Aldraðir eigi vímulaust ævikvöld 20. júlí 2012 04:00 Formaður SÁÁ segir áfengi fara verr í fólk eftir því sem hægir á líkamsstarfseminni með aldrinum. Fréttablaðið/Stefán „
Sú ákvörðun að setja upp bar á öldrunarstofnun bendir til að hugmyndir okkar um lífsgæði vímunnar séu komnar út í miklar öfgar,“ segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, um þá fyrirætlan að hefja vínveitingar í borðsal Hrafnistu í Reykjavík. „Í stað þess að setja upp bari á þessum stofnunum ættum við að hjálpa fólki til að eiga vímulaust ævikvöld. Það er nefnilega svo að áfengi rýfur ekki félagslega einangrun aldraðra; þvert á móti veldur óhófsneysla aldraðra oft mikilli félagslegri einangrun og hamlar samskiptum eldra fólks við börn sín og barnabörn,“ segir Gunnar Smári. Að sögn Gunnars Smára er óhófsneysla áfengis og röng notkun lyfja mikið vandamál meðal aldraðra. „Áfengi fer verr í fólk eftir því sem hægist á líkamsstarfseminni og þegar fólk eldist tekur það inn meira af lyfjum, sem mörg hver virka illa með áfengi,“ segir hann. Þá vísar formaður SÁÁ í breska rannsókn sem hafi sýnt að þriðjungur þeirra sem glímdu við áfengissýki og ofneyslu lyfja á efri árum þróuðu með sér sjúkdóminn eftir að á eftirlaunaaldurinn var komið: „Þetta sýnir að aldraðir eru sérstakur áhættuhópur þegar kemur að áfengisneyslu; öfugt við það sem brjóstvitið vill segja okkur; að aldraðir séu komnir með þann andlega þroska að geta staðist áfengi. Málið er náttúrulega að áfengissýki eða lyfjamisnotkun tengist ekki þroska okkar, það eru aðrir þættir sem valda því að sum okkar þróa með sér áfengissýki.“ - gar
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira