Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bush en kokhraustur Bandaríkjamenn hafa hætt leit að efnavopnum í Írak. Meint efnavopnaeign var meginrök Bandaríkjaforseta fyrir innrásinni. Sjónvarpsviðtal við Bush verður sýnt í bandarísku sjónvarpi í kvöld. 13.1.2005 00:01
Reynt að hrinda af stað styrjöld Hryðjuverkamenn eru farnir að myrða leiðtoga sjíta í Írak og reyna að hrinda af stað borgarastyrjöld fyrir kosningarnar sem haldnar verða um næstu mánaðamót. 13.1.2005 00:01
Fjármunir gufa stundum upp Fjármunir, sem lofað er vegna náttúruhamfara, eiga það til að gufa upp þegar á reynir, en þetta gerist bæði vegna spillingar og vanefnda. Því hafa íbúar í sumum ríkjum Mið-Ameríku, í Bam í Íran og í Afganistan fengið að kynnast. 13.1.2005 00:01
Ótrúlegt hversu duglegt fólk sé Magnús Norðdahl, sem starfar hjá friðargæslunni í Srí Lanka, segir ótrúlegt hvað fólkið þar sé duglegt að bjarga sér eftir flóðbylgjuna miklu. Hann segir fólk vera að gera sér grein fyrir hversu mikill skaðinn sé. 13.1.2005 00:01
Stjórnvöld hamla hjálparsamstarfi Sú krafa indónesískra stjórnvalda að hermenn fylgi hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðum í Aceh-héraði getur orðið til þess að grafa undan hjálparstarfi í héraðinu, sögðu talsmenn hjálparsamtaka í gær. 13.1.2005 00:01
Kvartað undan ástarbríma Íbúum fjölbýlishúss í Borlänge í norðvesturhluta Svíþjóðar varð ekki að ósk sinni þegar leigusali þeirra neitaði að flytja út hávært par sem býr í húsinu. 13.1.2005 00:01
Vill uppfylla öryggisskilmála Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, segist staðráðinn í að standa við þau ákvæði vegvísis fjórveldanna til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs sem kveða á um að vígahreyfingar Palestínumanna afvopnist. Hann neitar þó beiðnum Ísraela um uppgjör við herskáar hreyfingar og segist ætla að semja við þær. 13.1.2005 00:01
Eitruðu fyrir barni með salti Bresk hjón hafa verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar fyrir að verða þriggja ára dreng að bana. Þau íhuguðu að ættleiða drenginn en drápu hann þess í stað með því að eitra fyrir honum með salti og veita honum banvænan höfuðáverka. 13.1.2005 00:01
Myrti ófríska eiginkonu sína Norskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn fyrir morðið á ófrískri eiginkonu sinni og ófæddu barni sem hún hafði borið undir belti í nær níu mánuði. 13.1.2005 00:01
Framlög til þróunarsamvinnu við Srí Lanka þrefölduð Fiskveiðifloti Srí-Lankamanna þurrkaðist nánast út í hamförunum á dögunum og tekið getur allt upp í áratug að rétta hag þjóðarinnar á ný. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að verja 75 milljónum króna til þróunarsamvinnu á Srí Lanka. </font /></b /> 12.1.2005 00:01
Ekki hægt að kjósa alls staðar Það verður ekki hægt að kjósa alls staðar í Írak þann 30. janúar. Þetta sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, í gær. Skiptir þá engu þótt fimmtíu þúsund hermönnum verði bætt við öryggissveitir Íraka fram að kosningunum. 12.1.2005 00:01
Þrír látnir á Bretlandseyjum Þrír hafa farist í miklu óveðri sem gekk inn á norðanverðar Bretlandseyjar í nótt. Víða hafa raflínur rofnað og eru tugir þúsunda manna án rafmagns og víða er varað við flóðahættu á Englandi, í Wales og Skotlandi. Veðurhamurinn náði líklega hámarki nú í morgun og fer vindhraðinn upp í fjörutíu metra á sekúndu. 12.1.2005 00:01
Varað við aðgerðum uppreisnarmanna Ríkisstjórn Indónesíu hefur ítrekað viðvaranir sínar um að hjálparstarfsmenn á Ache-héraði kunni að vera í hættu vegna aðgerða uppreisnarmanna. Þrátt fyrir að helsti hópur uppreisnarmanna í landinu segist ekki ætla að ráðast á hjálparstarfsmennina hafa þeim eigi að síður borist hótanir undanfarna daga. 12.1.2005 00:01
Þjóðaratkvæði um stjórnarskrá ESB Spænska þingið samþykkti í gær einróma að vísa stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu. Spánverjar verða þar með fyrstir Evrópuþjóða til þess að greiða atkvæði um stjórnarskrána sem á að gera stofnanir Evrópusambandsins skilvirkari. 12.1.2005 00:01
David Beckham til liðs við UNICEF Nýskipaður velgjörðarsendiherra UNICEF, David Beckham, mun taka þátt í sjónvarpsherferð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum flóðanna í löndunum við Indlandshaf. 12.1.2005 00:01
Einn lést í árás á herjeppa á Gasa Stefna hins nýja forseta Palestínu varð fyrir áfalli í morgun þegar palestínskir byssumenn gerðu ísraelskum herjeppa fyrirsát í grennd við landnemabyggð gyðinga á Gasaströndinni. Þeir drápu einn landnema og særðu þrjá hermenn. 12.1.2005 00:01
Eiturlyfjum smyglað í hundum Fíkniefnabarónar í Kólumbíu eru farnir að nota gæludýr til þess að koma varningi sínum á milli landa. Fíkniefnunum er troðið inn í dýrin. 12.1.2005 00:01
Vilja að Annan sæti ábyrgð Bandaríkjamenn hafa ítrekað kröfu sína um að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, verði dreginn til ábyrgðar fyrir stjórnleysið sem einkenndi framkvæmd Sameinuðu þjóðanna á samkomulaginu um að Írakar fengju að selja olíu fyrir mat og aðrar nauðsynjar. 12.1.2005 00:01
Koma sér fyrir á hættulegu svæði Fórnarlömb flóðbylgjunnar á Srí Lanka eru nú að snúa aftur til síns heima, stjórnvöldum til mikils ama. Fólkið kemur sér á ný fyrir á svæði sem talið er stórhættulegt. Ofgnótt er af sumum neyðarvarningi en annan sárvantar. 12.1.2005 00:01
Rasmussen hyggst boða til kosninga Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hyggst boðað til kosninga í næsta mánuði eða níu mánuðum á undan áæltun. Rasmussen mun vilja nýta þann meðbyr sem skoðanakannanir sýna að flokkur hans, Venstre, hafi nú. 12.1.2005 00:01
Viðvörunarbúnaður til í júní 2006 Sameinuðu þjóðirnar áætla að viðvörunarbúnaður vegna flóðbylgna verði kominn í gagnið fyrir júní 2006 í löndunum við Indlandshaf. Talið er að ef slíkur búnaður hefði verið í löndunum, þar sem flóðbylgjan á annan dag jóla reið yfir, hefði mátt bjarga mörgum þúsundum manna, en um 156 þúsund létust í hamförunum. 12.1.2005 00:01
Búist við að kosningum verði flýtt Búist er við því að Anders Fogh Rasmussen boði til þingkosninga fljótlega þó að níu mánuðir séu enn eftir af kjörtímabili þingmanna. 12.1.2005 00:01
Milljónir í brotajárn Litlu munaði að norskur banki yrði nokkrum milljónum króna fátækari þegar verið var að taka gamla hraðbanka úr umferð og senda þá í brotajárn og bræðslu. 12.1.2005 00:01
Aldrei minni stuðningur við innrás Innrásin í Írak hefur aldrei notið minni stuðnings meðal Breta en nú um stundir samkvæmt nýrri skoðanakönnun Populus. Einungis 29 prósent aðspurðra sögðu það hafa verið rétta ákvörðun að steypa Saddam Hussein af stóli. Í apríl 2003, skömmu eftir fall einræðisherrans, voru 64 prósent Breta þessarar skoðunar. 12.1.2005 00:01
Ekki hægt að kjósa alls staðar Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraks, hefur í fyrsta sinn viðurkennt opinberlega að ekki verði hægt að kjósa á nokkrum stöðum í Írak vegna óaldarinnar sem ríkir þar. 12.1.2005 00:01
Best að treysta á heimamenn Ríki og samtök sem leggja fram fé til neyðarhjálpar í Asíu í kjölfar náttúruhamfaranna þar ættu frekar að verja því í vel þjálfaðar sveitir heimamanna en að senda erlendar hjálparsveitir á vettvang. Þetta sögðu talsmenn Rauða krossins í gær og sögðu að vel þjálfaðir heimamenn væru betur til þess fallnir að bjarga lífum en aðkomumenn. 12.1.2005 00:01
Fimm létust í átökum Fimm létu lífið í átökum Ísraela og Palestínumanna í gær, þeim fyrstu eftir kjör Mahmoud Abbas sem eftirmanns Jassers Arafats. 12.1.2005 00:01
Mannskætt óveður á Bretlandseyjum Þrír létust þegar stormur gekk yfir norðanvert Bretland og Norður-Írland í fyrrinótt og gærdag. Vindurinn reif tré upp með rótum og felldi símastaura. Mestur mældist vindurinn á Vestureyjum Skotlands og náði 198 kílómetra hraða í hvössustu hviðunum í Skotlandi. 60 þúsund Skotar voru rafmagnslausir af völdum óveðursins. 12.1.2005 00:01
Verstu skógareldar í tvo áratugi Níu hafa látið lífið og sex er saknað í kjölfar verstu skógarelda sem geisað hafa í Ástralíu síðustu tuttugu árin. Átta fórnarlambanna létust þegar kviknaði í bílum sem þau reyndu að flýja í. Tvö börn, tveggja og fjögurra ára, eru yngst þeirra sem hafa látist af völdum skógareldanna. 12.1.2005 00:01
Hætta leit að gereyðingarvopnum Bandaríkjamenn hafa hætt leitinni að gereyðingarvopnum í Írak og bar hún engan árangur. Starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar, sem stjórnaði leit að vopnunum, er nú kominn aftur til síns heima. Eftir er að fara yfir skjöl sem fundust í Írak en ekki er búist við að þau breyti miklu um niðurstöðuna. 12.1.2005 00:01
Hættir leit að gjöreyðingarvopnum Bandaríkjamenn eru hættir leit sinni að gjöreyðingarvopnum í Írak. Þetta hafa bandarískir embættismenn staðfest við fréttamenn CNN og BBC sjónvarpsstöðvanna. Áfram verður þó farið í gegnum skjöl sem meðlimir þeirrar sveitar sem leitað hafa að gjöreyðingarvopnum hafa undir höndum. 12.1.2005 00:01
Breiðþota Atlanta flytur birgðir Hundruð tonna af hjálpargögnum berast daglega til flóðasvæðanna í Asíu. Breiðþota frá flugfélaginu Atlanta tekur þátt í flutningunum en hún flýgur með birgðir til Srí Lanka. 12.1.2005 00:01
Evrópuþing samþykkir stjórnarskrá Evrópuþingið í Strassborg samþykkti í dag fyrstu stjórnarskrá Evrópusambandsins. Andstaða við stjórnarskrána er hins vegar mikil í mörgum aðildarríkjunum og alls óvíst að þau samþykki hana. 12.1.2005 00:01
Búist við að ísjakar skelli saman Útlit er fyrir að tveir risastórir borgarísjakar rekist hvor á annan við suðurskautið á næstu dögum. Enginn veit með vissu hvað þá gerist. Annar borgarísjakinn, sem gengur undir nafninu B-15A, er stærsti ísjaki sem nokkru sinni hefur verið mældur. Hann er um 160 kílókmetrar að lengd, 35 kílómetrar á breidd og vegur líklega nokkrar milljónir tonna. 12.1.2005 00:01
Gríðarmikil aurskriða í Kaliforníu Gríðarmikil aurskriða féll yfir nokkur hús í suðurhluta Kaliforníufylkis í gær með þeim afleiðingum að tveir létust og að minnsta kosti tólf slösuðust. Skriðan reif með sér tré og runna og skemmdi á annan tug húsa og fjölda bíla. Björgunarsveitir kemba nú svæðið í leit að fólki sem kann að hafa grafist undir í leðjunni. 11.1.2005 00:01
Júsjenkó lýstur sigurvegari Viktor Júsjenkó hefur formlega verið lýstur sigurvegari forsetakosninganna í Úkraínu sem fram fóru á annan dag jóla. Yfirkjörstjórn í Úkraínu hefur staðfest að Júsjenkó hafi hlotið rétt tæp 52% atkvæða en keppinautur hans, Viktor Janúkovítsj, hafi hlotið rúmlega 44%. 11.1.2005 00:01
Sex lögreglumenn fórust Sex írakskir lögreglumenn fórust og margir særðust, þar af sumir lífshættulega, þegar bílsprengja sprakk fyrir utan lögreglustöð í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Skæruliðar gera nú harða hríð að írökskum lögreglumönnum í tilraun sinni til að hafa truflandi áhrif á þingkosningar í landinu um mánaðamótin. 11.1.2005 00:01
Abbas réttir sáttarhönd Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti Palestínu, hefur þegar lýst því yfir að hann vilji rétta Ísraelsmönnum sáttarhönd og hefja friðarviðræður á nýjan leik. Bush Bandaríkjaforseti hefur boðið Abbas að koma í Hvíta húsið til viðræðna, nokkuð sem Jassir sáluga Arafat var aldrei boðið. 11.1.2005 00:01
Löglegar aðgerðir í Abu Ghraib Lögmaður eins hermannanna bandarísku, sem ákærðir eru fyrir að misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak, segir ekkert ólöglegt við aðgerðir hermannanna. Skjólstæðingur hans, Charles Graner, er meðal annars sakaður um að hafa skipað föngum að leggjast allsberir hver ofan á annan og að hafa haft þá í hundaól. 11.1.2005 00:01
Ótryggt ástand í Aceh-héraði Stjórnvöld í Indónesíu hafa bannað hjálparstarfsmönnum að fara án sérstaks leyfis inn á nokkur svæði í Aceh-héraði sem hafa orðið illa úti í hamförunum á annan dag jóla. Herinn segist ekki geta tryggt öryggi fólksins en í Aceh-héraði hefur undanfarna áratugi staðið yfir blóðug barátta stjórnarhersins og sjálfstæðissinna í héraðinu. 11.1.2005 00:01
Enginn póstur mánuðum saman Íbúar Ascenion-eyja í Suður-Atlantshafi hafa nánast engan póst fengið síðan í október. Eyjan heyrir undir Bretland en póstþjónustan þar í landi hefur sent póstinn af misgáningi til Suður-Ameríku, m.a. til höfuðborgar Paragvæ sem heitir Assuncion. 11.1.2005 00:01
Vilja 400 milljarða í hjálparstarf Sameinuðu þjóðirnar vilja að þjóðir heims leggi fram sem svarar 400 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í Asíu. Þegar hafa safnast rúmlega 250 milljarðar. Rætt verður í dag hvernig fénu er best varið og hvernig hægt verði að tryggja að það renni raunverulega til hjálparstarfs. 11.1.2005 00:01
Aðallega þörf á peningum Enginn skortur er á hjálpargögnum eða hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðunum á Indónesíu. Fyrst og fremst er þörf á peningum til framtíðaruppbyggingar á hamfarasvæðunum segir Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða krossins. 11.1.2005 00:01
Íslenskur sjávarútvegur viðmiðið Breski Íhaldsflokkurinn hefur tekið upp nýja sjávarútvegsstefnu sem meðal annars byggist á reynslu Íslendinga í sjávarútvegi. 11.1.2005 00:01
Sharon ræddi við Abbas Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hringdi fyrr í dag í Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseta Palestínu, til að óska honum til hamingju með sigurinn í kosningunum á sunnudag. Að sögn palestínsks ráðamanns ræddu þeir saman í um tíu mínútur en hann vildi ekki láta uppi hvert umræðuefnið var. 11.1.2005 00:01