Fleiri fréttir

Foreldrar óska eftir skattarannsókn á leikskólann 101

Foreldrar barna á leikskólanum 101 hafa óskað eftir skattrannsókn á hendur skólanum. Þau telja óeðlilega að innheimtu leikskólagjalda staðið og hafa sent borginni og skattrannsóknar-stjóra erindi sitt.

Fangelsismál: Konur komast loksins í opin fangelsi

Íslenskir kvenfangar fá nú í fyrsta sinn að sitja af sér dóma í opnum fangelsum, en skortur á slíkum úrræðum fyrir þessa fanga hefur verið gagnrýndur. Ekki er næga vinnu að hafa fyrir fanga hérlendis og fangelsismálastjóri biður almenning um hugmyndir.

Vonskuveður í lok vikunnar

Gera má ráð fyrir slæmu veðri víða á landinu, segir í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Ólína fékk flest atkvæði

Ólína Þorvarðardóttir fékk í dag flest atkvæði um stöðu sem sviðsforseti Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri.

Háskólinn fundar vegna meints „dónakarls“

Jón Baldvin Hannibalsson hefur ekki verið ráðinn sem kennari við Háskóla Íslands heldur var hann fenginn til að vera gestafyrirlesari á námskeiði. Þetta segir formaður félagsvísindadeildar sem ætlar að funda vegna málsins í dag.

Lagning Suðurnesjalínu strandar á kæru og eignarnámi

"Við vorum með byggingu Suðurnesjalínu tvö á áætlun þessa árs og áformuðum að hefja framkvæmdir í ár. En það mál hefur tafist og útséð með það að miklar framkvæmdir verði í ár á þessari línu.“

Svangir fangar fá ekki vinnu

Fangar í Kvennafangelsinu í Kópavogi fá um þúsund krónur á dag til þess að kaupa sér mat. Aðstandandi segir þá borða afganga og brauð. Fangelsismálastjóri segir enga vinnu að fá fyrir fanga á höfuðborgarsvæðinu.

Verða sjálfir að finna lausnir

Foreldrar ungbarna á 101 leikskóla á Bræðraborgarstíg verða sjálfir að finna lausnir sem henta þeim varðandi dagvistun. Borgin mun þó leita allra leiða til að aðstoða foreldra í leit þeirra að dagvistunarúrræðum.

Tæplega þrettán þúsund í Háskóla Íslands

Tæplega þrettán þúsund hafa skráð sig í Háskóla Íslands og stefnir í metskráningu. Flestir hafa skráð sig í viðskiptafræði en aukinn áhugi er á tölvunar- og verkfræði. Þá hefur orðið aukning í mannfræði. Ríflega 3.000 nýnemar hafa skráð sig í nám.

Tapa fé á auðu hjúkrunarrými

Bæjarfulltrúar á Hornafirði segja laus hjúkrunarrými hjá Heilbrigðisstofnun Suðuausturlands vera áhyggjuefni. Greiðslur frá ríkinu miðast við nýtingu rýmanna.

Hafnarstjórn vill endurheimta svæði

Hafnarstjórn Hafnarfjarðar segir að mistök hafi verið gerð í aðalskipulagi bæjarins þegar upplandi hafnarinnar hafi verið breytt í svæði til íbúðabyggðar og verslunar og þjónustu.

Halda Dýrunum í Hálsaskógi

Ekkert verður af dómsmáli sem Þjóðleikhúsið höfðaði gegn Senu vegna ágreinings um útgáfurétt að 46 ára upptöku Ríkisútvarpsins á Dýrunum í Hálsaskógi. Sátt náðist er frumskjöl fundust komu í leitirnar. Sena heldur útgáfuréttinum áfram.

Sprengingar í Baghdad

Hrina sprenginga í Baghdad hafa grandað 16 manns og sært 85, nú í morgun, að sögn lögreglu og læknaliðs.

Íslensk lögregluyfirvöld fá aðgang að læstum Facebook síðum

Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttalögmaður sagði í samtali við fréttastofu nú í kvöld að hann hefði ekki heyrt af því áður að Facebook væri notað við lögreglurannsóknir. En sagði að hans afstaða í málinu væri sú að lögreglan yrði jafnframt að fá dómsúrskurð til þess að fá að skoða síðurnar.

Vísindamenn finna nýtt frumefni

„Það er alltaf ákveðin þversögn fólgin í vísindalegum uppgötvunum, því þótt ný þekking skapist þá leiðir hún oft af sér fleiri spurningar en svör,“ segir Katrín Lilja.

Íbúar við Hofsvallagötu fögnuðu

"Sviðsstjóri skipulags og umhverfissviðs byrjaði á að biðjast afsökunar á samráðsleysinu og sagði að þetta hefði ekki verið gert af ráðnum hug,“ segir Kristinn Fannar.

"Ég hef aldrei greitt auðlegðarskatt"

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segist aldrei hafa greitt auðlegðarskatt og að ítrekuð skrif um annað séu einfaldlega röng.

Vilja hefja framkvæmdir við Helguvík í haust

Forstjóri Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, vonast til þess að hægt verði að hefja framkvæmdir við álverið í Helguvík í haust. Hann segist finna fyrir miklum velvilja frá íslenskum stjórnvöldum en hann fundaði með iðnaðarráðherra í morgun.

„Eins og að koma heim aftur“

Lesskilningur hjá börnum í Reykjanesbæ er hlutfallslega meiri en hjá börnum í Reykjavík. Margt er sagt spila þar inn í, meðal annars hinar svokölluðu lestrarömmur sem koma í skólann og hjálpa krökkunum.

Efnavopnaárásir í heila öld

Allt frá árum fyrri heimsstyrjaldarinnar hefur efnavopnum stöku sinnum verið beitt í hernaði, jafnan með skelfilegum afleiðingum.

Reka fé af fjalli á morgun

Fé verður sótt á afréttum á næstu tveimur til þremur dögum vegna óveðurspár fyrir Norðurland á föstudag og laugardag. "Við erum auðvitað skaðbrenndir af árinu 2012 og viljum ekki lenda í því aftur og gerum það ekki. Við tökum enga sénsa núna,“ segir Sæþór Gunnsteinsson gangnastjóri.

Krefjast lögbanns á framkvæmdir í Gálgahrauni

Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndasamtök Suðvesturslands og Hraunavinir hafa óskað eftir lögbanni á framkvæmdir í Gálgahrauni. Telja framkvæmdin ólögmæta.

Þýskir rútubílstjórar smygla varningi til landsins

Árni Elísson, hjá tollinum á Seyðisfirði, segir að þeir þar hafi gert varning, sem þýskir rútubílstjórar hafa með sér til landsins þegar þeir koma með Norrænu, upptækan í stórum stíl.

Yfirlýsing frá Mýflugi: Engu ábótavant í viðhaldi og tækni þegar flugvélin hrapaði

Engu var ábótavant í viðhaldi né tæknilegum atriðum þegar flugvél Mýflugs, TF-MYX, hrapaði í Hlíðarfjalli þann 5. ágúst síðastliðinn með þeim afleiðingum að tveir létust. Áhöfnin var rétt þjálfuð og hafði fengið næga tíma til hvíldar, veðuraðstæður voru hagstæðar og nægt eldsneyti var á vélinni. Þetta segir í tilkynningu frá Mýflugi.

Almannavarnanefndir í viðbragðsstöðu

Almannavarnanefndir frá Blönduósi austur á Seyðisfjörð eru í viðbrögðsstöðu vegna óveðursins sem ganga á yfir norðanvert landið á föstudag og laugardag. Gert er ráð fyrir illviðri - að mörgu leyti líku því sem gekk yfir landið í byrjun september í fyrra og hafði í för með sér mikinn fjárskaða á Norðurlandi.

Lokað á heita vatnið í Salahverfi

Loka þarf fyrir heita vatnið í Salahverfi í Kópavogi í dag vegna viðhalds. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að íbúar á hluta svæðisins hafi verið látnir vita með dreifimiðum í hús en nú í morgun kom í ljós að loka þarf fyrir vatnið á mun stærra svæði en áður var ráð fyrir gert.

Borðum of lítið af heilkornabrauði

"Æskilegt er að landsmenn borði meira af grófum heilkornabrauðum og öðrum heilkornavörum til að stuðla að bættri heilsu,“ segir í frétt Landlæknis. Íslendingar borði aðeins hálfa brauðsneið á dag að meðaltali.

Segir póstþjónustu á búðarkassa asnalega

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps segir "algerlega ófullnægjandi“ að Íslandspóstur skuli hafa "troðið“ afgreiðslu sinni "við hliðina á búðarkassa“ í versluninni Kjarval í Vík. Verslunarstjórinn kveðst undrandi á harðorðum yfirlýsingum sveitarstjórnarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir