Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsetinn brást þjóð sinni Levy Mwanawasa, forseti Afríkuríkisins Sambíu, sagðist í viðtali við BBC hafa brugðist þjóð sinni. Hann ætlar þó ekki að segja af sér. "Því miður gerðu Sambíumenn mistök með því að kjósa mig forseta, þeir sitja uppi með mig," sagði hann í viðtalinu. 11.1.2005 00:01
Abbas og Sharon ætla að hittast Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti heimastjórnar Palestínu, ræddust í gær við í síma og samþykktu að funda saman innan skamms. Þó engin dagsetning hafi verið ákveðin er búist við því að fundur þeirra verði haldinn innan hálfs mánaðar. 11.1.2005 00:01
Helftin sátt við Bush Naumur meirihluti Bandaríkjamanna er sáttur við frammistöðu George W. Bush Bandaríkjaforseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir CNN og dagblaðið USA Today. 52 prósent eru ánægð með frammistöðu hans en 44 prósent óánægð. 11.1.2005 00:01
Brown vinsælli en Blair Fylgi breska Verkamannaflokksins myndi aukast verulega ef Gordon Brown fjármálaráðherra tæki við leiðtogahlutverkinu af Tony Blair forsætisráðherra. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem gerð var fyrir dagblaðið The Independent og birt var í gær. 11.1.2005 00:01
1,3 milljarðasti Kínverjinn fæddur Kínverjar eru orðnir 1,3 milljarðar talsins og upphófst mikið fjölmiðlafár þegar tímamótabarnið, Zhang Yichi, fæddist síðasta fimmtudag. Í kjölfarið buðu fyrirtæki foreldrum hans gull og græna skóga fyrir að láta hann koma fram í auglýsingum, svo sem fyrir bleyjur og þurrmjólk, að því er BBC greinir frá. 11.1.2005 00:01
Átta létu lífið í skógareldum Að minnsta kosti átta létu lífið í skógareldum í Ástralíu í dag. Meðal látinna eru tvö börn. Sjö manna til viðbótar er saknað og fjöldi húsa hafa orðið eldinum að bráð. Þeir sem létust voru að reyna að flýja eldhafið í bílum sínum. Móðir og tvö börn fundust látin á veginum. 11.1.2005 00:01
Fordæmalaus neyðaraðstoð Þjóðir heims hafa heitið 320 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum. Aðstoð af þessari stærðargráðu á sér ekkert fordæmi og hefur komið í veg fyrir hungur og farsóttir á hamfarasvæðunum, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Stærsta áhyggjuefnið er að tryggja að öllu söfnunarfénu verði varið í þágu fórnarlambanna. 11.1.2005 00:01
Uppbyggingarstarfið gríðarlegt Ágætlega gengur að koma hjálpargögnum til flestra hamfarasvæðanna í Asíu, en uppbyggingarstarfið sem blasir við er gríðarlegt. Á Srí Lanka þurfa um tvö hundruð þúsund fjölskyldur á aðstoð að halda og enn er verið að grafa látna. Fréttamaður Stöðvar 2, Ingólfur Bjarni Sigfússon, er staddur á eynni. 11.1.2005 00:01
FBI varar við fölskum heimasíðum Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur sent út aðvörun vegna falskra heimasíðna sem gefa sig út fyrir að vera söfnunarsíður til handa fórnarlömbum flóðanna í Asíu. Heimasíðurnar líkjast raunverulegum söfnunarsíðum en ef greiddur er peningur inn á uppgefna staði komast þeir aldrei til skila til þeirra sem þurfa á þeim að halda. 11.1.2005 00:01
Látinna Svía minnst Svíar halda í dag minningarathöfn um þá sem létust í kjölfar hamfaranna í Asíu á annan dag jóla. Athöfnin verður haldin í ráðhúsinu í Stokkhólmi klukkan tíu að íslenskum tíma og þar verður konungsfjölskyldan sænska og flestir ráðamenn landsins. 10.1.2005 00:01
Aðstoðarlögreglustjóri myrtur Aðstoðarmaður lögreglustjórans í Bagdad var myrtur fyrir utan heimili sitt í morgun. Skæruliðar sátu fyrir manninum og syni hans og skutu þá báða til bana. 10.1.2005 00:01
Þyrla hrapaði á flóðasvæðunum Bandarísk þyrla með hjálpargögn hrapaði í námunda við flugvöll í Aceh-héraði í Indónesíu í nótt. Tíu manns voru um borð í þyrlunni og sluppu þeir allir með lítilsháttar meiðsli. Ekki er vitað hvað olli því að þyrlan hrapaði til jarðar en engar vísbendingar eru um að skotið hafi verið að henni að sögn hernaðaryfirvalda í Bandaríkjunum. 10.1.2005 00:01
Engar reykingar á almenningsstöðum Frá og með deginum í dag geta Ítalir ekki lengur reykt á kaffihúsum eða öðrum almenningsstöðum. Mörgum hugnast hreint ekki reykingabannið sem gengur í gildi í dag og hefur fjöldi kaffihúsaeigenda hótað því að aðhafast ekkert ef að gestir kveikja sér í vindlingum með kaffibollanum. 10.1.2005 00:01
Nýtt ferli í Miðausturlöndum Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, segir að sigur Mahmoud Abbas í forsetakosningunum í Palestínu upphafið að nýju ferli í Miðausturlöndum. Útgönguspár benda til þess að Abbas hafi hlotið ríflega tvo þriðju hluta talinna atkvæða. 10.1.2005 00:01
200 þúsund heimili enn án rafmagns Rúmlega 200 þúsund heimili í Svíþjóð eru enn án rafmagns eftir ofsveðrið sem gekk yfir landið sunnanvert um helgina. Þá eru tæplega fjörutíu þúsund dönsk heimili enn án rafmagns. Óveðrið er það versta sem gengið hefur yfir svæðið síðustu þrjátíu og fimm árin og létust að minnsta kosti ellefu manns sökum þess. 10.1.2005 00:01
Powell smeykur um framtíð Íraks Colin Powell segist smeykur um framtíð Íraks að afloknum kosningum sem fara eiga fram í landinu þann þrítugasta þessa mánaðar. Utanríkisráðherrann fráfarandi segir þó nauðsynlegt að kosningarnar fari fram á tilsettum tíma, enda komi það ekki til álita að bráðabirgðastjórnin verði við völd áfram. 10.1.2005 00:01
Sýnilegur árangur hjálparstarfsins Minningarathöfn stendur yfir í Stokkhólmi um þá sem létust í hamförunum í Asíu. Hjálparstarf er farið að bera sýnilegan árangur á hamfarasvæðunum og íbúar reyna hvað þeir geta að taka upp eðlilega lífshætti. 10.1.2005 00:01
Breskum hermönnum í Írak fjölgað Bretar ætla að senda 400 hermenn í viðbót til Íraks vegna kosninganna þar þann 30. janúar næstkomandi. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá þessu nú síðdegis. Sömuleiðis hefur Leónid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, ákveðið að hætta við að kalla herlið landsins heim frá Írak eins og fyrirhugað var. 10.1.2005 00:01
Konungur hvetur til samstöðu Karl Gústaf Svíakonungur hvatti landsmenn til að þjappa sér saman eftir hörmungarnar í Asíu í ávarpi sem var útvarpað og sjónvarpað beint í gær. "Okkur verður hugsað til allra þeirra sem standa okkur nærri og okkur þykir vænt um, en er ekki lengur á meðal okkar," sagði konungurinn. 10.1.2005 00:01
Kæru Janúkovitsj vísað frá Hæstiréttur Úkraínu vísaði í gær frá fjórum kærum Viktors Janúkovitsj, fyrrum forsætisráðherra, þar sem hann krafðist þess að seinni umferð forsetakosninganna yrði dæmd ógild. Talsmaður dómstólsins sagði að kærunum hefði verið vísað frá á grundvelli formgalla og að Janúkovitsj myndi leggja fram nýjar kærur. 10.1.2005 00:01
Hundruð þúsunda án rafmagns Nærri helmingur Letta og um nokkur hundruð þúsund Norðurlandabúar bjuggu við rafmagnsleysi í gær í kjölfar óveðursins sem gekk yfir svæðið um helgina og kostaði ellefu manns lífið. 10.1.2005 00:01
Erfið verkefni liggja fyrir Abbas Mahmoud Abbas vann yfirburðasigur í palestínsku forsetakosningunum. Nú liggur fyrir honum að semja frið við Ísraela og fá palestínska vígamenn til að láta af ofbeldi gegn Ísraelum. Kjöri hans var fagnað innanlands og utan. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Börn sneru loks aftur í skóla Börn sneru aftur í skóla sína í Acehhéraði á indónesísku eyjunni Súmötru í gær, í fyrsta sinn frá náttúruhamförunum á annan dag jóla. Sums staðar, svo sem í Aceh Besar bættist fjöldi barna frá þeim svæðum sem verst urðu úti í hóp þeirra sem fyrir voru, annars staðar vantaði marga nemendur. 10.1.2005 00:01
Fangabúðirnar í Guantanamo 3 ára Þrátt fyrir að fá verk Bandaríkjastjórnar hafi mætt jafn harðri gagnrýni og fangabúðirnar sem komið var upp í Guantanamo fyrir þremur árum virðist sem þær standi til frambúðar. Uppi eru áform um að byggja þar fangelsi fyrir andvirði 1.600 milljóna króna og geðdeild fyrir rúmar hundrað milljónir króna. 10.1.2005 00:01
Taka upp eðlilega lífshætti Íbúar á hamfarasvæðunum í Asíu reyna hvað þeir geta að taka upp eðlilega lífshætti. Mest áhersla hefur verið lögð á það á þeim svæðum sem urðu verst úti að líf barna verði sem fyrst því sem næst eðlilegt á ný. Hjálparstarf er farið að bera sýnilegan árangur. 10.1.2005 00:01
Staða Abbas fallvölt Staða Mahmouds Abbas, nýkjörins forseta Palestínu, þykir fallvölt en hans bíður afar erfitt verkefni að halda aftur af hryðjuverkahópum svo hægt verði að ganga til friðarsamninga við Ísraelsmenn. Abbas er raunsær hófsemdarmaður og telja margir að kosning hans marki þáttaskil í friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs. 10.1.2005 00:01
Átti fótum fjör að launa Johan Svensson, forstjóri Íslenska járnblendifélagsins, átti fótum sínum fjör að launa þegar hann lenti í flóðbylgjunni í Taílandi. Hann segist breyttur maður eftir þá reynslu. 10.1.2005 00:01
Kjörfundur framlengdur um tvo tíma Yfirkjörstjórn í Palestínu hefur ákveðið að framlengja kjörfund í forsetakosningunum um tvær klukkustundir, eða til sjö í kvöld að íslenskum tíma. Þetta er gert vegna þess að einhverjir Palestínumenn hafa verið stöðvaðir við eftirlitsstöðvar Ísraelshers á leið sinni á kjörstað. 9.1.2005 00:01
Matar- og vatnsskortur yfirvofandi Löggjafinn á hinum afskekktu Andaman- og Níkóbareyjum í Indlandshafi, sem urðu illa úti í flóðbylgjunni annan dag jóla, segir að eftirlifendur á eyjunum séu verða uppiskroppa með mat og vatn. Hann fer fram á að flutningi á hjálpargögnum verði hraðað eins og kostur er, ella muni enn fleiri falla í valinn á eyjunum. 9.1.2005 00:01
Neita að framfylgja reykingabanni Eigendur veitingahúsa og kráa á Ítalíu neita að framfylgja reykingabanni sem tekur gildi á morgun. Banninu, sem upphaflega átti að taka gildi um áramót, var frestað um nokkra daga svo ítalskir reykingamenn gætu fagnað nýju ári á krám og veitingahúsum. 9.1.2005 00:01
Blair og Brown deila Hatrammar deilur forsætis- og fjármálaráðherra Bretlands hafa blossað upp að nýju. Í ljós hefur komið að stuðningsmenn Tonys Blairs gera ekki ráð fyrir Gordon Brown í kosningabaráttu Verkamannaflokksins fyrir þingkosningarnar í vor. 9.1.2005 00:01
Endi bundinn á borgarastyrjöldina Endi var bundinn á lengstu borgarastyrjöld í Afríku í dag þegar ríkisstjórn Súdans skrifaði undir friðarsamning við uppreisnarmenn í landinu. Styrjöld á milli múslíma í norðurhluta Súdans og kristinna manna í suðurhluta landsins hefur geisað í tuttugu ár og er talið að ein og hálf milljón manna hafi látið lífið. 9.1.2005 00:01
Einn sjómaður lét lífið Sjómaður lét lífið þegar bandarískur kjarnorkukafbátur strandaði suður af kyrrahafseyjunni Gvam á laugardaginn. 9.1.2005 00:01
Þrír látnir og tveggja saknað Þrír eru látnir og tveggja er saknað eftir fárviðri í Norður-Englandi. Áin Eden flæddi út fyrir bakka sína og orsakaði flóð í borginni. 9.1.2005 00:01
Óveður veldur usla í Norður-Evrópu Óveður hefur geisað víða um heim síðasta sólarhring. Að minnsta kosti ellefu eru látnir í Svíþjóð og Danmörku og þrír á Bretlandseyjum. 9.1.2005 00:01
Kosningarnar hafa gengið vel Forsetakosningarnar í Palestínu voru framlengdar um tvær klukkustundir nú síðdegis, meðal annars vegna þess að kosningaþátttaka er meiri en búist var við. Þrátt fyrir ýmis konar vandkvæði virðast flestir á þeirri skoðun að kosningarnar hafi gengið vel fyrir sig. 9.1.2005 00:01
Myndband sýnir ógnarkraft flóðsins Myndband sem sýnir þegar flóðbylgjan á annan dag jóla skellur á Aceh-hérað í Indónesíu sýnir vel þvílíkir ógnarkraftar voru að verki. Jarðskjálftinn sem reið yfir á undan olli líka miklu tjóni í héraðinu. 9.1.2005 00:01
Áfangi í lýðræðisþróun "Verði niðurstöðurnar á þessa leið eru úrslitin í samræmi við skoðanakannanir," sagði Ögmundur Jónasson, alþingismaður, í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. 9.1.2005 00:01
Sögulegur samningur í Súdan Súdönsk stjórnvöld hafa undirritað viðfangsmikla friðarsamninga við leiðtoga uppreisnarmanna í Suður-Súdan. Samningarnir binda enda á lengsta borgarastríð Afríku. 9.1.2005 00:01
230 fangar látnir lausir Bandaríski herinn sleppti í gær 230 íröskum föngum sem höfðu verið í haldi í fangelsinu Abu Ghraib. 9.1.2005 00:01
Hermenn skutu óbreytta borgara Bandaríski herinn skaut tvo íraska lögreglumenn og tvo almenna borgara til bana fyrir mistök á laugardaginn. Fyrir nokkrum dögum létust fimm borgarar þegar herinn sprengdi hús í borginni Mosul. 9.1.2005 00:01
Friðargæsluliðar drepnir Tveir menn létust og tveir særðust í sprengjuárásum Hezbollah-skæruliða í Líbanon við landamæri Ísraels. 9.1.2005 00:01
Erfitt að bera kennsl á líkin Lík fórnarlamba flóðbylgjunnar í Asíu eru mörg svo illa farin vegna rotnunar að erfitt er að bera kennsl á þau. Vegna þessa segjast yfirvöld í Taílandi ekki geta borið á kennsl á meira en tvö þúsund lík. 9.1.2005 00:01
Yfirburðarsigur Abbas Mahmoud Abbas er nýr forseti Palestínu. Hann ætlar endurvekja friðarviðræðurnar við Ísraela eins fljótt og auðið er. Það eru erfiðir tímar framundan sagði Abbas. </font /></b /> 9.1.2005 00:01
439 erlendir ríkisborgarar látnir Staðfest er að 439 erlendir ríkisborgarar voru á meðal þeirra ríflega 150 þúsund manns sem talið er að hafi látist. Enn er nokkur þúsund erlendra ríkisborgara saknað þannig að líklegt er að mun fleiri hafi látist. 9.1.2005 00:01