Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Braut kajak sinn nálægt Látrabjargi Hollenskur kajakræðari var hætt kominn þegar hann náði landi rétt við Látrabjarg. Enginn vissi af ferðum hans fyrr en hjón í sumarbústað sáu til hans þar sem hann reri í vonskuveðri í átt að mestu hættuslóðum við Íslandsstrendur. 25.7.2012 09:30
Bændur höfðu ekki leyfi til að beita sauðfé í Þórsmörk Komið er í ljós að bændurnir úr Rangárþigni eystra, sem nýverið slepptu fé til beitar á viðkvæma afrétti í grennd við Þórsmörk, höfðu ekki leyfi sveitarstjórnar til þess, eins og þeir héldu fram við Fréttastofu í gær. 25.7.2012 06:59
Björgunarskip á leið að vélarvana 100 tonna línuveiðibáti Björgunarskip Landsbjargar frá Rifi er nú á leið að rúmlega hundrað tonna línuveiðibáti, með sjö manna áhöfn, sem er vélarvana um 80 sjómílur vestur af Breiðafirði, eftir að báturinn fékk veiðarfærin í skrúfuna í nótt. 25.7.2012 06:31
Verkfalli afstýrt á Heathrow Komið hefur verið í veg fyrir verkfall starfsfólks á Heathrow flugvelli sem átti að hefjast á morgun. Morgundagurinn verður að öllum líkindum sá stærsti í sögu flugvallarins. 25.7.2012 16:20
Sýna Sýrlendingum stuðning Tuttugu þúsund manns hafa nú fallið í Sýrlandi, eða tvöþúsund fleiri en búa á Akureyri. Boðað hefur verið til samstöðufundar á Ingólfstorgi í dag með almenningi í Sýrlandi. Samstöðu- og mótmælafundurinn hefst klukkan þrjú í dag. Til fundarins er boðað vegna þeirra stigmagnandi átaka og borgarastríðs sem geisað hefur í landinu undanfarin misseri. Á fundinum ætlar Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður sem þekkir ástand mála í þessum heimshluta betur en flestir aðrir Íslendingar flytja ávarp og tónlistarmennirnir Bjartmar Guðlaugsson og Rúnar Þór flytja nokkur lög við hæfi. Fundarstjóri er Heimir Már Pétursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hinseginn daga. "Síðan verður borin upp stutt ályktun með áskorun til stjórnvalda um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þrýsta á um friðsamlega lausn mála þarna. Auðvitað er Ísland ekki gerandi þarna en við getum þá lagt okkar litla lóð á vogarskálarnar og sýnt að almenningur hér er að hlusta og þrýstir á," segir Heimir. Heimir hvetur fólk til að mæta og sýna samstöðu með börnum, konum og körlum í Sýrlandi. Morð á saklausum óbreyttum borgurum fái aðeins þrifist ef umheimurinn standi þögull hjá og leyfi þeim að gerast. Þess vegna sé nauðsynlegt að almenningur um allan heim láti í sér heyra og krefjist þess að morðöldunni linni. "Núna hafa 20.000 manns fallið í valinn í Sýrlandi, það er 2000 fleiri en búa á Akureyri," segir Heimir til að setja mannfallið í íslenskt samhengi. Í gærkvöldi bárust fréttir af því að einhverjir hafa sett sig í samband við Jóhönnu Kristjónsdóttur vegna mótmælanna og haft uppi hótanir. "Það er einstaklega ósmekklegt að vera að Jóhönnu Kristjónsdóttur, sem er ákaflega vönduð kona og hefur ekki lagt annað til málanna en uppbyggilega hluti. Auðvitað eru alltaf einhverjir vanstilltir einstaklingar sem ekki geta setið á sér en þetta er friðsamlegur fundur sem er ætlað að hvetja til friðar í landi sem mikill ófriður ríkir í," segir Heimir. Þeir sem vilja styðja stríðshrjáð börn í Sýrlandi er svo bent á að fulltrúar Fatímusjóðsins, taka á móti styrktarframlögum á fundarsvæðinu. Fatímusjóðinn stofnaði Jóhanna Kristjónsdóttir árið 2005 og er honum ætlað að styrkja fátæk börn. 25.7.2012 14:04
Útgefnum vegabréfum fjölgaði um 22,5% milli ára í júní Í júní s.l. voru gefin út 6.932 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 5.658 vegabréf í júní í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 22,5% milli ára. 25.7.2012 10:36
