Innlent

Stokkseyrarmálið: Verjandi ósáttur við gagnaframlagningu saksóknara

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður og Stefán Logi Sívarsson.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður og Stefán Logi Sívarsson.
Aðalmeðferð hélt áfram í Stokkseyrarmálinu í dag. Þinghaldið hófst á því að saksóknari bætti nýjum gögnum í málið, verjendum til mikillar óánægju.

Um var að ræða 3 læknisvottorð vegna Stefáns Loga Sívarssonar, eins ákærðra í málinu, sem og mínútubrot úr yfirheyrslu yfir Stefáni í tengslum við annað mál, Ystaselsmálið, þar sem Stefán var fórnarlamb.

Verjandi Stefáns mótmælti þessari framlagningu harðlega. Hann lét bóka þau sérstaklega og í samtali við Vísi var ekki annað að heyra en hann væri verulega ósáttur við þessi vinnubrögð saksóknara.

„Eitt vottorðið er frá heila- og taugalækni sem Stefán hitti til að meta hvaða afleiðingum hann hefði orðið fyrir eftir árásina í Ystaseli. Annað hinna vottorðanna tengist því máli líka. Þarna er verið að leggja fram samtal læknis og sjúklings sem á ekki erindi við neinn annan. Þetta er gróft brot á friðhelgi einkalífs umbjóðanda míns,“ segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmaður Stefáns í samtali við Vísi.

Myndskeiðið sem lagt var fram var aðeins afhent dómurum en ekki verjendum. Vilhjálmur er ekki síður óánægður með þau vinnubrögð saksóknara.

„Þetta er í engu samræmi við lög um meðferð sakamála,“ segir Vilhjálmur.

Vilhjálmur vísar í ákvæði þar sem segir að óheimilt sé að leggja fram skjöl eða annars konar gögn ef þau hafa að geyma upplýsingar um einkahagi manns sem vitni hefur verið trúað fyrir í starfi sem læknir.

Stefán Logi sagði í sinni skýrslu á mánudag, fyrsta degi aðalmeðferðarinnar, að hann hefði verið verið í þannig líkamlegu ástandi að hann hefði verið ófær um að beita nokkurn mann ofbeldi þegar árásirnar í Stokkseyrarmálinu áttu sér stað. Vísaði hann þar til meiðsla sem hann hlaut í Ystasels málinu. Hann bar einnig við minnisleysi í kjölfar áverka eftir þá árás.

Saksóknari sagði að nýju gögnin myndu hrekja þessar fullyrðingar Stefáns Loga.

Vilhjálmur bað um að verjendur fengju að ræða við dómara og saksóknara einslega eftir þinghaldið í dag og við þeirri bón var orðið. Ekki er ljóst hvað fór þar fram.

Næsta þinghald í málinu var ákveðið þann 20. desember næstkomandi, en þá verður haldið áfram að yfirheyra vitni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×