Erlent

Vangaveltur um að Kate Middleton sé ólétt

Töluverðar vangaveltur hafa verið í alþjóðlegum fjölmiðlum undanfarið um að Kate Middleton eiginkona Vilhjálms Bretaprins sé ólétt.

Þessar vangaveltur hófust í kjölfar heimsóknar þeirra hjóna til Unicef í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Með þeim í för voru Friðrik krónprins Dana og Mary kona hans.

Hjá Unicef smakkaði hópurinn á þeim mat sem stofnunin sendir til nauðstaddra, þar á meðal sérstöku næringarríku jarðhnetupasta. Þegar kom að pastanu sendi Kate manni sínum augnskot og neitaði síðan að borða pastað.

Það er alþekkt að óléttum konum er ráðlagt að borða ekki jarðhnetur vegna hættu á að hið ófædda barn hafi ofnæmi fyrir þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×