Fleiri fréttir

Máttu ekki semja við lægstbjóðanda

Fulltrúar meirihluta VG og Samfylkingar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar segja sorpeyðingagjald hækka um 6,8 prósent vegna úrskurðar sem meini bænum að semja við lægstbjóðanda um sorpþjónustu.

Skipulag jólasveinsins slær í gegn

Ragnheiður Stefánsdóttir segir jólasveininn sýna fyrirhyggjusemi í skógjöfum og gefa fjölskyldunni gæðastundir á morgnana í desember.

Kominn með vinnu og þak yfir höfuðið

Litháiski maðurinn sem búið hefur í bíl sínum við Esjurætur síðustu mánuði hefur eignast fjölda velunnara síðan í gærkvöldi, en einstaklingar, fyrirtæki og hjálparsamtök hafa boðist til að rétta honum hjálparhönd.

Stekkjastaur er lagður af stað

Lögreglumenn í Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sáu til Stekkjastaurs í kvöld þar sem hann var að leggja af stað til byggða.

Frábært færi í Bláfjöllum

Opið var í dag í Bláfjöllum. Færið var gott og fjölmargir mættu. Ungir sem aldnir skemmtu sér á skíðum og snjóbrettum.

Sælla fyrir Íslendinga að þiggja en gefa

slendingar voru duglegir við að óska eftir og þiggja aðstoð annarra ríkja og alþjóðastofnana á fyrstu áratugum lýðveldisins og nýttu sér aðstæður Kalda stríðsins til hins ítrasta. Þeir eru hins vegar eftirbátar annarra Norðurlanda í aðstoð við þróunarríki í dag.

Lögreglan leitar að karlmanni og ungri konu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Alin Mijloc, 33 ára gömlum karlmanni, í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Af sama tilefni leitar lögreglan að Ileönu Bibilicu 18 ára.

Fagnaði aldarafmæli þann 11.12.13

Hún er fædd 11.12.13. Það var fyrir heilli öld og í dag fagnaði Guðrún Valborg Finnbogadóttir aftur afmæli sínu á þessari merkilegu dagsetningu.

Býr í bíl við Esjurætur

Litháískur karlmaður á sextugsaldri hefur búið í bíl sínum við Esjurætur í nýstingskulda síðan í byrjun september. Bíllinn er bensínlaus og segist hann einfaldlega sofa á daginn. Áhyggjufullir göngugarpar og lögregla hafa fylgst með manninum í vetur, en erfitt er að koma honum til hjálpar þar sem hann vill ekki þiggja neina aðstoð.

Helgi sá ekki Vigdísi: "Margt sem augað nemur ekki“

"Ég var stödd hér allt til enda fundarins en það vildi þannig til að þegar ræða háttvirts þingmanns Helga Hjörvars er skoðuð þá sést glögglega að ég labba framhjá ræðupúltinu,“ sagði Vigdís Hauksdóttir meðal annars í ræðu sinni á þingi í dag.

Kolbeinn fundaði með öllum nema kafteini Pírata

Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, fundaði með öllum formönnum flokkanna sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi fyrr í haust, nema kafteini Pírata. Kolbeinn telur að hægt sé að skapa sátt um sjávarútveginn með veiðigjöldum og langtímaafnotasamningum.

Ingó biðst afsökunar á klámvísu

"Þetta var algjör dómgreindarbrestur hjá mér. Ég var að syngja þetta lag og af gömlum vana setti ég inn þetta orð sem ég átti ekki að gera. Ég bið alla sem voru þarna afsökunar - mér finnst þetta afar leiðinlegt,“ segir Ingó Veðurguð.

Baltasar fær tæplega 120 milljóna styrk

Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur fengið veglegan styrk frá kvikmyndasjóði ítalska héraðsins Suður-Týról upp á eina milljón Bandaríkjadali eða um 118 milljónir íslenskra króna vegna nýjustu myndar sinnar Everest.

Gunnar Bragi færði styrkina í tal

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, beitti sér fyrir því að þeir IPA-styrkir sem þegar hefðu verið áveðnir yrðu greiddir þrátt fyrir að aðildarviðræðum hefði verið hætt og viðræðuhópar leystir upp. Þannig beitti ráðherrann Gunnar Bragi sér fyrir styrkjum sem hann var í prinsippinu andsnúinn.

Taka ekki við fleiri leikskólabörnum

Þroska- og hegðunarstöð heilsugæslunnar lokar á umsóknir leikskólabarna. Um fimmtíu börn munu nú bætast á langa biðlista Reykjavíkurborgar eftir frumgreiningum á þroskavanda. Móðir segir mikilvægt að fá leiðbeiningar sem fyrst.

Retro Stefson gefur ríkisstjórninni puttann

Retro Stefson gefur ríkisstjórninni puttann á táknrænan hátt en hljómsveitin birtir í dag mynd á fésbókarsíðu sinni sem ber þess merki að hún sé ekki ýkja sátt með niðurskurðinn á RÚV.

Besta tækni lögð í salt með spítalanum

Bið verður á því að nýjasta tækni til krabbameinslækninga verði í boði hérlendis eftir að nýr Landspítali var settur á ís. Fullkomið myndgreiningartæki, sem átti að kaupa, kemst ekki fyrir í gamla húsnæði spítalans. Tækið kostar rúman milljarð.

Bruni í Breiðholti: Líðan konunnar óbreytt

Kona sem bjargaðist úr bruna í Breiðholti á mánudag er enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Konunni er haldið sofandi í öndunarvél en hún hlaut alvarleg brunasár og reykeitrun í bruna í fjölbýlishúsi í Írabakka.

Stefnt að annarri umræðu um fjárlög á morgun

Fjárveitingar til heilbrigðismála verða auknar um hátt í fjóra milljarða króna. Barnabætur verða ekki skertar en haldið er viðþá ákvörðun að skerða vaxtabætur hinna tekjuhærri. Fimm prósenta hagræðingarkrafa er gerð á öll ráðuneyti.

Stór högl á Suðurlandi

Íbúar á Suðurlandi ráku upp stór augu í gærkvöldi þegar haglél tók að falla.

Bílveltur í borginni

Bíll valt á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú á tíunda tímanum í gærkvöldi, en ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur.

Sextán ára tóbaksþjófar handsamaðir

Tveir 16 ára piltar voru handteknir í Reykjavík laust eftir miðnætti, eftir að þeir höfðu brotist inn í söluturn og stolið þaðan talsverðu af tóbaki.

Sjá næstu 50 fréttir