Fangelsismál: Konur komast loksins í opin fangelsi Hrund Þórsdóttir skrifar 28. ágúst 2013 18:30 Páll Winkel, fangelsismálastjóri, segir skort á vinnu fyrir fanga hérlendis.
Athygli hefur vakið að aðeins ein kona situr nú af sér dóm í kvennafangelsinu í Kópavogi. Alls eru aðeins fjórar konur í íslenskum fangelsum í dag en fyrir nokkrum mánuðum voru þær 12 talsins. Yfirleitt eru konur um 5% fanga. Yfirvöld fangelsismála hafa sætt gagnrýni fyrir að konur hafi ekki fengið aðgang að opnum úrræðum. Það hefur nú breyst og ástæðan fyrir því að aðeins ein kona situr nú í Kvennafangelsinu er að hinar þrjár eru á opnum úrræðum, tvær á Kvíabryggju og ein á Sogni. Þetta hefur verið reynt áður, með slökum árangri að sögn fangelsismálastjóra en hann segir að nú gangi þetta vel. „Það eru bættar reglur um samskipti kynjanna og við förum betur yfir það hvaða konur geta farið á opin úrræði og hvenær þær eru hæfar til þess, meðal annars út frá fíkniefnaneyslu,“ segir Páll Winkel, fangelsismálastjóri. Konur og karlar eru því saman í opnu fangelsunum og Páll segir aðspurður fordæmi fyrir slíku erlendis, í smærri byggðarlögum. Hann segir að vissulega væri betra að hafa kynin aðskilin en að sambúðin gangi vel með ströngum reglum um umgengni. Í Fréttablaðinu í dag segir aðstandandi fanga í Kvennafangelsinu að fangar þar búi við matarleysi. Þetta segir Páll ekki rétt. „Það sveltur enginn fangi á Íslandi. Fangar eru með að lágmarki 53 þúsund krónur á mánuði í mat og hreinlætisvörur, sem er um 26% meira en neysluviðmið og ef þeir eru í námi sem þeir fá greitt fyrir eða í vinnu þá hækkar það enn frekar,“ segir hann. Í fréttinni kemur einnig fram að ekki sé næga vinnu að hafa fyrir fanga og það tekur Páll undir. „Okkur vantar alltaf vinnu, þannig að ef einhver þarna úti hefur hugmyndir að vinnu fyrir okkur værum við mjög þakklát fyrir það.“ Hann segir þó ýmislegt gert til að skapa vinnu fyrir fanga og að til dæmis hafi verið sett af stað bleikjueldi á Sogni og sauðfjárbúskapur á Kvíabryggju. „Þannig að við reynum allt sem við getum,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira