Fleiri fréttir

27 látnir í rútuslysi í Indlandi

Að minnst kosti 27 létust og 14 slösuðust lavarlega þegar rúta fór út af vegi og endaði ofan í gili í Kashmir-héraði á Indlandi í dag. Samkvæmt lögreglu á svæðinu virðist sem bílstjóri rútunnar hafi misst stjórn á henni í beygju, en vegir á svæðinu eru mjög hálir vegna mikilla rigninga að undanförnu.

Þarf að fá ríkisborgararétt

Lögfræðingar Bobbys Fischers segja að það sé grundvallaratriði að íslensk stjórnvöld veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Ríkisborgararéttur myndi marka tímamót og koma máli hans loks á hreyfingu.

Páfi blessaði fólk í Róm

Jóhannes Páll páfi kom út í glugga á herbergi sínu á Gemelli-spítalanum í Róm nú fyrir stuttu, veifaði til mannfjöldans og blessaði hann. Páfi líktist sjálfum sér, var hrumur og veikburða og líklega engu meira veikburða en hann hefur verið undanfarin ár. Aðstoðarmaður hans las upp yfirlýsingu frá páfa þar sem hann þakkaði heimsbyggðinni fyrir sýnda umhyggjusemi í veikindum sínum.

Auðkýfingur áfram forsætisráðherra

Stjórnarflokkurinn í Taílandi með geysivinsælan en umdeildan auðkýfing í fararbroddi vann stórsigur í þingkosningum sem þar voru haldnar í dag.

Stjórnin enn sterk í Danmörku

Stjórn Anders Foghs Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur, heldur velli í kosningunum í landinu samkvæmt skoðanakönnun Gallups sem birt var Berlingske Tidende í dag. Flokkur Rasmussens, Venstre, og samstarfsflokkarnir fengju 94 af 179 sætum á danska þinginu ef kosið yrði í dag.

Íranar hóta að svara fyrir sig

Íranar munu svara fyrir sig og reyna að flýta kjarorkuáætlun sinni ef Bandaríkjamenn eða Ísraelar gera árás á staði í Íran þar sem unnið er að kjarnorkumálum. Þetta sagði yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans í dag og bætti við að Vesturlönd gætu ekki komið í veg fyrir að Íranar héldu áfram framleiðslu kjarnorkueldsneytis.

Reyna að bjarga regnskógunum

Leiðtogar ríkja í Mið-Afríku undirrituðu um helgina samkomulag um að vinna að varðveislu annars stærsta regnskógar jarðar sem teygir sig yfir 200 milljónir hektara og nær inn í sex ríki. Á ráðstefnu um helgina hétu leiðtogarnir því að ráðast gegn veiðiþjófnaði og ólöglegu og óábyrgu skógarhöggi til þess að reyna að varðveita fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf á svæðinu.

Mótmæli hafa ekki áhrif á áform

Stjórnvöld í Frakklandi hyggjast ekki hverfa frá áformum um að lengja vinnuvikuna þar í landi þrátt fyrir fjölmenn mótmæli í gær. Þetta segir fjármálaráðherra Frakklands, en áformin eru liður í umbótum sem m.a. snerta vinnulöggjöf, lífeyri og skóla.

Vill að leiðtogar semji sjálfir

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar ekki að sitja leiðtogafund Sharons og Abbas á þriðjudag þótt hún sé nú í heimsókn fyrir botni Miðjarðarhafs. Rice segist kjósa að leiðtogarnir semji sín á milli sjálfir án þess að erlendir leiðtogar eða embættismenn sinni hlutverki sáttasemjara.

Lykketoft ekki slegið í gegn

<b><font face="Helv" color="#008080"> Séra Þórir Jökull Þorsteinsson í Danmörku segir að kosningabaráttan standi milli Jafnaðarflokksins undir forystu Mogens Lykketoft og Venstre með Anders Fogh Rasmussen í broddi fylkingar. Lykketoft virðist ekki hafa slegið í gegn meðal kjósenda eða ögra veldi Venstre. </font></b>

Eldgos í 22 ár

Hraun úr eldfjallinu Kilauea á Havaí rennur nú í sjóinn á tveimur nýjum stöðum í gosi sem hefur staðið yfir í 22 ár. Eldgosið er í eldfjallaþjóðgarði Havaí og ferðalangar sem þangað koma verða ekki sviknir. Glóandi hraunið rennur í sjóinn sem hvæsir við að fá svo óvæntan gest.

Íranir gagnrýna Vesturlönd

Íranar skora á Evrópusambandið að taka viðræður um kjarnorkuáætlun Írana alvarlegar. Fulltrúi stjórnarinnar sagði á blaðamannafundi að Íranar hefðu slegið á frest áætlunum sínum um að auðga úran, en það er forsenda framleiðslu kjarnorkuvopna.

Ætluðu að sprengja ísbíla

Embættismenn í Kúvæt staðfestu í gær að þeir hefðu handtekið grunaða hryðjuverkamenn sem lagt hefðu á ráðin um árásir á bandaríska hermenn.

Stofna nefnd um lausn fanga

Forystumenn í Palestínu og Ísrael samþykktu á laugardag að stofna sameiginlega nefnd sem fjalla á um lausn pólitískra fanga sem Ísrealar hafa í haldi. Þetta kemur í kjölfar þess að Ísraelar létu níu hundruð fanga lausa í síðustu viku.

Föst skot ganga á milli þjóðanna

Kalt stríð er hafið á milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran og harkalegar yfirlýsingar ganga á víxl. Írönsk yfirvöld segjast munu bregðast af fullri hörku við bandarískri árás á íranskt kjarnorkuver. Slík árás hefði aðeins þær afleiðingar í för með sér að Íranar tvíeflist í kjarnorkuframleiðslu sinni.

Þar sem tíminn stóð í stað

Áform eru um að grafa upp hús í Vestmannaeyjum sem urðu undir vikri í eldgosinu 1973 og kallast verkefnið Pompeii norðursins. Nafn sitt dregur verkefnið af rómverska bænum Pompeii en hann eyddist í eldgosi árið 79 e. Kr.

Hafnar hugmyndum Breta

Bandaríkjastjórn hefur hafnað tillögu Breta um hvernig sé best að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti tillögur sínar á fundi fjármálaráðherra sjö helstu iðnríkja heims í gær en þær felast í því að kom á fót nokkurs konar Marshall-áætlun fyrir fátækustu lönd heims.

Páfi á hægum batavegi

Jóhannes Páll páfi annar er á hægum batavegi og nærist eðlilega, eftir því sem talsmaður Vatíkansins segir. Búist er við að páfi muni messa á morgun eins og aðra sunnudaga en að ávarpinu verði sjónvarpað beint frá sjúkrabeðinum. Páfi sem er 84 ára fékk slæma flensu um síðustu helgi og hefur legið á sjúkrahúsi síðan.

Bið á heimför til Súdans

Nokkur bið gæti orðið á því að flóttmenn frá Suður-Súdan geti snúið til síns heima, eftir því sem fram kemur hjá fulltrúa Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda. Ástæðan er sögð sú að innviðir samfélagsins eru í rúst auk þess sem stór svæði eru undirlögð af jarðsprengjum.

Flak flugvélar fundið í Afganistan

Enginn komst lífs af í flugslysinu sem varð í Afganistan fyrir tæpum tveimur sólarhringum. Flak vélarinnar fannst fyrst í morgun skammt frá þorpi sem liggur aðeins 35 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Kabúl.

Upplýsingalög notuð í kosningum

Stjórnmálaflokkar Bretlands saka nú hver annan um að notfæra sér bresku upplýsingalögin til að grafa upp persónuleg smáatriði, skít og áróður gegn einstaka frambjóðendum til að nota í kosningabaráttu sinni. Þingkosningar verða haldnar í Bretlandi í maí og flokkarnir eru þegar komnir á fullt í baráttuna.

Sjö hermenn felldir í Írak

Sjö írakskir hermenn liggja í valnum eftir árásir uppreisnarmanna í morgun. Árásum hefur heldur fækkað eftir kosningarnar um síðustu helgi, sem uppreisnarmönnum mistókst að eyðileggja, en þó hafa að minnsta kosti 20 írakskir hermenn fallið síðustu vikuna.

Neitar að ráðast gegn fátækt

Bandaríkjastjórn neitar að taka þátt í því að ráða að niðurlögum fátæktar og lækka skuldir þriðja heims ríkja samkvæmt breskri tillögu. Bandaríkjamenn segjast vilja fara sínar eigin leiðir í þessum efnum.

Taldir tengjast árásum í Madríd

Dómari á Spáni úrskurðaði í dag að hálfbræður af marokkóskum uppruna sem handteknir voru á þriðjudag skuli sæta gæsluvarðhaldi þar sem talið er að þeir hafi starfað með þeim sem stóðu á bak við hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars í fyrra.

Vill meira lýðræði í Rússlandi

Conoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í dag til meira lýðræðis í Rússlandi á blaðamannafundi í Varsjá í Póllandi. Rice er nú á ferðalagi um Evrópu og mun í dag hitta rússneskan starfsbróður sinn, Sergei Lavrov, í Ankara í Tyrklandi. Á blaðamannafundinum í Varsjá sagði Rice að mikilvægt væri fyrir Rússa efla vægi laga og óháðra dómstóla ásamt því að leyfa frjálsum og óháðum fjölmiðlum að starfa í landinu.

Unnið að afskrift skulda

Fjármálaráðherrar sjö helstu iðnríkja heims samþykktu á ráðstefnu sinni í Lundúnum í dag að vinna frekar að því að afskrifa opinberar skuldir fátækustu ríkja heims auk þess sem stefnt er að því að styrkja efnahag fátækra ríkja og verslun og viðskipti.

Mótmæla lengri vinnuviku

Talið er að rúmlega fimmtíu þúsund Frakkar hafi gengið um götur borga landsins í dag til þess að mótmæla áætlunum stjórnvalda um að lengja vinnuvikuna í Frakklandi. Samkvæmt lögum í Frakklandi er vinnuvikan nú 35 klukkustundir en Jean Pierre Raffarin, forsætisráðherra landsins, hefur lýst því yfir að lengja þurfi vinnuvikuna til þess að gera Frakkland samkeppnishæfara og til að draga úr atvinnuleysi sem er nú um 10 prósent.

Vilja stól forsætisráðherra

„Sjítar vilja forsætisráðherraembættið í nýrri stjórn og munu ekki láta það af hendi,“ sagði Hamed Al-Bayati, varautanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, við Reuters-fréttastofuna í dag. Al-Bayati tilheyrir bandalagi sjíta sem hefur fengið um tvo þriðju hluta atkvæða í kosningunum í Írak nú þegar 35 prósent hafa verið talin.

Páfi flytur blessun á morgun

Jóhannes Páll páfi annar er ekki orðinn nógu hraustur til þess að messa á morgun en hann mun í staðinn fara með blessun sem sjónvarpað verður frá sjúkrabeði hans. Þetta segja talsmenn Vatíkansins og bæta við að páfi muni einnig missa af guðsþjónustu í basilíku heilags Péturs á öskudag en henni hefur hann aldrei sleppt áður á þeim 26 árum sem hann hefur setið á valdastóli.

Reynt að semja um skuldalækkun

Mikilvæg tímamót eða enn ein marklaus viljayfirlýsingin? Ekki eru allir á einu máli um niðurstöðu fjármálaráðherra ríkustu þjóða heims sem reyndu í dag, með litlum árangri, að komast að samkomulagi um það hvernig bjarga ætti Afríku úr fátæktargildru og lækka skuldir þriðja heims ríkja.

Spillingu mætt af hörku

„Spillingu verður mætt með hörku,“ segir Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og heitir því að sækja yfirmenn í olíusöluhneykslinu til saka. Annan hefur sjálfur verið sakaður um að tengjast málinu og enn eru ekki öll kurl komin til grafar.

Lítil hafmeyja í Perú

Hún hefur fengið viðurnefnið litla hafmeyjan og hefur heillað landa sína í Perú upp úr skónum. Þessi litla stúlka er í þann mund að leggjast undir skurðhnífinn í aðgerð sem mun breyta lífi hennar.

Hættuástandi aflýst í Svíþjóð

Íbúum í Helsingjaborg í Suður-Svíþjóð hefur verið leyft að fara út aftur en þeim var skipað að vera innandyra eftir að tíu þúsund tonn af brennisteinssýru láku úr tanki verksmiðju rétt utan við bæinn í morgun. Að sögn hins sænska Aftonbladet voru sex starfsmenn verksmiðjunnar fluttir á sjúkrahús en enginn þeirra er talinn í lífshættu. Ástæður lekans eru ókunnar.

Bendir til yfirburðasigurs sjíta

Bráðabirgðaniðurstöður kosninganna í Írak benda til þess að nærri þrír fjórðu hlutar kjósenda hafi kosið Bandalag sjíta, sem er undir áhrifum trúarleiðtogans Alis al-Sistanis. Flokkur Iyads Allawis, forætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar virðist hins vegar aðeins hafa fengið um átján prósent atkvæða. Ekki er búist við að endanlegar niðurstöður liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi í byrjun næstu viku.

Bauðst tvisvar til að segja af sér

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, bauðst tvisvar sinnum til þess að segja starfi sínu lausu í kjölfar hneykslisins í Abu Ghraib fangelsinu. Þetta sagði Rumsfeld í viðtali við Larry King á sjónvarpsstöðinni CNN í gærkvöldi.

Yfirmanni olíuáætlunar refsað

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur farið fram á að Benon Sevan, yfirmanni olíusöluáætlunar Sameinuðu þjóðanna frá valdatíma Saddams Husseins í Írak, verði refsað. Í rannsóknarskýrslu sem birtist í gær kom fram að framkvæmd áætlunarinnar hefði verið meingölluð og að mikil spilling hefði þrifist meðal þeirra embættismanna sem unnu að málinu.

Fleiri fljúga með lággjaldafélögum

Lággjaldaflugfélög í Evrópu fluttu alls 80 milljónir farþega á síðasta ári. Þetta er nærri helmingsaukning frá árinu 2003 þegar 47 milljónir farþega í Evrópu ferðuðust með lággjaldaflugfélögum. Hlutdeild lággjaldafélaganna í öllum flugferðum í Evrópu er þar með orðin meira en fimmtungur. Sérfræðingar spá því að árið 2010 kunni hlutdeildin að vera komin upp í heil 40 prósent.

Mannskætt lestarslys á Indlandi

Að minnsta kosti 19 létust og og 11 særðust þegar lest var ekið á dráttarvél með vagni sem flutti gesti í brúðkaup í Kanhan 800 kílókmetra norðaustur af Bombay á Indlandi í dag. Ökumaður dráttarvélarinnar sá lestina ekki þegar hann ók yfir sporið, en lestin ýtti dráttarvélarvagninum á undan sér eina 200 metra áður en hún stöðvaðist.

Innrás ekki á dagskránni í bili

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf í morgun fyrstu Evrópureisu sína í embætti á því að heimsækja Bretland. Rice sat fyrir stundu blaðamannafund með breska starfsbróður sínum, Jack Straw, og lýsti því yfir að Bretland væri meginstuðningsland Bandaríkjanna. Rice var spurð hvort innrás í Íran væri yfirvofandi og svaraði því á þá leið að innrás væri ekki á dagskránni, í bili að minnsta kosti.

Hermönnum fækkað í Írak á næstunni

Bandarískum hermönnum í Írak verður fækkað um fimmtán þúsund á næstu vikum. Þetta sagði Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á bandaríska þinginu í gær. Hins vegar yrði þeim líklega ekki fækkað meira það sem eftir lifði þessa árs.

Flugvél fórst í Afganistan

Farþegaflugvél með yfir hundrað farþega fórst skammt frá Kabúl í Afganistan í nótt. Brak vélarinnar fannst nú skömmu fyrir hádegi en ekkert hafði til hennar spurst frá því í nótt. Vélin var í innanlandsflugi á leið frá Herat til Kabúl. Flugturninn á flugvellinum í Kabúl missti samband við vélina skömmu eftir að henni hafði verið gert að fresta lendingu vegna slæmra skilyrða.

Lesblinda hefur áhrif á akstur

Lesblinda hefur svipuð áhrif á aksturshæfileika fólks og áfengi. Ný rannsókn sýnir að viðbragðsflýtir lesblinds fólks í akstri er svipaður og þeirra sem eru fullir.

Ítalskri blaðakonu rænt í Írak

Ítalskri blaðakonu var rænt í Bagdad í morgun þar sem hún var í miðju viðtali á götu úti. Írakska lögreglan skýrði frá þessu nú rétt fyrir fréttir. Blaðakonan, sem vinnur á ítalska blaðinu Il Manifesto, var að taka viðtöl við fólk nærri háskólanum í borginni þegar byssumenn bar þar að og hrifsuðu hana með sér upp í bíl.

Bretar drykkfelldastir í Evrópu

Bretar kunna sér síst allra Evrópuþjóða hóf þegar áfengisdrykkja er annars vegar. Sögusögnin um menningarlega drykkju Frakka stenst hins vegar fyllilega skoðun.

Tymosjenko næsti forsætisráðherra

Þingið í Úkraínu samþykkti í dag einróma að Júlía Tymosjenko skyldi verða næsti forsætisráðherra landsins. Forseti landsins, Viktor Júsjenko, tilnefndi Tymosjenko í embættið fyrir skemmstu, en hún hefur verið nokkuð umdeild í landinu.

Sjá næstu 50 fréttir