Erlent

Líklegt að Mario Monti taki við af Berlusconi

Talið er að Mario Monti verði forsætisráðherra Ítalíu þegar Silvio Berlusconi segir af sér á næstu dögum.

Monti sem er 68 ára gamall hagfræðingur og rektor Bocconi háskólans í Mílanó var útnefndur þingmaður til lífstíðar í gærdag af forseta landsins. Þetta er talin sterk vísbending um að hann verði forsætisráðherra í þeirra starfsstjórn sem verið er að mynda.

Monti þykir hafinn yfir flokkapólitík á Ítalíu og nýtur mikillar virðingar þar í landi sem fræðimaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×