Sælla fyrir Íslendinga að þiggja en gefa Heimir Már Pétursson skrifar 11. desember 2013 20:59
Íslendingar voru duglegir við að óska eftir og þiggja aðstoð annarra ríkja og alþjóðastofnana á fyrstu áratugum lýðveldisins og nýttu sér aðstæður Kalda stríðsins til hins ítrasta. Þeir eru hins vegar eftirbátar annarra Norðurlanda í aðstoð við þróunarríki í dag. Íslendingar eru taldir vera meðal ríkustu þjóða heims. En það hefur ekki alltaf verið þannig. Þegar 126 þúsund manns lýstu yfir sjálfstæði árið 1944 voru ýmsar alþjóðastofnanir og þjóðir sem komu Íslendingum til aðstoðar. Og sú aðstoð var notuð til að byggja allt frá virkjunum til áburðarverksmiðju í Gufunesi. „Og ég held að það sé alveg hægt að fullyrða, þótt ég hafi ekki reiknað það upp á punkta og prik, að við höfum þegið meira en við höfum gefið frá því að íslenska lýðveldið var stofnað árið 1944,“ segir Ragnheiður Kristjánsdóttir aðjúkt í sagnfræði við Háskóla Íslands. Og þessi aðstoð, þótt hún væri ekki öll veitt undir merkjum þróunaraðstoðar, eins og Marshall aðstoð Bandaríkjamanna var m.a. notuð til að byggja Sogsvirkjun, vegi og brýr og verksmiðjur eins og Álafoss. „Þetta byrjar nú bara strax í kjölfar stríðsins, og það þótt Íslendingar hafi komið mjög vel út úr stríðinu efnahagslega og íslenskt efnahagslíf hagnaðist mjög í seinna stríði. Þrátt fyrir það fengum við hluta af hinni svo kölluðu Marshall aðstoð sem var hleypt af stokkunum í Evrópu eftir seinna stríð af Bandaríkjamönnum. Og þáðum hlutfallslega meira en nokkur önnur evrópsk þjóð miðað við höfðatöluna,“ segir Ragnheiður.Tekist á um lækkun framlaga Íslands Framlög Íslendinga til þróunarsamvinnu eru 4,3 milljarðar á þessu ári eða 0,26 prósent af þjóðarframleiðslu. En nú er tekist á um það á Alþingi hvort lækka beri þessi framlög. Ef litið er á stöðuna miðað við aðrar Norðurlandaþjóðir þá skera Svíþjóð og Noregur sig úr með framlögum til þróunarstarfa upp á um 1% af þjóðarframleiðslu og Danmörk er vel yfir 0,8 prósentum. En markmið Sameinuðu þjóðanna er að þróuð ríki veiti 0.7 prósentum af þjóðarframleiðslu til þróunarmál. Finnland er í rúmlega 0,5 prósentum, nokkuð yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna sem er í 0,43 prósentum. En Ísland er þar töluvert fyrir neðan í 0,21 prósenti og hefur lækkað í samanburðinum frá hruni, þótt framlögin hafi hækkað á þessu ári í 0,26 prósent, eins og áður sagði. - En nýttum við aðstoð til okkar vel á sínum tíma? “Það má nú reyndar deila um það hvort við höfum nýtt þessa peninga vel eða illa. En ég held að það sé klárt mál að við fengum inn í landið heilmikið af framkvæmdafjármagni sem hjálpaði mjög til við framþróun í íslensku samfélagi í einhverjum skilningi,” segir Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira