Kolbeinn fundaði með öllum nema kafteini Pírata Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. desember 2013 15:52
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, fundaði með öllum formönnum flokkanna sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi fyrr í haust, nema kafteini Pírata. Kolbeinn telur að hægt sé að skapa sátt um sjávarútveginn með veiðigjöldum og langtímaafnotasamningum. Þetta kemur fram í viðtali við Kolbein í nýjasta Klinkinu. Kolbeinn segir að ímynd LÍÚ skipti máli en almenningur hefur lítið álit á samtökunum ef marka má skoðanakannanir. „Við erum að reyna að koma skilaboðum til skila sem við teljum að séu miklivæg og það skiptir máli að þér sé treyst og þér sé trúað og það skiptir máli að jafn mikilvæg atvinnugrein og sjávarútvegur njóti sannmælis. Ef ímynd LÍÚ endurspeglar íslenskan sjávarútveg þá er það alvarlegt mál því sjávarútvegurinn á það ekki skilið, eins og hann er að skaffa þjóðarbúinu,“ segir Kolbeinn.Grunnatvinnuvegur þjóðarinnar Sjávarútvegurinn er mikilvægasta atvinnugrein Íslands og númer eitt í landsframleiðslunni. Er í raun eðlilegt að tala um flaggskip í því samhengi. Alls skapar sjávarútvegurinn 11 prósent af landsframleiðslunni með beinum hætti og þá er ekki tekið með í reikninginn afleidd áhrif. Þ.e afleiddar tekjur, t.d klasinn í kringum sjávarútveginn og afleidd störf. Þá fer þetta hlutfall upp í 28 prósent. Starfsmenn LÍÚ funda reglulega með þingmönnum. Þannig að „Leyndó-fundurinn“ sem Gunnar Bragi Sveinsson var að vísa til í frægum SMS-skilaboðum til Vigdísar Hauksdóttur úr Vodafone-lekanum var kannski enginn „leyndó-fundur.“ Gunnar Bragi hefur sjálfur sagt í viðtali við DV að skilaboðin hafi verið grín. Þessi fundur var ekki á vakt Kolbeins heldur forvera hans í starfi, Friðriks J. Arngrímssonar.Sjávarútvegurinn fái tækifæri til að blómstra Kolbeinn átti fyrr í haust tveggja manna fundi með Bjarna Benediktssyni, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Árna Páli Árnasyni, Guðmundi Steingrímssyni og Katrínu Jakobsdóttur, þ.e formönnum allra flokka nema kafteini Pírata. Slíkur fundur hefur ekki enn verið settur upp. „Hún er algjörlega á því að sjávarútvegurinn fái tækifæri til að blómstra,“ segir Kolbeinn um fund sinn með Katrínu Jakobsdóttur sem átti sér stað á skrifstofu hennar. „Við áttum mjög gott spjall um þetta og munum vonandi eiga slík samtöl í framtíðinni. Ég held að allir séu sammála um að atvinnugrein sem skapar fjórðung gjaldeyristekna okkar fái að dafna. Ég held að enginn vilji að fjárfesting í honum detti niður,“ segir Kolbeinn. Hægt er nálgast viðtalið við Kolbein hér, en þar ræðir hann um langtímasamninga í sjávarúvegi, makríl, uppboð á makríl, samninga um makríl við Evrópusambandið og klasamyndun í sjávarútvegi. Eins og fréttastofan hefur áður greint frá eru útvegsmenn ekki sammála því að bjóða upp fyrirhugaðan makrílkvóta eftir setningu hans í aflahlutdeild. Færð hafa verið rök fyrir þeirri leið sem eru á þá leið að eðlilegt sé að úvegsfyrirtæki greiði fyrir kvótann á uppboði. Þannig renni hann til þeirra sem búið geti til mest verðmæti með hann og ríkissjóður fái strax peninga.Uppfært kl. 17:05. Í eldri útgáfu fréttar var fullyrt að Birgitta Jónsdóttir hefði ekki þekkst boð um fund með Kolbeini. Hið rétta er að LÍÚ hefur ekki óskað eftir fundi með henni.Þorbjörn ÞórðarsonTwitter @thorbjornth
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira