Innlent

Þór kominn með Maggý í tog

Vélarrýmið í Maggý fylltist af sjó.
Vélarrýmið í Maggý fylltist af sjó. mynd/ Óskar P. Friðriksson.
Björgunarskipið Þór er komið með skipið Maggý VE 108 í tog og fylgir skipið Glófaxi strax á eftir. Eins og Vísir greindi frá fyrr í morgun kom eldur um borð í Maggý og kom leki inn í vélarrúmið á sama tíma. Sjö manns voru um borð í skipinu. Þeir fóru strax í flotgalla og voru óhultir, en áhafnarmeðlimir slökktu eldinn sjálfir. Tvær dælur voru settar um borð í Maggý og er talið að með því verði hægt að toga skipið að landi.

Aðstoð annarra björgunareininga og nærstaddra skipa og báta hefur verið afþökkuð. Þór, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og dráttarskipið Lóðsins munu vinna saman að því að koma bátnum til hafnar í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×