Fleiri fréttir

Tillögur hagræðingarhóps kynntar á næstu dögum

Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar verða kynntar á næstu dögum samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu. Hópurinn skilaði tillögum til ríkisstjórnarinnar í byrjun októbermánaðar.

Reynir að hnekkja Guantanamo-dómi

Ástralinn David Hicks, sem varð fyrstur Guantanamo-fanganna til að fá á sig dómsúrskurð, hefur nú áfrýjað dómnum.

Mörg þúsund gjafir í Jól í skókassa

"Síðasti dagurinn á höfuðborgarsvæðinu til þess að skila jólagjöfum fyrir verkefnið Jól í skókassa er á laugardaginn næstkomandi ,“ segir Salvar Geir Guðgeirsson, verkefnastjóri verkefnisins. Það er félagið KFUM sem stendur fyrir söfnuninni.

Legugjöldin eiga að skila 290 milljónum í kassann

Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af legugjöldum á sjúkrahúsum landsins, sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir, eru 290 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar þingmanns Vinstri grænna.

Vetrarfærð í flestum landshlutum og varað við hálku

Vetrarfærð er í flestum landshlutum með nokkurri hálku eða hálkublettum. Í tilkynningu frá Vegagerð segir að Hálkublettir séu á Hellisheiði og Þrengslum og nokkuð víða í uppsveitum á Suðurlandi. Snjóþekja er í Mýrdalnum og á Reynisfjalli.

Dýpka Landeyjarssund vegna síldveiða

"Vegna síldveiða er þörf á þessari aðgerð núna,“ segir í tillögu um að dýpka Landeyjasund. Bæjarstjórnin í Stykkishólmi samþykkti tillöguna.

Hráolía lak um allt planið á bensínstöð í austurborginni

Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um mann sem kom á bensínstöð í Austurborginni. Sá tók sig til og skrúfaði frá krana fyrir hráolíu og hafði sig síðan á brott. Olían lak um allt planið og þurfti að kalla til slökkvilið til þess að aðstoða við að hreinsa planið. Að sögn lögreglu er málið í rannsókn.

Vaknaði við að innbrotsþjófur var í íbúðinni

Um klukkan hálfþrjú í nótt var tilkynnt um innbrot í heimahús í Hafnarfirði. Húsráðandi hafnði vaknað upp við hávaða og kom að manni í íbúðinni. Sá hljóp rakleitt út og upp í bíl sem beið fyrir utan. Bíllinn ók hratt frá vettvangi og er málið í rannsókn en óljóst hvort þjófurinn hafi haft eitthvað upp úr krafsinu.

Ekið á mann á Vespu í Hafnarfirði

Ekið var á ungan mann á vespu í Hafnarfirði um klukkan átta í gærkvöldi. Ungi maðurinn var hjálmlaus, fékk hann högg á höfuðið og var aumur í fæti. Fluttur á Slysadeild í sjúkrabifreið til aðhlynningar. Móður hans var tilkynnt um óhappið og fór hún á Slysadeild til hans að sögn lögreglu.

Hvetja íslenska þingmenn til að hafna vernd fyrir transfólk

ÖSE segir breytingu á hegningarlögum um hatursáróður gegn transfólki ógna tjáningarfrelsi og leggur til að Alþingi hafni breytingunni. Formaður Samtakanna "78 segir transfólk síst mega við minni réttarvernd en aðrir minnihlutahópar.

Lögmaður gagnrýnir Héraðsdóm Reykjavíkur

„Það er staðfest að ákæra verður birt í dag,“ segir Gísli Hall, lögmaður Hannesar Smárasonar. Ákæran snýst um millifærslu tæplega þriggja milljarða króna af reikningum FL Group til Kaupþings í Lúxemborg árið 2005.

Karlar 70 prósent viðmælenda í ljósvakamiðlunum

"Niðurstöðurnar koma ekki á óvart. Þetta hefur þó heldur mjakast því árið 2005 voru átta karlar á móti tveimur konum viðmælendur í fréttum en í dag er hlutfallið sjö karlar á móti þremur konum,“ segir Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu

Þarf að finna hentugt skip fyrir Landeyjahöfn

Baldur gæti hentað sem arftaki Herjólfs en hefur ekki haffærnisleyfi á svæðinu. Leitað hefur verið að heppilegu skipi innanlands til siglinga í Landeyjahöfn án árangurs. Bæjarráð Vestmannaeyja vill að ráðist verði strax í útboð á nýrri ferju.

