Átta létust í Kína af völdum fellibyls 18. maí 2006 12:10 KONA Á HJÓLI Í SJANGHAÍ Geysileg rigning hefur verið í Suður-Kína í dag vegna fellibylsins Chanchu. MYND/AP
Átta létu lífið, þar af tvö börn, þegar fellibylurinn Chanchu skall á suðurströnd Kína í morgun. Bylurinn hafði áður orðið þrjátíu og sjö að bana á Filippseyjum. Hátt í milljón manns hefur þurft að yfirgefa heimili sín í Suður-Kína vegna bylsins. Bylurinn hefur farið vaxandi undan ströndum landsins undanfarna daga en hann er sá öflugasti sem hefur geisað á Suður-Kínahafi á þessum árstíma. Snemma í morgun þokaðist hann að strönd Suður-Kína á um tuttugu og fimm kílómetra hraða en vindhraði í miðju stormsins er tæplega hundrað og sextíu kílómetrar á klukkustund. Hátt í tvö hundruð heimili eru nú á floti og fór rafmagn af stóru svæði í nótt. Nokkur flugfélög hafa fellt niður fyrirhugað flug til og frá svæðinu og tugþúsundir skipa hafa verið kölluð til hafnar. Átta hafa látist í veðurhamnum, þar á meðal tvö börn sem grófust undir rústum húss sem hrundi ofan á þau í Guangdong-kantónu í morgun. Þar með hefur bylurinn orðið fjörutíu og fimm að bana en þrjátíu og sjö manns létust þegar fellibylurinn gekk yfir Filippseyjar fyrr í vikunni. Auk þess er tuttugu og sjö kínveskra sjómanna saknað. Þeir voru um borð í þremur bátum sem sukku í veðurofsanum. Þrátt fyrir hörmungar morgunsins er bylurinn sagður í rénun og er talið að hann verið genginn yfir svæðið og út á haf snemma í fyrramálið.
Erlent Fréttir Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent