Skelfilegt sifjaspellsmál skekur Ástralíu Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. desember 2013 17:10 Nýja Suður-Wales. mynd/getty
Barnaverndaryfirvöld í Ástralíu hafa greint frá því þegar þau tóku fjölda barna af stórfjölskyldu í afskekktum dal í Nýju Suður-Wales í fyrra. Um er að ræða eitt óhuggulegasta barnaníðsmál í sögu Ástralíu, og í frétt Daily Telegraph um málið er það sagt með verstu tilfellum sifjaspella sem gerð hafa verið opinber. Fjórar kynslóðir innræktunar hafa valdið úrkynjun og er meirihluti barnanna sagður alvarlega þroskaskertur. Sum þeirra eru með skerta sjón og heyrn, flest voru vannærð, með sveppasýkingu á fótum, og ófær um að þrífa sig. Þá voru þau fæst fær um að tjá sig með orðum. Alls fann lögregla fjörutíu einstaklinga, börn og fullorðna, sem tilheyra fjölskyldunni og bjuggu þeir í tveimur hjólhýsum, tveimur kofum og nokkrum tjöldum. Fólkið hafði ekki aðgang að rennandi vatni og rusl lá á víð og dreif. Salerni voru ekki til staðar og börnin voru skítug og illa hirt. Talið er að fólkið hafi flutt sig reglulega á milli sveita til þess að koma í veg fyrir að yfirvöld hefðu uppi á því. Upp komst um málið þegar yfirvöldum var tilkynnt að það byggju börn í hlíðum dalsins sem gengju ekki í skóla. Nú hefur komið í ljós að langalangamma og -afi fólksins voru systkini. Börnin sem fundust voru ýmist afkvæmi feðgina, systkina eða frændsystkina og höfðu flest yngri börnin verið kynferðislega misnotuð af þeim eldri. Hluti barnanna er nú í umsjá fósturfjölskyldna og önnur eru vistuð á stofnunum. Þau fá að hafa takmörkuð samskipti við foreldra sína og systkini undir eftirliti.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira