Fleiri fréttir

Háttsettur Hamas-liði gripinn með mikla fjármuni

Háttsettur fulltrúi í Hamas-samtökunum, sem stýra heimastjórn Palestínumanna, var gripinn við landamærin inn í Rafah-borg á Gaza-ströndinni frá Egyptalandi, með um sex hundruð þúsund evrur í beinhörðum peningum á sér.

Ætlar að vera áfram við fjallsrætur Merapi

Á meðan mörg þúsund íbúar á indónesísku eyjunni Jövu flýja eldfjallið Merapi sem nú er að gjósa er einn áttræður maður sannfærður um að það sé óhætt að halda áfram til við fjallræturnar þar sem hann á heima.

Guantanamofangelsi og leynifangelsum beri að loka

Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum segir Guantanamo-fangelsið á Kúbu brjóta gegn alþjóðalögum og því beri að loka. Einnig beri Bandaríkjastjórn að loka leynifangelsum annars staðar í heiminum.

Fujimori látinn laus úr fangelsi

Hæstiréttur í Chile lét í gær Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, lausan úr fangelsi gegn tryggingu. Hann á yfir höfði sér ákærur um spillingu og mannréttindabrot í heimalandinu og gera stjórnvöld þar þá kröfu að hann verði framseldur. Dómstólar í Chile eiga eftir að taka afstöðu til þess.

Landamæragirðing gagnrýnd

Sú ákvörðun Bandaríkjaþings, að reisa 600 km langa girðingu á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda til Bandaríkjanna, var gagnrýnd harðlega á fundi utanríkisráðherra landa í Mið-Ameríku í gærkvöld.

23 létust í Kína af völdum fellibylsins

Að minnsta kosti tuttugu og þrír létust þegar fellibylurinn Chanchu gekk yfir suðurhluta Kína í gær. Talið er að tala látinna eigi þó eftir að hækka nokkuð því fjölmargra er saknað, þar á meðal tæplega þrjátíu víetnamskra sjómanna sem voru á veiðum á kínverskum vötnum.

Skotbardagar í Gaza-borg

Skotbardagar brutust út í Gaza-borg í nótt á milli nýskipaðrar öryggissveitar Hamas-samtaka Palestínumanna og lögreglumanna hliðhollir Fatah-hreyfingunni.

Stúdentaóeirðir í Chile

Háskólastúdentar í Chile mótmæltu í dag háum fargjöldum í almenningsfarartæki í höfuðborginni Santiago. Lögregla sprautaði vatni til að dreifa mótmælendunum þegar sló í brýnu milli unga fólksins og lögreglumanna. Stúdentarnir hópuðust þó fljótt saman aftur og veittust aftur að lögreglu.

Misjöfn viðbrögð við Da Vinci víða um heim

Bækur voru brenndar í Moskvu í dag þegar kvikmyndin um um Da Vinci lykilinn var frumsýnd þar. Biskuparáðstefna kaþólsku kirkjunnar í Indlandi lagðist hins vegar gegn því að myndin yrði bönnuð.

Bausch & Lomb innkallar linsuvökvann

Framleiðendur Renu MoistureLoc, mest selda linsuvökva á Íslandi, og í heiminum öllum, hafa ákveðið að stöðva dreifingu hans og innkalla útistandandi birgðir. Óttast er að hann geti undir ákveðnum kringumstæðum valdið hornhimnubólgu sem aftur getur leitt til blindu.

Fuglaflensa greinist í alifuglum í Danmörku

Alifuglar hafa greinst með H5 afbrigði fuglaflensu í Danmörku. Sjúkdómurinn greindist í fuglum á búi í Hudslev rétt hjá Kerteminde á Fjóni. Fuglar á búinu hafa verið aflífaðir og lögregla er að setja upp eftirlit á tíu kílómetra svæði í kringum búið.

Völd konungs skert

Völd Gyanendra konungs í Nepal skerðast töluvert samkvæmt nýrri ályktun sem þing landsins samþykkti í morgun.

Nýrri öryggissveit mótmælt

Tugir vopnaðra Fatah-liða hröktu vara-forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna á flótta úr borg á Vesturbakkanum í morgun, þar sem hann var kominn til fundar. Spenna milli stuðningsmanna Hamas og Fatah á Vesturbakkanum hefur magnast síðustu daga, sér í lagi eftir að heimastjórn Hamas stofnaði eigin öryggissveit í gær.

Átta létust í Kína af völdum fellibyls

Átta létu lífið, þar af tvö börn, þegar fellibylurinn Chanchu skall á suðurströnd Kína í morgun. Bylurinn hafði áður orðið þrjátíu og sjö að bana á Filippseyjum. Hátt í milljón manns hefur þurft að yfirgefa heimili sín í Suður-Kína vegna bylsins.

Kona deyr úr fuglaflensu í Egyptalandi

Sjötíu og fimm ára gömul kona í Egyptalandi lést úr fuglaflensu í morgun. Talsmaður Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar staðfesti þetta. Þar með hafa sex orðið flensunni að bráð þar í landi. Konan bjó í suðurhluta landsins og hafði að sögn komist í tæri við sýkta fugla.

Röð sprenginga í Bagdad

Ekkert lát virðist ætla að verða á ofbeldisverkum og sprengjuárásum í Írak. Sjö féllu og fjölmargir særðust í röð sprenginga í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þá voru átta skotnir til bana í borginni á sama tíma.

Eiturlyfjabarón handtekinn í Brasilíu

Lögregla í Bandaríkjunum, Brasilíu og Kólumbíu hafa að líkindum greitt einum umfangsmesta eiturlyfjahring í heimi náðarhöggið með aðgerðum sínum fyrr í vikunni. Þá var leiðtogi hans og einn eftirlýstasti eiturlyfjabarón í heimi handtekinn.

Mótmælt við sendiráð Finna og Svía

Sendiráð Finna og Svía í Buenos Aires í Argentínu urðu fyrir barðinu á æfum mótmælendum sem segja áætlanir um byggingu trjákvoðuverksmiðja í nágrannaríkinu Úrúgvæ skaða landbúnað og ferðamannaiðnað í Argentínu. Finnskt og sænskt fyrirtæki taka þátt í framkvæmdunum.

Flugmóðurskipi sökkt á Mexíkóflóa

Bandaríska herskipinu Oriskany var sökkt í Mexíkóflóa í dag. Ekki voru það þó óvinasveitir sem grönduðu skipinu, heldur bandaríski sjóherinn sjálfur, með því að sprengja tæp 230 kíló af sprengiefni um borð í skipinu til að sökkva því.

Beðið um frið í Sómalíu

Hundruð Sómala söfnuðust saman í íþróttahöllinni í Mogadishu í dag til að krefjast friðar eftir vikulanga bardaga sem hafa banað yfir 140 manns. Ofbeldið er eitt það versta í áratug í Sómalíu. Baráttan hefur staðið milli vopnaðra hópa múslima og hópa borgara sem ekki eru tengdir trúarhópum.

Prodi kynnir ríkisstjórn sína

Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, kynnti ríkisstjórn sína í dag. Hennar bíður erfitt verkefni við að koma efnahag landsins á réttan kjöl.

Mills og McCartney skilin

Bítillinn Paul McCartney og Heather Mills, eiginkona hans, hafa ákveðið að skilja að borði og sæng eftir fjögurra ára hjónaband. Þau segja ágang fjölmiðla hafa gert sér ókleift að lifa eðlilegu lífi og því hafi þau ákveðið að fara hvort sína leið.

Ofsatrúarmaður skaut dómara

Íslamskur öfgamaður réðst inn í réttarsal í Ankara í Tyrklandi í morgun og skaut á dómara. Hann er sagður hafa viljað hefna fyrir dóm yfir kennurum sem bannað var að bera íslamska höfuðklúta.

Fimm dómarar særðust í skotárás

Fimm dómarar við hæstarétt í Ankara í Tyrklandi særðust, þar af tveir lífshættulega þegar vopnaður maður hóf skothríð inn í dómshúsinu. Talið er að árásarmaðurinn sé lögfræðingur og er hann nú í haldi lögreglu sem segir óvíst hver ástæða árásarinnar var.

McCartney og Mills skilin

Bítillinn fyrrverandi, Paul McCartney, og kona hans, Heather Mills, eru að skilja að borði og sæng eftir 4 ára hjónaband.

Ný stjórn á Ítalíu

Romano Prodi, leiðtogi ólívubandalags mið- og vinstriflokka á Ítalíu, hefur myndað nýja ríkisstjórn sem tekur við völdum síðar í dag.

Gíslataka í Grikklandi

Engan sakaði þegar vopnaður maður tók tvo í gíslingu í þýskum skóla í borginni Þessaloníku í Grikklandi í gær.

Líklegt að Íranar hafni tilboði ESB

Ekki virðist líklegt að stjórnvöld í Íran samþykki tilboð Evrópusambandsins um lausn á kjarnorkudeilu Írana við vesturveldin. Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagði í morgun að sambandið léti eins og það væri að semja við fjögurra ára barn og lofaði því sælgæti í staðinn fyrir gull.

Gömul sprengja í Mersey

Töluverðar tafir urðu á ferjuferðum á ánni Mersey í Liverpool í Bretlandi í gær þegar 450 kílóa sprengja frá Síðari heimsstyrjöldinni fannst þar á floti.

Vantrauststillaga felld

Vantrauststillaga á hendur Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, var felld í neðri deild franska þingsins í gær. Tillagan var lögð fram af sósíalistum vegna ásakana á hendur ráðherranum um óheiðarleg vinnubrögð í kosningabaráttu.

Blóðug mótmæli í Kólumbíu

Að minnsta kosti einn lést í fjölmennum mótmælum sem brutust út í þorpinu Piendamo í Kólumbíu í gær. Að sögn forvígismanna mótmælanna voru þau tilkomin vegna nýs fríverslunarsamnings kólumbískra yfirvalda við Bandaríkin og væntanlegt endurkjör forseta Kólumbíu, Alvaro Uribe, í kosningum síðar í mánuðinum.

Fimm látnir af völdum fuglaflensu

Sex tilfelli fuglaflensu hafa greinst í mönnum á Indónesíu síðustu daga. Fimm þeirra sem greindust eru nú látnir. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin staðfesti þetta í morgun.

Fellibylur stefnir á Hong Kong

Fellibylurinn Chanchu stefnir nú hraðbyri að Hong Kong og suðurströnd Kína. Ekki er þó víst að hann skelli á Hong Kong og jafnvel líkur á að hann fari framhjá síðar í dag. Víst er þó talið að hann valdi usla í Guangdong-héraði í fyrramálið.

Viðbrögð við flóðbylgju æfð

Rúmlega 30 ríki við Kyrrahaf tóku þátt í æfingu sem fram fór í morgun á viðbrögðum við hugsanlegum jarðskjálfta og flóðbylgju í heimshlutanum. Að sögn stjórnenda æfingarinnar tókst hún vel.

Vantrausttillaga á de Villepin felld

Vantrauststillaga á hendur Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands var felld í neðri deild franska þingsins í dag. Tillagan var lögð fram af sósíalistum vegna ásakana á hendur Villepin um óheiðarleg vinnubrögð í kosningabaráttu. Ekki var mikil hætta á að vantrauststillagan yrði samþykkt, enda hefur ríkisstjórn Villepins rúma meirihluta í neðri deildinni: 364 af 577 þingsætum.

Áfengisverslun sprengd í Bagdad

Áfengisverslun var sprengd í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengju var komið fyrir við dyr verslunarinnar og var þetta í þriðja sinn sem hún var skotmark öfgamanna.

Dæmt vegna ódæðana í Beslan

Allt stefnir í að eini eftirlifandi maðurinn sem átti aðild að hryðjuverkaárásinni á barnaskóla í Beslan fyrir um einu og hálfu ári verði sakfelldur. Hryðjuverkamenn hertóku skólann og héldu honum í þrjá daga, þar til hersveitir réðust á skólann og frelsuðu gíslana. 330 féllu í skotbardaganum sem fylgdi, meirihluti þeirra börn.

Fangauppreisn lokið

Uppreisn fanga í 70 fangelsum í Sao Paulo í Brasilíu er lokið og hafa um 200 gíslar verið látnir lausir. Minnst 80 hafa látist í öldu ofbeldis á svæðinu sem hófst á föstudaginn.

Álag á krókódílaveiðimenn mikið

Eftir þrjár bannvænar árásir krókódíla í síðastliðinni viku í Flórída í Bandaríkjunum hefur álagið hjá krókódílaveiðimönnum aldrei verið meira. Fjöldi símtala sem þeir fá hefur meira en þrefaldast og eru áhyggjur Flórídabúa miklar. Árásir krókódíla á menn eru fátíðar.

Hamas viðurkenni ekki Ísraelsríki

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, hafnaði í gær kröfum alþjóðasamfélagsins um að Hamas-stjórn hans viðurkenni Ísraelsríki og afneitaði ofbeldismönnum. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti um tíu þúsund stuðningsmönnnum sínum í borginni Rafah á Gaza-ströndinni í gær.

Enn hætta við Merapi

Gas og grjót halda áfram að falla niður hliðar eldfjallsins Merapi á indónesísku eyjunni Jövu. Eitthvað virðist þó hafa hægst en eldfjallasérfræðingar vara þó við að gosið geti færst í aukana fljótlega þó það virðist í rénun nú.

Sjá næstu 50 fréttir