Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrsti tökudagur Noah í dag Tökur á myndinni Noah, sem skartar meðal annars Russel Crowe, Anthony Hopkins, Jennifer Conelly og Emmu Watson í aðalhlutverkum, hófust í dag. Leikstjóri myndarinnar Darren Aronfsky segir frá þessu á Twittersíðu sinni. 20.7.2012 11:19
Tjöld og tjaldvagnar gætu fokið Veðurstofan varar fólk við að tjöld, hjólhýsi og aftanívagnar geti fokið út í veður og vind suðvestanlands og á vestanverðu hálendinu annað kvöld, í slagveðurs rigningu. 20.7.2012 11:03
Sumarskötuveisla á Ísafirði Boðið verður upp á skötuveislu á Ísafirði í dag. Veislan er orðin árlegur viðburður í Tjöruhúsinu á Þorláksmessu að sumri. Lionsklúbbur Ísafjarðar stendur fyrir boðinu og á vefsíðu Bæjarins Bestu eru matráðar þeirra sagðir sannkallaðir sérfræðingar í þeirri íþrótt að kæsa og matreiða skötu. 20.7.2012 10:05
Virkjuðu skáldagáfuna hjá Vinnuskólanum Lokahóf fyrir krakkana í 8. bekk vinnuskólans í Grindavík var haldið á dögunum. Farið var í ratleik, pokahlaup og haldin grillveisla. Á einni stöð í ratleiknum þurftu krakkarnir að virkja skáldagáfuna og setja saman tvær línur um það sem var skemmtilegast við Vinnuskólann. 20.7.2012 09:51
Crowe jákvæður fyrir því að stjórna þætti á X-inu 977 „Það væri frábært ef það væri hægt að klára þetta," segir Orri Freyr Rúnarsson, útvarpsmaður á útvarpstöðinni X-inu 9.77. 20.7.2012 09:48
Ben Stiller leitaði að tökustöðum á Vesturlandi Bandaríski leikarinn og leikstjórinn Ben Stiller leitaði í gær að hentugum tökustöðum á Vesturlandi fyrir endurgerð myndarinnar The Secret of Walter Mitty, sem ráðgert er að taka hérlendis að hluta næsta sumar. 20.7.2012 06:26
Mældist á 148 km hraða á Reykjanesbraut Svartur Benz fólksbíll mældist á 148 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, á móts við Vogaafleggjara á tólfta tímanum í gærkvöldi og sinnti ökumaður ekki stöðvunarmerkjum lögreglumanna. 20.7.2012 07:26
Ölvaðir á torfærujeppa ollu gróðurskemmdum Töluverðar gróðurskemmdir eru komnar í ljós eftir að þrír ölvaðir menn óku sérsmíðuðum torfærujeppa um hlíðarnar fyrir ofan sumarbústaðahverfi Kennarasamtakanna við Flúðir í fyrrinótt, með þeim afleiðingum að bíllinn valt og einn þeirra slasaðist alvarlega. 20.7.2012 06:59
Björgunarskip sótti vélarvana handfærabát Björgunarskip Landsbjargar, Oddur V. Gíslason, kom fyrir stundu með lítinn handfærabát í togi til Grindavíkur, eftir að vélin bilaði í bátnum þegar hann var staddur um sjö sjómílur suður af Þorlákshöfn á tólfta tímanum í gærkvöldi. 20.7.2012 06:56
Ökumenn teknir á flótta undan lögreglu Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna aksturs undir áhrifum áfengis og fíkniefna. 20.7.2012 06:54
Ósáttur við hávaða frá þyrlum Hávaði frá þyrlum kann að grafa undan upplifun ferðamanna. Leiðsögumaður vill skýrar reglur. Meiri umferð fylgir eðlilega ónæði, segir þjóðgarðsvörður. 20.7.2012 06:30
Sextíu rúður brotnar á þremur vikum Um sextíu rúður í strætóskýlum hafa verið brotnar á síðustu þremur vikum, allar í eða nærri Hlíðahverfi í Reykjavík. Þetta er margfalt meira en gengur og gerist, en algengt er að fjórar til fimm rúður séu brotnar á mánuði. 20.7.2012 06:30
Landsvirkjun og OR bítast um leyfi Orkustofnun hefur til umfjöllunar tvær umsóknir sem skarast og varða rannsóknarleyfi vegna fyrirhugaðra virkjana í Skjálfandafljóti. 20.7.2012 06:00
Kröpp lægð fer yfir landið Einni dýpstu lægð sem sést hefur í júlí við norðanvert Atlantshafið og Ísland er spáð um helgina. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifar á vefsíðu sína að veðrinu muni fylgja mikið vatnsveður um allt land. 20.7.2012 05:30
