Fleiri fréttir

5 féllu í Fallujah

Loftárásir Bandaríkjahers á borgina Fallujah í Írak í nótt kostuðu í það minnsta fimm lífið. Læknar segja fjórtán hafa særst, þar á meðal börn undir fjögurra ára aldri. Talsmenn Bandaríkjahers segja árásirnar hafa verið gerðar á bækisstöðvar stuðningsmanna Abu Musabs al-Zarqawis, leiðtoga al-Qaeda í Írak.

Vilja herða tökin

Ísraelskar hersveitir réðust inn í palestínskar flóttamannabúðir í morgun og er stefnt að því að herða tökin þar í því augnamiði að koma í veg fyrir eldflaugaárásir á Ísrael. Tugir byssumanna börðust við hersveitirnar í Jabalya-búðunum, og er einn sagður fallinn.

Fleiri hryðjuverk í Rússlandi?

Lögreglan í Rússlandi fann fyrir stundu bæði sprengiefni og skammbyssu í kvikmyndahúsi í Pétursborg. Húsið var lokað vegna viðgerða og eru aðstæður að mörgu leyti svipaðar og í barnaskólanum í Beslan. Óttast er að hryðjuverkamenn hafi þar verið að undirbúa aðra árás. </font />

50 uppreisnarmenn felldir

Í það minnsta 50 íslamskir uppreisnarmenn voru drepnir af herliði Pakistana við landamæri Afganistan í dag. Herþyrlur og þotur Pakistana réðust á það sem herinn taldi vera þjálfunarbúðir fyrir erlenda hryðjuverkamenn. Búist við að tala látinna muni hækka.

Blair stokkar upp í ríkisstjórn

Tony Blair, forsætisráðherra Breta hefur stokkað upp í ríkisstjórn sinni, að því er virðist til að reyna að styrkja stöðu sína innan stjórnarinnar og ekki síður innan Verkamannaflokksins. Blair hefur fengið einn helsta stuðningsmann sinn; Alan Milburn sem áður gegndi embætti heilbrigðisráðherra, til að móta stefnu flokksins fyrir næstu kosningar.

Keyrir framhjá slysstað daglega

Að minnsta kosti ellefu féllu og nokkur hundruð særðust þegar öflug bílsprengja sprakk við sendiráð Ástralíu í Jakarta í Indónesíu í morgun. Bílasprengjan sprakk við fjölfarna umferðagötu í miðborg Jakarta og til marks um það hvað sprengjan var öflug myndaðist fjögurra metra djúpur gígur þar sem bíllinn stóð.

Fimmtungur saknar múrsins

Fimmti hver Þjóðverji vildi gjarnan að Berlínarmúrinn stæði enn ef marka má nýja þýska skoðanakönnun, tímaritsins Stern og sjónvarpstöðvarinnar RTL. 24 prósent Vestur Þjóðverja sakna múrsins og tólf prósent allra Austur Þjóðverja.

Þjóðarmorð í Darfur

Þjóðarmorð hafa átt sér stað í Darfur héraði í Súdan, sagði utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Colin Powell í dag á fundi með utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Hann sakaði stjórnvöld í landinu og Janjaweed uppreisnarhópinn um að bera ábyrgð á ódæðunum.

Heimurinn vill Kerry

Könnun sem gerð var í 35 löndum um heim allan sýnir að flestir utan Bandaríkjanna vilji sjá demókratann John Kerry sem næsta forseta Bandaríkjanna, frekar en núverandi forseta, George Bush.

Reykbann á breskum krám

Um þriðjungur bara og kráa í Bretlandi verða reyklaus fyrir árslok. Þar með feta Bretar að sumu leiti í fótspor Norðmanna og Íra þar sem gildir allsherjarbann á Reykingum á veitingahúsum og börum.

Óhugur vegna endurhæfingastöðva

Ráðgert er að byggja fjórar til fimm endurhæfingastöðvar fyrir um eitthundrað kynferðisafbrotamenn í Bretlandi, en áformin hafa slegið óhug á íbúa á svæðum þar sem þær eiga að rísa.

Fellibylurinn Ivan veldur óskunda

Fimmtán hafa látist á karabísku eyjunum eftir að fellibylurinn Ivan geystist yfir eyjarnar á 200 km hraða á klukkustund. Hús hafa jafnast við jörðu og rafmagnsleysi víða. Flest dauðsföllin urðu í Grenada og hefur forsætisráðherra landsins lýst yfir þjóðarhörmung. Fellibylurinn mun ganga yfir Jamaíka á morgun og yfir Kúbu um helgina.

Hótar að reka Arafat úr landi

Ísraelsk stjórnvöld eru nær því nú en nokkru sinni áður að reka Jasser Arafat, forseta Palestínu, frá heimastjórnarsvæðum Palestínumanna, sagði Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, þegar hann ávarpaði fund í Likudbandalaginu. Óvíst er hvort alvara búi að baki orðum hans eða hvort Shalom hafi aðeins verið að styrkja stöðu sína innan flokksins.

Neita að bera vitni

Vitni sem áttu að hjálpa málstað Slobodan Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseta, eru farin að neita að bera vitni að sögn lögmanna hans. Að þeirra sögn er fólkið ósátt við að forsetinn fyrrverandi fái ekki að verja sig sjálfur og bregðast því við með því að neita að mæta í réttarsal.

Getum alltaf átt von á árásum

Átta létust og á annað hundrað særðust í sprengjuárás í Djakarta. Ómar Valdimarsson, sem býr í nágrenni staðarins þar sem árásin var gerð, segir hryðjuverk eins og þetta hættu sem fólk býr við dag hvern. </font /></font /></b /></b />

Nær 200 hafa farist í flóðum

Flóðin miklu í suðvesturhluta Kína hafa kostað 177 manns lífið og bitnað á alls ellefu milljón einstaklingum. Nokkur hundruð þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín og í Sichuan-héraði einu, sem hefur orðið einna verst úti, hafa 10.000 einstaklingar veikst eða slasast í hamförunum.

Grafa undan baráttunni

Ríki sem veita foringjum og stuðningsmönnum uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu hæli eru með því að grafa undan herferðinni gegn hryðjuverkum. Þetta sagði Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í viðtali við rússneska blaðið Vremya Novostei.

Bush heldur forskotinu

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur sjö til átta prósentustiga forskot á demókratann John Kerry samkvæmt nýrri skoðanakönnun CBS sjónvarpsstöðvarinnar.

Þjóðarmorð framin í Darfur

"Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að þjóðarmorð hafi verið framið í Darfur og að súdanska ríkisstjórnin og Janjaweed beri á því ábyrgð. Það getur verið að þjóðarmorð eigi sér enn stað," sagði Colin Powell, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna. Janjaweed eru arabískar vígasveitir sem starfa með stjórnarhernum.

Íhuga að ráða málaliða

Ef ríki heims útvega ekki nógu marga hermenn til að sinna friðargæslu í Kongó geti það orðið til þess að Sameinuðu þjóðirnar verði að leita til einkaaðila til að sinna friðargæslu, sagði Aldo Ajello, sendimaður Sameinuðu þjóðanna í Mið-Afríku.

Rússneskir ráðamenn ævareiðir

Ráðamenn Rússlands eru ævareiðir og segja Vesturlönd sýna tvískinnung í afstöðunni til hryðjuverkamanna. Þeir vilja að umheimurinn bregðist eins við hryðjuverkum í Rússlandi og Bandaríkjunum.

Kóralfiskur í útrýmingarhættu

Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin, World Wide Fund, hafa bætt tveimur dýrum á listann yfir þau tíu dýr sem eru í hvað mestri útrýmingarhættu í heiminum. Annað þessara dýra er kóralfiskur með varir sem þykja lostæti og er hann því orðinn afar eftirsóttur.

Drengurinn slapp lifandi

Rússneski drengurinn sem sést mjög greinilega á myndbandi hryðjuverkamannanna í Beslan slapp lifandi úr skólanum. Mæðgur sem sátu við hliðina á honum létu lífið.

Sprautuð með ólífuolíu

Læknanemi á sjúkrahúsi í Austurríki sprautaði aldraðan sjúkling með ólífuolíu sem hann tók í misgripum fyrir sýklalyf. Læknaneminn greip vitlaust ílát þegar hann fyllti sprautuna, í stað þess að ná í meðalaglas tók hann smáflösku með ólífuolíu sem sjúkraþjálfari hafði sem var að fara að nudda sjúklinginn hafði útbúið.

Grátbað forseta Frakklands

Franskur blaðamaður sem haldið er í gíslingu í Írak grátbað, í myndbandi sem sýnt var í nótt, Jaques Chirac Frakklandsforseta að láta undan kröfum mannræningjanna, og fella úr gildi bann við því að skólastúlkur hylji hár sitt.

Ímyndunarveikur í átta ár

Bandarískur karlmaður í Kaliforníu hefur fengið skilaboð frá lækni sínum um að hann sé ekki alnæmissmitaður eins og honum var greint frá fyrir átta árum. Maðurinn, sem heitir Jim Malone, hefur síðan honum var tilkynnt að hann væri smitaður af Hiv-veirunni sem veldur alnæmi, sótt stuðningsfundi alnæmissmitaðra, barist við þunglyndi og óttast dauðann.

Góðar fréttir fyrir reykingamenn

Rannsóknir á nýju hjálparmeðali fyrir reykingamenn á amtssjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn sýna að 40 prósentum þeirra sem nota lyfið tekst að losna við sígaretturnar í eitt skipti fyrir öll. Nýja lyfið er pilla sem heitir Variniklæn.

Mótmæla til stuðnings föngum

Grímuklæddir stuðningsmenn Hamas hreyfingarinnar gengu um götur Gasa borgar í gær ásamt hundruðum Palestínumanna til að styðja kröfur palestínskra fanga sem sitja í fangelsum í Ísrael.

Áfram mótmæli í New York

Mótmæli halda áfram á götum New York borgar. Mótmælin í gær voru þó ekki eins fjölmenn og mótmælin á sunnudag en nokkur þúsund manns tóku þó þátt. Andrúmsloftið virtist einnig vera léttara en mótmælendur lögðu áherslu á málefni heimilislausra, alnæmissjúkra og önnur velferðamál. Í kringum tíu þúsund lögregluþjónar eru við störf á svæðinu.

Engin tengsl milli rána

Nú er komið í ljós að bankaræningjarnir á Akerbryggju í Osló eiga ekkert sameiginlegt með ræningjunum í Stavanger og Jessheim annað en atvinnunna. Þeir eru einfaldlega ræningjar. Hitt er annað mál að ránið á Akerbryggju var skipulagt af þremenningunum meðan þeir sátu saman í fangelsi í Ósló. Tveir þeirra voru í helgarleyfi og sá þriðji í fæðingarorlofi hjá fjölskyldu sinni.

Vill tryggja frelsi gíslanna

Forseti Frakklands, Jacques Chirac, ítrekaði í dag að allt yrði gert til að frelsa tvo franska blaðamenn sem eru í haldi mannræningja í Írak. Chirac er í Rússlandi sem stendur og mun funda með Putin Rússlandsforseta og Gerhard Schröder kanslara Þýskalands, en þeir voru á sínum tíma allir andsnúnir Íraksstríðinu.

Réttarhöld yfir Milosevic hafin

Ásakanir sem Slobodan Milosevic er borinn eru helberar lygar og málflutningur saksóknara við stríðsglæpadómstólinn í Haag er byggður á útúrsnúningi á mannkynssögunni. Þessu hélt Milosevic fram í morgun, þegar hann hóf málsvörn sína. 

Hóta Shaath lífláti

Hópur palestínskra öfgamanna hótaði í morgun að ráða utanríkisráðherra Palestínu, Nabil Shaath, af dögum. Þeir segja þátttöku hans í ráðstefnu á Ítalíu með starfsbróður sínum frá Ísrael dauðasök. Snúi Shaath aftur til Gasa-strandarinnar verði hann tekinn af lífi. Til stendur að Shaath komi til Gasa í dag.

Drápu tólf gísla

Írakskur hópur uppreisnarmanna, Alsa al-Sunna, segist hafa drepið tólf gísla frá Nepal og sýndu þeir myndir af drápunum á íslamskri vefsíðu í dag. Í yfirlýsingu segjst þeir hafa framkvæmt dóm guðs yfir Nepölunum sem hefðu komið til landsins til að berjast við múslima og þjóna gyðingum og kristnum mönnum.

Hamas ábyrg fyrir sjálfmorðsárásum

Fimmtán fórust þegar öflugar sprengjur sprungu skammt frá eða um borð í tveimur strætisvögnum í suðurhluta Ísraels skömmu fyrir hádegi. Fimmtíu hið minnsta særðust.

Bush og Kerry hnífjafnir

Bush Bandaríkjaforseti hefur étið upp forskotið sem John Kerry var með í skoðanakönnunum. Fylgi frambjóðendanna tveggja er nú hnífjafnt. Fram eftir sumri naut John Kerry forskots á Bush í könnunum, bæði hvað almennar vinsældir snerti og svo í nokkrum lykilmálaflokkum.

Bílsprenging í Moskvu

Átta fórust og margir eru sárir eftir að öflug bílsprengja sprakk við neðanjarðarlestarstöð í Moskvu síðdegis.

Bush lofsamaður á flokksþingi

George Bush er sterk hetja sem sýndi hryðjuverkamönnum í tvo heimana. Þetta voru skilaboðin sem ræðumenn á flokksþingi repúblíkana sendu í gærkvöldi. Aðalræðumenn kvöldsins voru þingmaðurinn John McCain og fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, Rudy Guiliani.

Tólf gíslar myrtir

Mikil reiði ríkir í Nepal eftir að tólf þarlendir gíslar voru myrtir af vígamönnum í Írak. Reiðin beinist hvort tveggja að morðingjunum en ekki síður að stjórnvöldum í Nepal sem þykja ekki hafa gert nóg til að tryggja lausn gíslanna.

Ekkert að kosningunum

"Enginn getur beitt valdi til að neyða fólk til að kjósa," sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti þegar hann varði forsetakosningarnar í Tsjetsjeníu. Gagnrýnt hefur verið að kosningarnar hafi ekki verið nægilega lýðræðislegar og að viðamikið kosningasvindl hafi átt sér stað.

Reyna enn að mynda stjórn

Harðlínumenn á sitt hvorum væng norður-írskra stjórnvalda hefja í dag enn eina tilraunina til að mynda starfhæfa ríkisstjórn, nokkuð sem hefur reynst þeim um megn. Viðræðurnar hefjast á sama tíma og þess er minnst að áratugur er síðan Írski lýðveldisherinn tilkynnti um vopnahlé, sem hefur reyndar ekki alltaf haldið.

Demókrati í röðum repúblikana

Öldungadeildarþingmaðurinn Zell Miller er ansi frábrugðinn öðrum ræðumönnum á flokksþingi repúblikana sem hafa það verkefni að sannfæra Bandaríkjamenn um að kjósa George W. Bush forseta í haust. Ástæðan er einföld. Miller er demókrati og hefur setið á þingi fyrir þá frá árinu 2000 en var um sextán ára skeið vararíkisstjóri í Georgíu.

Víst má vinna baráttuna

Degi eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsviðtali að líklega væri ekki hægt að vinna sigur í baráttunni gegn hryðjuverkum virtist hann kominn á öndverða skoðun. "Við hittumst á stríðstímum, þegar land okkar á í stríði sem það hóf ekki en mun fagna sigri í," sagði Bush á fundi með fyrrverandi hermönnum í Nashville.

120 þúsund mótmæla

Yfir 120 þúsund manns fjölmenntu á götur úti í New York borg í gær til þess að mótmæla stjórnunarháttum Bush. Þetta er mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í mótmælum fyrir flokksþing í Bandaríkjunum en flokksþing Rebúblikana sem hefst í dag mun standa út vikuna.

17 látast í Kabúl

Að minnsta kosti 17 manns, þar á meðal börn, hafa farist í sprengjutilræðum í Kabúl um helgina. Fjarstýrð bílsprengja sprakk í gær fyrir utan höfuðstöðvar bandaríska fyrirtækisins DynCorp, en fyrirtækið sér meðal annars um öryggismál fyrir Hamid Karzai forseta Afganistan. Einnig var gerð árás á skóla.

Sjá næstu 50 fréttir