Grasfrjó og birkifrjó eru fólki erfiðust 20. júlí 2012 05:00 Eftir því sem norðar er farið á landinu seinkar blómgun plantna. Sveiflur á magni frjókorna eru þær sömu, en eru tveimur vikum seinna á ferðinni á Akureyri en í Reykjavík.
Flestir sem eru með frjókornaofnæmi hafa ofnæmi fyrir gras- og birkifrjóum. Gott er að fylgjast með frjókornum annarra plantna enda geta þau einnig vakið ofnæmisviðbrögð þrátt fyrir að sjúklingurinn hafi ekki ofnæmi fyrir þeim. Ótal tegundir af frjókornum eru í loftinu á sumrin, en langflestir hafa aðeins ofnæmi fyrir tveimur þeirra. „Menn eru viðkvæmastir fyrir gras- og birkifrjóum. Þessi frjó valda einnig mestum einkennum,“ segir María I. Gunnbjörnsdóttir, yfirlæknir ofnæmisdeildar Landspítalans. Misjafnt er hvenær þessi frjó ná hámarki í lofti. Mest er af birkifrjóunum í byrjun sumars en grasfrjóin ná hámarki í lok júlí. „Við látum sjúklinga oft fá frjódagatal og bendum þeim á að fylgjast með frjótölum á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands,“ segir María. Út frá þessum tölum geta sjúklingar gert sér grein fyrir hvenær má búast við ofnæmiseinkennum og gert viðeigandi ráðstafanir. Margir þjást líka af svokölluðu krossofnæmi og fá þá ofnæmisviðbrögð við fleiri frjókornum en þeim sem þeir eru með ofnæmi fyrir. Þess vegna getur verið skynsamlegt að fylgjast með fleiri frjótölum en þeim sem viðkomandi hefur ofnæmi fyrir. María segir fólk gjarnt á að rugla kvefi saman við ofnæmi þar sem ofnæmiseinkennin líkist mjög kvefeinkennum. Fólk hnerri, fái nefstíflu og kláða í bæði augu og nef. „Fólk með kvef getur kannski mætt í vinnu en hefur bara 70 til 80 prósent orku á við vanalega. Þannig líður manni líka þegar maður þjáist af ofnæmi.“ María segir best að fara í ofnæmispróf til að láta skera úr um hvort um ofnæmi sé að ræða. Hins vegar geta ýmsar vísbendingar sýnt hvort óþægindin stafi af ofnæmi eða kvefi. „Ef fólk fær alltaf kvef á sama tíma á árinu og sérstaklega ef það gerist á mesta frjókornatímanum, er það sterk vísbending um að kvefið sé í raun ofnæmi. Einkum ef enginn annar er kvefaður í kringum viðkomandi.“ María segir auðvelt að stuðla að bættri líðan ofnæmissjúklinga. „Regluleg lyfjameðferð er lykilatriði og það vita þeir sem eru með slæmt ofnæmi, þeir þola ekki annað. Andhistamíntöflur og sterapúst í nefið er mjög góð meðferð og dugar flestum.“ katrin@frettabladid.is
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira