Innlent

Geislafræðingar krefjast skýringa

Haraldur Guðmundsson. skrifar
Frá fundi geislafræðinga fyrr í mánuðinum.
Frá fundi geislafræðinga fyrr í mánuðinum.
Geislafræðingar ákváðu á fjölmennum fundi í gærkvöldi að senda frá sér yfirlýsingu til stuðnings formanni Félags geislafræðinga. Í yfirlýsingunni kemur fram að mikil óánægja sé meðal geislafræðinga með að ekki sé enn búið að ráða formann félagsins á Röntgendeild Landspítalans, þrátt fyrir undirmönnun geislafræðinga á deildinni.

Formanni geislafræðinga var sagt upp störfum án áminningar í maí síðastliðnum og hafa geislafræðingar ítrekað lýst undrun sinni í fjölmiðlum á því að stjórnendur Landspítalans hafi ekki endurráðið viðkomandi.

Yfirlýsing geislafræðinga:

„Á fjölmennum fundi geislafræðinga kom fram megn óánægja með að enn sé ekki búið að ráða formann Félags geislafræðinga á Röntgendeild Landspítalans.

Undirmönnun geislafræðinga á Röntgendeild Landspítalans hefur verið staðreynd í langan tíma og hefur það valdið miklu álagi á starfandi geislafræðinga. Þrátt fyrir þetta var formanni Félags geislafræðinga sagt upp störfum án áminningar, á sama tíma og verið var að auglýsa laust starf geislafræðings. Formaður Félags geislafræðinga sendi inn starfsumsókn og fór í viðtal þar sem henni var tilkynnt að ekki væri laus staða á Röntgendeild Landspítalans. Þetta vekur mikla undrun sérstaklega eftir ummæli Páls Matthíassonar, staðgengils forstjóra Landspítalans, í fréttum Stöðvar 2 þann 7. ágúst 2013;

„Hins vegar verður umsóknum frá geislafræðingum tekið fegins hendi og þær fá flýtimeðferð. Að sjálfsögðu mun umsókn frá Katrínu, sem er reyndur og öflugur geislafræðingur, fá sömu afgreiðslu,“ segir Páll.

Það skýtur skökku við að ekki sé hægt að ráða eins reyndan geislafræðing til starfa og Formaður geislafræðinga er, á sama tíma og verið er að skikka geislafræðinga á vaktir sem illa gengur að manna sökum manneklu.

Við teljum að brotið hafi verið gróflega á formanni Félags geislafræðinga sem á að baki 33 ára farsælan starfsaldur við Landspítalann.

Í ljósi alls þessa krefjumst við skýringa á þessari ákvörðun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×