Erlent

Stjórnvöld hamla hjálparsamstarfi

Sú krafa indónesískra stjórnvalda að hermenn fylgi hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðum í Aceh-héraði getur orðið til þess að grafa undan hjálparstarfi í héraðinu, sögðu talsmenn hjálparsamtaka í gær. Þeir segja að þetta geti hvort tveggja orðið til að seinka ferðum hjálparstarfsmanna og einnig til að tengja hjálparstarfsmenn stjórnarhernum í hugum heimamanna í héraðinu þar sem borgarastríð hefur verið háð í þrjá áratugi. Indónesísk stjórnvöld segja nauðsynlegt að hermenn fylgi hjálparstarfsmönnum vegna hættu á árásum uppreisnarmanna. Uppreisnarmenn lýstu hins vegar yfir vopnahléi í kjölfar flóðbylgjunnar og hafa ítrekað það boð sitt nokkrum sinnum síðan þá. Hjálparstarfsmenn segja nauðsynlegt að bregðast fljótt við og eitra fyrir moskítóflugum sem geti dreift malaríu, verði það ekki gert fljótlega segja þeir hættu á að sjúkdómurinn kunni að leggja tugi þúsunda að velli á komandi mánuðum. Hjálparstarfsmenn á Andamaneyjunum indversku kvarta undan því að yfirvöld komi í veg fyrir að þeir geti veitt þá hjálp sem þörf er á. Talsmenn indverskra og erlendra hjálparsamtaka segja yfirvöld hafa gert þeim erfitt fyrir að ferðast til eyjanna. Í gær kvartaði svo Basudev Dass, einn forystumanna Indverska rauða krossins, undan því að stjórnvöld hefðu stolið hjálpargögnum frá samtökunum. "Þeir vilja taka öll hjálpargögn og dreifa þeim. Við erum ákveðin í því að við ætlum að fara og dreifa þeim til þeirra sem þurfa nauðsynlega á þeim að halda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×