"Við eigum ekki að slá af kröfunum“

Forseti menntavísindasviðs segir vel menntaða kennara nauðsynlega í sífellt flóknara samfélagi. Börnunum fjölgar á meðan kennurum fækkar og því forgangsmál að fjölga nemendum í kennaranámi.

Jöfnuður óvíða meiri í Evrópu

Munurinn á þeim tekjuhæstu og tekjulægstu hér á landi er með því minnsta sem gerist í Evrópu samkvæmt rannsókn Hagstofu Íslands.

Konungleg heimsókn

"Það er mikið fagnaðarefni að Margrét Danadrottning ætli að vera viðstödd hátíðahöldin. Heimsóknin sýnir áhuga hennar á safni Árna Magnússonar,“ segir Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar.

Segir Dróma setja kirkjunni afarkosti

Hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum Langholtskirkju við Dróma. Skulda á annað hundrað milljóna. Sóknarprestur segir Dróma setja kirkjunni afarkosti. Trúum því að þetta leysist farsællega segir formaður sóknarnefndar kirkjunnar.

Ólafur vísaði sýndarviðskiptum á bug

Skýrslutaka yfir Ólafi Ólafssyni fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun í Al-Thani-málinu. Hann sagði skelfilegt að sitja undir áburði um sýndarviðskipti.

Sprautufíklar taka ofvirknislyf fram yfir fíkniefni

Ofvirknislyfið metýlfenídat, sem meðal annars er að finna í rítalíni, er uppáhaldslyf íslenskra sprautufíkla. Hvergi annarstaðar en á Íslandi þekkist að lyfið sé notað í þessum tilgangi.

Facebookbanni á Landspítalanum aflétt

„Það er stóra málið að hjá okkur að opna þá samskiptaleið sem Facebook býður upp á,“ segir Páll Matthíasson nýr forstjóri Landspítalans um þá ákvörðun að opna fyrir aðgang að Facebook í húsnæði spítalans.

Pétur tekur við kyndlinum í Kópavogi

Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn Karlsson, efstu menn á lista Samfylkingar í Kópavogi, ætla ekki að gefa kost á sér fyrir næstu sveitastjórnarkosningar.

Líst illa á hugmyndir Vigdísar

Formaður læknafélags Ísland segir að hugmyndir Vigdísar Hauksdóttur, að leggja eigi álag á íslenska námsmenn sem ílengjast í námi erlendis, setji átthagafjötra á námsmenn.

Ómar í frí frá stjórnmálum

Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs, mun ekki bjóða sig fram til áframhaldandi setu í bæjarstjórn Kópavogs.

Grænlenskur togari á reki

Grænlenskur togari er á reki um 200 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, eftir að aðalvélin bilaði í honum í morgun. Skipverjum tókst að koma henni aftur í gang, en hún bilaði aftur fyrir stundu.

Minnstur ójöfnuður á Íslandi

Hlutfall landsmanna sem var undir lágtekjumörkum eða í hættu á félagslegri einangrun var lægst á Íslandi árið 2012 samanborið við Evrópulöndin. Hér var hlutfallið 12,7%, en 25% meðal íbúa Evrópusambandsins.

Varað við stormi við Suðurströndina

Veðurstofan varar við stormi, eða meira en 20 metrum á sekúndu við Suðurströndina í dag og 13 til 18 metrum á sekúndu norðvestanlands. Hægari vindur verður í örðum landshlutum. Dálítil rigning eða slydda með köflum sunnanlands, en él fyrir norðan og austan og þar verður líka vægt frost.

Snjóflóðahætta á Tröllaskaga

Veðurstofan varar ferðamenn við að vera á ferð í bröttum hlíðum með nýföllnum snjó á Tröllaskaga, eða í grennd við Siglufjörð og Ólafsfjörð. Þar hefur bætt í snjó og skafið í gil í norðlægum áttum.

Vitni vísaði á innbrotsþjóf

Karlmaður braust inn í bíl í Kópavogi undir miðnætti og hafði einhver verðmæti á brott með sér. Vitni sem sá til hans gat vísað lögreglunni á hann og var hann handtekinn. Hann er vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins og fleiri mála sem honum kunna að tengjast.

Sjá næstu 50 fréttir