Grasfrjó og birkifrjó eru fólki erfiðust Flestir sem eru með frjókornaofnæmi hafa ofnæmi fyrir gras- og birkifrjóum. Gott er að fylgjast með frjókornum annarra plantna enda geta þau einnig vakið ofnæmisviðbrögð þrátt fyrir að sjúklingurinn hafi ekki ofnæmi fyrir þeim. 20.7.2012 05:00
Einar hissa á áfrýjun sýknu Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi yfir Einari ¿Boom‘ Marteinssyni, fyrrverandi leiðtoga íslenskra Vítisengla, í líkamsárásarmáli sem tengt var Hells Angels. Einar var ákærður fyrir að skipuleggja grófa líkamsárás sem aðrir sakborningar fengu allt að fjögurra ára dóm fyrir að fremja. 20.7.2012 05:00
Brotnaði illa í andliti Lögreglumál Karlmaður var fluttur illa slasaður á spítala eftir torfæruslys rétt utan við Flúðir á fjórða tímanum í fyrrinótt. Hann reyndist mikið brotinn í andliti en er ekki í lífshættu. 20.7.2012 04:30
Ár í gróðurhús á Hellisheiði Framkvæmdum við gróðurhús á Hellisheiði hefur verið frestað til ársloka en til stóð að þær hæfust í haust. Þetta var ákveðið á hluthafafundi Geogreenhouse síðastliðinn föstudag. 20.7.2012 04:00
Aldraðir eigi vímulaust ævikvöld „Sú ákvörðun að setja upp bar á öldrunarstofnun bendir til að hugmyndir okkar um lífsgæði vímunnar séu komnar út í miklar öfgar,“ segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, um þá fyrirætlan að hefja vínveitingar í borðsal Hrafnistu í Reykjavík. 20.7.2012 04:00
Ólafur Arnalds í So You Think You Can Dance Lagið 3326 eftir tónlistarmanninn Ólaf Arnalds var notað í raunveruleikaþáttunum bandarísku So You Think You Can Dance í gær. 19.7.2012 23:02
Undirbýr sig fyrir aðgerðina Guðmundur Felix Grétarsson var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar var forvitnast um stöðu mála hjá honum en hann lauk fjáröflun sinni fyrir handaágræðslu fyrir nokkru. 19.7.2012 21:45
"Af hverju mega þær ekki fæða börnin á sínum heimaslóðum?" "Við erum virkilega leiðar yfir þessu og höfum um leið áhyggjur af þessum konum og fjölskyldum þeirra." Þetta segir Anna Eðvaldsdóttir, varaformaður Ljósmæðrafélags Íslands. 19.7.2012 21:06
Þakkar viðbrögðum björgunarmanna að ekki fór verra Eldur kviknaði um borð í humarbátnum Maggý frá Vestmannaeyjum í morgun eftir að leki hafði komið að skipinu. Sjö menn voru um borð og þakkar skipstjórinn snörum handtökum björgunarsveitarmanna að ekki fór verr og að engan hafi sakað. 19.7.2012 20:30
Fyrrverandi þingmaður vill verja Hrafnabjargafoss Húsvíkingurinn Jón Ármann Héðinsson, fyrrverandi alþingismaður, hvetur til þess að Skjálfandafljót verði látið í friði. Hann segir að svokölluð Hrafnabjargavirkjun muni ekki aðeins hafa áhrif á Aldeyjarfoss heldur einnig á fagurt umhverfi Hrafnabjargafoss, sem fáir hafi séð. Við greindum í gær frá umsóknum tveggja orkufyrirtækja um leyfi til rannsókna við ofanvert Skjálfandafljót til undirbúnings virkjun við Aldeyjarfoss sem kölluð er Hrafnabjargavirkjun. 19.7.2012 19:45
Líkir gögnum Íra um dreifingu markríls við skáldskap Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, líkir vísindagögnum írskra stjórnvalda um dreifingu makríls við Ísland við skáldskap, enda byggi gögnin ekki á rannsóknum innan íslensku lögsögunnar. Hann efast um að Evrópusambandið og Norðmenn muni fallast á kröfu Íra um refsiaðgerðir gegn Íslandi. 19.7.2012 19:15
