Innlent

Fagnaði aldarafmæli þann 11.12.13

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Hún er fædd 11.12.13. Það var fyrir heilli öld og í dag fagnaði Guðrún Valborg Finnbogadóttir aftur afmæli sínu á þessari merkilegu dagsetningu.

„Ég er fædd á fimmtudegi klukkan ellefu fyrir hádegi 1913. Ég var að vona að afmælisdagurinn myndi hittast á það aftur að vera á fimmtudegi en það færðist svolítið,“ segir afmælisbarnið Guðrún Valborg.

Hún var hress og kát þegar fréttastofa leit við á heimili hennar að Droplaugastöðum í miðborg Reykjavíkur í dag. Tilefnið var ærið enda fagnaði Guðrún aldarafmæli sínu í dag. Hún er fædd 11. desember árið 1913 eða 11.12.13. Sú dagsetning rann upp að nýju í dag.

„Þegar ég var að borða áðan, þá kom glansandi sólskin inn á borðið, yfir matinn og mig þar sem ég sat. Ég kallaði á vinkonu mína og sagði að það vissu fleiri að ég ætti afmæli í dag,“ bætir Guðrún Valborg við.

Nánast í heila öld á Njálsgötu

Guðrún er mikið borgarbarn og hefur búið í miðborginni allt sitt líf. Árið 1918 fluttist hún í íbúð að Njálsgötu 27 og fluttist þaðan fyrir örfáum árum yfir á hjúkrunarheimili. Fimm ættliðir í fjölskyldu Guðrúnar hafa búið í þessu húsi og býr barnabarn hennar í íbúðinni í dag ásamt fjölskyldu sinni.

„Þarna var gaman að vera í gamla daga. Þá voru engir bílar á götunni. Þetta var bara hestvagnar og hestar,“ segir Guðrún.

Það var mikill gestagangur hjá Guðrúnu í dag og lék Embla Mýrdal, barnabarnabarn Guðrúnar, á flautu fyrir langömmu sína. Og Guðbún Valborg er enn í fínu formi þrátt fyrir að árin séu orðin 100.

„Ég held að ég hafi haft góða lund, létta frekar. Þótti gaman af eitthverri vitleysu,“ sagði hin aldargamla Guðrún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×