Innlent

Lögreglan leitar að karlmanni og ungri konu

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Alin Mijloc, 33 ára gömlum karlmanni, í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Af sama tilefni leitar lögreglan að Ileönu Bibilicu 18 ára.

Með fréttinni er mynd af Alin Mijloc en Ileönu Bibilicu er lýst lávaxinni með dökkt millisítt hár.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Alin og Ileönu eða vita hvar þau er niðurkomin eru vinsamlegast beðnir um að hafa sambandi við lögreglu í síma 444-1000. Lögreglan bendir á að einnig má senda upplýsingar í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×