Sakar ríkisstjórnina um að stunda blekkingarleik með fjárlögin Formaður Framsóknarflokks sakar ríkisstjórnina um að stunda blekkingarleik með fjárlögin. Sífellt sé verið að vísa í árangur af aukinni hagræðingu og niðurskurði en raunveruleikinn sé hins vegar allt annar. Halli ríkissjóðs á síðasta ári var tvöfalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 19.7.2012 18:45
Rafrænar kosningar hluti af tíðarandanum "Ég er sannfærður um að almenningur mun brátt geta kosið með rafrænni kosningu.“ Þetta segir Halldór Halldórsson, formaður Samtaka sveitarfélaga. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann við þáttastjórnendur um rafrænar kosningar. 19.7.2012 17:46
Stúlka kom í heiminn á Reykjanesbrautinni Stúlka kom í heiminn í sjúkrabíl á Reykjanesbrautinni í nótt en óskað var eftir sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja rétt fyrir klukkan fimm til að flytja móðurina á fæðingardeild í Reykjavík. Á vef Víkurfrétta segir að engin ljósmóðir eða læknir hafi verið í bílnum og því hafi tveir sjúkraflutningamenn tekið á móti stúlkunni við Hvassahraun, á bæjarmörkum Voga og Hafnarfjarðar. Móður og barni heilsast vel, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. 19.7.2012 16:36
Næstum eitt skemmtiferðaskip á dag Höfuðborgarbúar hafa ekki farið varhluta af miklum fjölda skemmtiferðaskipa við hafnir borgarinnar í sumar. Alls koma 82 skip með 100 þúsund manns yfir sumarið. Það er næstum því eitt skip á dag miðað við tímabilið júní-september. 19.7.2012 16:26
Áfrýja málinu gegn Einari til Hæstaréttar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir einstaklingum tengdum Vítisenglum til Hæstaréttar en áfrýjunarfrestur í málinu rann út í gær. Fjórir voru dæmdir fyrir að ráðast á konu í Hafnarfirði í desember síðastliðnum og hlutu þeir tveggja og hálfs árs til fjögurra og hálfs árs fangelsis dóma. 19.7.2012 15:37
Íslenska lögreglan skarar framúr á facebook Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna fyrir notkun á samfélagsmiðlum í þágu löggæslu. Tilkynnt var í gær hvaða þrjú embætti þykja skara fram úr í heiminum. Í október verður tilkynnt hver verður sigurvegari þegar upp er staðið. 19.7.2012 15:36
Maggý komin til hafnar Skipið Maggý VE 108 er nú komið til hafnar í Vestmannaeyjum en það var dráttarskipið Lóðsinn sem dróg það í land. 19.7.2012 14:44
Vírar úr grillburstum geta fests í þörmum Ábendingar hafa borist til Neytendastofu um að vírburstar, sem notaðir eru til að hreinsa grill, hafi valdið alvarlegum slysum á fólki í Bandaríkjunum og víðar. Neytendastofa hefur ekki fengið upplýsingar um sambærileg atvik hér á landi telur mikilvægt að fólk sé meðvitað og skipti reglulega um vírbursta, sérstaklega þegar vírarnir eru byrjaðir að losna af, og hristi þá fyrir og eftir notkun. 19.7.2012 14:21
Koma til Vestmannaeyja klukkan hálf þrjú Dráttarskipið Lóðsinn er nú á leið til Vestmannaeyja með skipið Maggý VE 108 í togi og áætlað er að það verði komið til hafnar eftir rúman hálftíma. 19.7.2012 14:04
Snorra var ekki sagt upp vegna ummæla um samkynhneigð Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir í samtali við vikublaðið Akureyri að það sé af og frá að Snorra Óskarssyni, kenndan við trúarsöfnuðinn Betel, hafi verið sagt upp störfum sem kennari við Brekkuskóla í bænum vegna trúarskoðana sinna eða ummæla hans um samkynhneigð. 19.7.2012 13:31
Ben Stiller kominn í Hólminn Ben Stiller lenti í morgun við höfnina í Stykkishólmi, en sem kunnugt er kom leikarinn á dögunum til landsins til að endurgera myndina The Secret of Walter Mitty. Myndin verður að hluta til tekin upp í Stykkishólmi. Stiller mun bæði leika í myndinni og leikstýra henni. Fram kemur á fréttavefnum Skessuhorni að þyrlan þurfti fjórar tilraunir til þess að lenda við höfnina. 19.7.2012 13:21
Þór kominn með Maggý í tog Björgunarskipið Þór er komið með skipið Maggý VE 108 og fylgir skipið Glófaxi strax á eftir. Eins og Vísir greindi frá fyrr í morgun kom eldur um borð í Maggý og kom leki inn í vélarrúmið á sama tíma. Sjö manns eru um borð í skipinu. Þeir fóru strax í flotgalla en eru óhultir, en áhafnarmeðlimir slökktu eldinn sjálfir. Dæla var sett um borð í Maggý og er talið að með því verði hægt að toga skipið að landi. 19.7.2012 12:17
Metandælan var rangt tengd Metandæla við bensínstöð N1 á Ártúnshöfða brotnaði, þegar strætisvagn rakst utan í hana um fjögur leitið í nótt, með þeim afleiðingum að metan streymdi óhindarð út í andrúmsloftið, vegna rangra tenginga í dælunni. 19.7.2012 12:09
Bann á munntóbaki leiðir ekki til aukinna reykinga Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Landlækni, telur að þó munntóbak væri bannað myndi það ekki leiða til þess að fleiri færu að reykja. Fram hefur komið að stærsti notendahópur munntóbaks sé ungir karlmenn. "Ungir strákar reykja í mjög svipuðum mæli og ungar stúlkur. Það styður þá kenningu að munntóbaksnotkun hjá ungum karlmönnum sé viðbótartóbaksnotkun," segir hann. Því myndi bann á munntóbaki líklega ekki leiða til mjög aukinna reykinga. Þeir ungu strákar sem byrja að fikta með munntóbak hefðu mögulega ekki byrjað að reykja, að mati Viðars. 19.7.2012 12:00
Almenningur sniðgangi verslunarkeðjur í nafni tjáningarfrelsis Á nýlegri síðu er almenningur hvattur til að sniðganga verslanirnar Krónuna, Nóatún, Elko og Byko sem eru í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, sem m.a. rekur Kaupás. Ástæðan er sú að á sínum tíma var tímaritið Ísafold tekið úr sölu í verslunum Kaupáss eftir að það fjallaði um skemmtistaðinn Goldfinger. 19.7.2012 11:37
Bátur í neyð - björgunarsveitarmenn á leiðinni Björgunarsveitarmenn eru nú á leið að báti sem staðsettur er skammt fyrir utan Vestmannaeyjar. Samkvæmt óstaðfestum upplýsingum fréttastofu kom leki að bátnum og eru sjö manns eru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar Björgunarsveitarmenn eru nú á leið að báti sem staðsettur er skammt fyrir utan Vestmannaeyjar. 19.7.2012 11:18
Reykurinn kom frá pizzaofni Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um reyk frá húsnæði í miðborg Reykjavíkur á ellefta tímanum í dag. Einn bíll var sendur á staðinn og inn fóru fjórir slökkviliðsmenn. 19.7.2012 10:56
Ný stikla úr myndinni Frost frumsýnd Kvikmyndin Frost, sem er vísindatryllir í leikstjórn Reynis Lyngdal, verður frumsýnd þann 7. september næstkomandi. FROST fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Vísir frumsýnir nýja stiklu úr myndinni sem 19.7.2012 10:52
Engar skurðaðgerðir í Neskaupstað Það eru ekki aðeins fæðingar sem geta ekki farið fram á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í næstu viku því ómögulegt verður að framkvæma hvers kyns skurðaðgerðir í fjórðungnum. Eins og Vísir greindi frá í gær forfallaðist skurðlæknir sem átti að vera á vakt með litlum fyrirvara. Að jafnaði er aðeins einn skurðlæknir á vakt á sjúkrahúsinu og því verður skurðlæknislaust vegna forfallanna. 19.7.2012 10:30
Sjúkratryggingar greiddu út 30 milljarða Útgjöld til sjúkratrygginga, slysatrygginga og sjúklingatrygginga í fyrra námu samtals 30,6 milljörðum króna. Það eru um 5,4% af heildarútgjöldum ríkisiins og um 1,9% af landsframleiðslu. Útgjöldin jukust um 767 milljónir frá fyrra ári. 19.7.2012 09:42