Vill að leiðtogar semji sjálfir 6. febrúar 2005 00:01
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar ekki að sitja leiðtogafund Sharons og Abbas á þriðjudag þótt hún sé nú í heimsókn fyrir botni Miðjarðarhafs. Rice segist kjósa að leiðtogarnir semji sín á milli sjálfir án þess að erlendir leiðtogar eða embættismenn sinni hlutverki sáttasemjara. Rice hefur farið víða í sinni fyrstu utanlandsreisu síðan hún tók við embætti utanríkisráðherra. Bretland, Þýskaland, Frakkland, Pólland í gær, Tyrkland í dag, Ísrael nú síðdegis, Palestína á morgun. Hún hitti Ariel Sharon í dag og á morgun situr hún fund með Mahmoud Abbas, nýkjörnum forseta Palestínu. Þessi ferð Rice og fundur hennar með Abbas er skýrt merki um þá breytingu sem orðið hefur á samskiptum Bandaríkjastjórnar og yfirvalda í Palestínu eftir dauða Jassirs Arafats. Bandaríkjastjórn vildi undir það síðasta ekkert hafa með Arafat að segja og sagði hann beinlínis standa í vegi fyrir friði. Bandarísk yfirvöld hafa verið sökuð um afskiptaleysi í málefnum Ísraels og Palestínu. Með endurkjöri Bush í forsetaembættið hét Bandaríkjastjórn því að beina sjónum sínum í auknum mæli í þessa átt og má líta á heimsókn Rice sem upphaf þess. Rice lýsti því yfir í dag að hún kysi að fara milliveg virkra afskipta og afskiptaleysis. Þannig kysi hún helst, væri slíkt möguleiki, að hafa engin bein afskipti af friðarumleitunum Sharons og Abbas og í því ljósi ætlar hún ekki að sitja langþráðan leiðtogafund þeirra á þriðjudag. Það er ljóst að hlutirnir mjakast nú hægt í friðarátt fyrir botni Miðjarðarhafs. Bjartsýni er farin að ráða ríkjum og báðir aðilar hafa sýnt friðarvilja sinn í verki með ýmsum tilslökunum. Ísraelsstjórn hefur m.a. heitið því að láta allt að 900 palestínska fanga lausa úr haldi. Fangamálið er sérstakt hitamál fyrir Palestínumenn, en alls átta þúsund Palestínumenn sitja í ísraelskum fangelsum og þess er krafist að þeir verði allir látnir lausir.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira