinberlega frá því hann framdi fjöldamorðin í miðborg Osló og á Útey sem kostuðu samtals 77 Norðmenn lífið.

Dauðarefsingar á undanhaldi

Hundruð manna eru tekin af lífi í nafni laga og réttar ár hvert um heim allan. Baráttan gegn dauðarefsingum hefur þó skilað sér í fækkun landa sem beita slíkum refsingum. Þorgils Jónsson kynnti sér stöðu mála og baráttuna gegn dauðarefsingum.

Réttarsalurinn opinn fjölmiðlum - Breivik vill útskýra ákvörðun sína

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik segist vilja útskýra fyrir dómara og aðstandendum fórnarlambanna í miðborg Oslóar og Úteyjar, hvers vegna hann framdi voðaverkin í sumar. Þetta segir verjandi hans við norska fjölmiðla í dag en Breivik verður leiddur fyrir héraðsdómara á morgun þar sem tekin verður ákvörðun um hvort að gæsluvarðhald yfir honum verði framlengt.

Hagfræðingur líklega næsti forsætisráðherra Ítalíu

Talið er líklegt að Mario Monti, sextíu og átta ára hagfræðingur og stjórnandi Bocconi háskólans í Mílanó verði næsti forsætisráðherra Ítalíu eftir að Silvio Berlosconi sagði af sér í gær. Stefnt er að því að ný ríkisstjórn takið við stjórnartaumunum í dag.

Stofnandi Bleiku slaufunnar látin

Evelyn Lauder, fyrrum stjórnarformaður snyrtivörufyrirtækisins Estée Lauder, er látin 75 ára að aldri. Lauder er eflaust þekktust fyrir að hafa kynnt bleiku slaufuna fyrst allra en slaufan merki þeirra sem vilja minna baráttunni gegn krabbameini hjá konum.

Réðust inn í sendiráð Sádí-Arabíu og Katars

Æstur múgur réðst inn í sendiráð Sádí-Arabíu og Katar í Damaskus í gærkvöldi eftir að samtök Arabaríkja greiddu atkvæði um að vísa Sýrlandi úr samtökunum fyrir að ganga of hart fram gegn mótmælendum.

Handtóku eiturlyfjaklíkur

Sérsveitir brasilísku lögreglunnar náðu í morgun einu stærsta fátækrahverfi Rio de Janeiro á sitt vald en þar hafa brasilískir eiturlyfjabarónar ráðið lögum og lofum um þriggja áratuga skeið.

Smábarn á launum hjá ríki

Nýfæddu barni í Nígeríu var bætt á launaskrá ríkisins og hefur fengið 150 dollara á mánuði síðustu þrjú árin. Saksóknari hefur greint frá þessu.

Gosið er enn í fullum gangi

Gosið á hafsbotni við Kanaríeyjar er enn í fullum gangi, andstætt því sem kom fram í frétt blaðsins í gær.

Segir Jackson hafa vætt rúmið

Conrad Murray er hvergi af baki dottinn þótt hann hafi verið sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi í vikunni. Í gærkvöldi sýndi bandaríska sjónvarpsstöðin MSNBC heimildarmynd eftir lækninn.

Dómsmálaráðherra hættir

Norðmenn fengu nýjan dómsmálaráðherra í gær þegar Grete Faremo varnarmálaráðherra tók við embætti Knuts Storberget sem sagði af sér. Faremo hefur áður verið dómsmálaráðherra, árin 1992 til 1996.

27 fórust í sprengingu í herstöð

Að minnsta kosti tuttugu og sjö fórust þegar sprengja sprakk í herstöð í grennd við Tehran höfuðborg Írans í morgun. Sprengingin varð þegar verið var að flytja vopn í geymslu í herstöðinni og segir talsmaður hersins að rúður hafi sprungið í íbúðarhúsum í grennd við herstöðina. Mikill eldur kviknaði sem erfitt var að slökkva en samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins heyrðist sprengingin í miðborg Tehran sem er í fjörutíu kílómetra fjarlægð.

Uppreisnarmenn felldir

Tyrkneskar hersveitir felldu í morgun kúrdískan uppreisnarmann sem hafði haldið 18 manns á ferju í gíslingu á Marmarahafi frá því á miðvikudag. Nokkrir farþegar hentu sér fyrir borð þegar skothríð hersveitanna hófst en enginn slasaðist þó alvarlega. Ríkisstjóri Istanbúl sagði í samtali við fréttamenn eftir atvikið að maðurinn væri meðlimur hryðjuverkasamtakanna PPK.

10 ára gömul stúlka eignaðist barn

Tíu ára gömul stúlka eignaðist barn á spítalanum í Puebla í Mexíkó snemma í þessum mánuði. Stúlkan hafði gengið með barnið í 31 viku. Samkvæmt læknum var stúlkan í lífshættu þegar hún kom á spítalann.

Átök í Varsjá

Átök brutust út milli þjóðernissinna og vinstrisinnaðra mótmælenda í Varsjá í dag. Rúmlega 20 voru fluttir á spítala og um 150 voru handteknir.

Modern Warfare 3 slær sölumet

Tölvuleikurinn Call of Duty: Modern Warfare 3 hefur slegið sölumetið sem forveri sinn státaði af. Leikjaserían er sú vinsælasta í heimi.

Pýramídinn mikli í Giza lokaður vegna 11.11.11

Yfirvöld í Egyptalandi lokuðu fyrir aðgang að Pýramídanum mikla í Giza í dag. Sögusagnir voru um að nokkrir hópar hefðu skipulagt helgiathafnir í pýramídanum í tilefni af einkennilegri dagsetningu - 11.11.11.

Innanríkisráðherra Mexíkó lést í þyrluslysi

Innanríkisráðherra Mexíkó, Francisco Blake Mora, lést í þyrluslysi í Mexíkó í dag. Yfirvöld segja að átta manns hafi verið í þyrlunni og að allir hafi látið lífið í slysinu.

Pyntaður af djöfladýrkendum í tvo daga

Tvær ungar konur frá Milwaukee í Bandaríkjunum eru nú í haldi lögreglu sakaðar um að hafa pyntað átján ára gamlan mann og stungið hann rúmlega 300 sinnum. Pilturinn hafði ferðast frá Arizona til Milwaukee til þess að hitta stelpu sem hann hafði kynnst í spjalli á Netinu. Þegar hann bankaði upp á tóku tvær stúlkur á móti honum og yfirbuguðu hann snarlega.

Ítalska öldungadeildin samþykkir niðurskurðartillögur

Ítalska öldungadeildin samþykkti í dag niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar sem ætlað er að koma í veg fyrir að Ítalía þurfi að leita á náðir Evrópusambandsins með lánapakka. Búist er við að tillögurnar verði samþykktar í neðri deild þingsins um helgina en Silvio Berlusconi forsætisráðherra hefur sagst ætla að segja af sér um leið og þær hafa verið samþykktar. Ný stjórn er í burðarliðnum og er talið að fyrrverandi yfirmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Mario Monti, muni leiða hana.

Norðmenn vilja út úr EES

Rúmlega helmingur Norðmanna myndi vilja að Noregur segði skilið við Evrópska efnahagssvæðið, að því tilskildu reyndar að í staðinn fengist viðunandi tvíhliða fríverslunarsamningur við ESB.

Storberget segir af sér í Noregi

Dómsmálaráðherra Noregs, Knut Storberget, hefur sagt af sér. Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs staðfesti þetta í dag á blaðamannafundi. Greta Faremo mun taka við embættinu. Stoltenberg segir það hafa legið fyrir í nokkurn tíma að Storberget myndi segja af sér enda fylgi mikið álag embættinu.

Gammar flæktu málin í háloftunum - magnað myndband

Rússneski svifvængjaflugmaðurinn Paravoffka komst heldur betur í hann krapann á dögunum þegar hann var að svífa um Himalayafjöllinn á Indlandi. Þar sem hann sveif um í rólegheitunum koma tveir stærðarinnar gammar á fullri ferð í átt að honum.

Ekkja Gaddafis lofar gulli og grænum skógum í Nígeríubréfi

Nýtt svokallað Nígeríubréf kemur nú í tölvupósti til fjölda fólks á Norðurlöndunum. Í bréfinu lofar Safia Farkash ekkja Muammar Gaddafi viðtakenda þess gulli og grænum skógum ef hann aðstoðar ekkjuna við að koma auðæfum hennar í lóg.

Afrit af yfirheyrslum kviðdóms yfir Nixon gerðar opinberar

Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna hefur gert opinbert afrit af yfirheyrslu sérstaks kviðdóms yfir Richard Nixon þáverandi forseta Bandaríkjanna nokkru áður en hann hrökklaðist frá völdum vegna Watergate hneykslisins árið 1974.

Yfir þriðjungur Norðmanna vill segja sig úr EES

Þrjátíu og átta prósent Norðmanna vilja að Norðmenn segi sig úr Evrópska efnahagssvæðinu, en það er bandalag Norðmanna, Íslendinga og Lichtenstein um viðskiptasamninga við Evrópusambandið, og varðar einkum tollamál landanna þriggja við Bandalagið.

Segist ekkert hafa vitað

James Murdoch, einn helsti stjórnandi fjölmiðlaveldis föður síns, Ruperts Murdoch, ítrekaði í gær við yfirheyrslur hjá breskri þingnefnd að hann hefði ekkert vitað um glæpsamlegt atferli starfsfólks á fjölmiðlum fyrirtækisins.

Papademos leiðir Grikki

„Ég er ekki stjórnmálamaður en ég hef varið megninu af starfsævi minni í að hrinda í framkvæmd efnahagsstefnu stjórnvalda bæði í Grikklandi og Evrópu,“ sagði Lúkas Papademos, sem í dag tekur við embætti forsætisráðherra Grikklands af Georg Papandreú.

Íbúar gagnrýna stjórnvöld

Meðal þeirra húsa sem hrundu í jarðskjálfta í austanverðu Tyrklandi í gær voru tvö hótel sem skemmdust verulega í enn harðari jarðskjálfta á sömu slóðum fyrir rúmlega hálfum mánuði.

Skoða bann að fyrirmynd Íslands

Ríkisstjórn Noregs vill að aðstæður á nektardansstöðum í landinu verði rannsakaðar. Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í nýrri aðgerðaráætlun í jafnréttismálum sem kynnt var í gær.

Svipti sig lífi eftir að enginn hlustaði

18 ára menntaskólanemi svipti sig lífi eftir að hafa birt 144 skilaboð á samskiptasíðunni Twitter. Í skilaboðunum lýsti Ashley Billasano meintri misnoktun og hvernig hún hafði talað fyrir daufum eyrum þegar hún bað um hjálp frá yfirvöldum.

Höfðu afskipti af fjöldamorðingja þegar hann var fjögurra ára

Lögregla og barnavernd í Noregi höfðu fyrst afskipti af Anders Behring Breivik, fjöldamorðingjanum í Útey, þegar hann var fjögurra ára gamall og aftur þegar hann var fimmtán ára gamall. Þetta kom fram í yfirheyrslum yfir honum hjá lögreglu, eftir því sem norska Dagbladet greinir frá. Litlar upplýsingar eru um atvikið þegar hann var fjögurra ára aðrar en þær að barnavernd vildi að hann yrði tekinn af heimili sínu. Málið týndist í kerfinu og hann var aldrei tekinn af heimilinu.

Skuldum vafinn kvennabósi

Conrad Murray var á mánudag fundinn sekur um að hafa valdið dauða poppgoðsins Michaels Jackson með gáleysi sínu af kviðdómi dómstólsins í Los Angeles. Hann á yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi. Murray er ekki allur sem hann er séður þótt fæstir efist um læknishæfileika hans.

Jarðskjálfti leggur hótel í rúst í Tyrklandi

Björgunarsveitir leita nú að tugum manna sem grafnir eru undir húsrústum eftir öflugann jarðskjálfta í austurhluta Tyrklands í gærkvöldi. Að minnsta kosti sjö manns fórust í skjálftanum sem mældist 5,6 á Richter.

Sjá næstu 50 fréttir