Risalaxeldi í Berufirði fyrir vistvænar kröfur Nýtt félag sem keypti fiskeldi HB Granda í Berufirði hyggur á stórfellt laxeldi á umhverfisvænum forsendum. Sveitarstjóri Djúpavogshrepps segir tugi starfa geta skapast á næstu árum og að framtakið verði atvinnulífinu mikil lyftistöng. 25.7.2012 08:30
Lögregla fylgist ekki með ólöglegum hjólum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekkert eftirlit með rafhjólum og reiðhjólum sem hafa verið mótorvædd. Mótorknúin hjól mega ekki fara hraðar en 25 kílómetra á klukkustund án þess að þau séu skráð sem létt bifhjól. Lögreglan segist vita um dæmi þess að innsigli á hjólunum hafi verið rifin svo þau fari hraðar. 25.7.2012 08:00
Æ fleiri nýta sér veginn um Lyngdalsheiði Æ fleilri ferðamenn og heimamenn nýta sér nýja veginn um Lyngdalsheiði á milli Þingvalla og Laugarvatns og nemur aukningin það sem af er ári um átta prósentum samanborið við sama tímabil í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. 25.7.2012 07:03
Neyðast til að laga vegmerkingar Vegagerðin hefur sent vinnuhóp til þess að laga vegmerkingar við þéttbýlishlið sem búið er að koma upp við innganginn að þjóðgarðinum á Þingvöllum. 25.7.2012 07:00
Yfirleitt góð aflabrögð á makrílveiðunum Stærstu makrílveiðiskipin eru nú flest djúpt suðvestur af landinu og eru aflabrögð yfirleitt góð. 25.7.2012 06:56
Tillaga geti fallið vel að byggð Húsafriðunarnefnd telur að vinningstillaga um skipulag í umhverfi Ingólfstorgs geti í stórum dráttum fallið vel að núverandi byggð á svæðinu. Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar. 25.7.2012 06:00
Vill fá ferðamenn í sjósund í Skagafjörð Sjósundkappinn og listamaðurinn Benedikt Lafleur hefur uppi áform um að koma á laggirnar ferðaþjónustu tengdri sjósundi. Benedikt fékk í síðustu viku ferðaskipuleggjandaleyfi og ætlar að hefja tilraunaferðir á næstu vikum en ryðja sér síðan braut á ferðamarkaðnum næsta sumar. 25.7.2012 05:15
Lögreglumaðurinn dansaði á vakt Lögreglumaður hefur heldur betur slegið í gegn í Bretlandi eftir frammistöðu sína þegar hlaupið var með ólympíueldinn í Kent-hverfinu í Lundunum í síðustu viku. Í stað þess að standa beinn og halda fólkinu frá hlaupaleiðinni tók hann sporið og dansaði fyrir fólkið. Myndskeiðið hefur nú slegið í gegn á Youtube.com og hafa yfir 150 þúsund manns horft á það á nokkrum dögum. Sjón er sögu ríkari, eins og sést í meðfylgjandi myndbandi. 24.7.2012 22:12
Féll af baki Kona féll af hestbaki á Arnarbælisvegi, sem er á milli Hveragerðis og Selfoss, síðdegis í dag. Hún var í reiðtúr með hópi knapa þegar slysið átti sér stað. Konan var flutt til Reykjavíkur með sjúkrabíl en að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki talið að konan sé alvarlega slösuð. 24.7.2012 21:53
Karlinn sem klifið hefur Kerlinguna Móbergsdranginn Kerlingin er ekki árennilegur. Þó er vitað um einn mann sem náði lykkju utan um haus hennar og kleif þar upp. Það er Ágúst Bjartmars en hann er einnig badmintonmeistari og siglir enn trillu sinni þó 88 ára sé. 24.7.2012 20:30
11 ára skáti bjargaði lífi móður sinnar Amelía Rún Gunnlaugsdóttir, skáti frá Grundarfirði, fékk í gær bronskross Bandalags íslenskra skára. Það var skátahöfðinginn Bragi Björnsson sem veitti Amelíu krossinn en hann er eitt af hetjudáðamerkjum skátanna og er veittur skáta sem sýnt hefur hreystilega framgöngu er slys ber að garði. 24.7.2012 20:11
Ætla að endurtaka frægasta fangelsisflótta sögunnar Þrír íslenskir sundkappar ætla að endurtaka einn frægasta fangelsisflótta sögunnar í næstu viku og synda yfir San Francisco-flóa frá Alcatraz fangelsinu. Sundkapparnir búast við köldu vatni, hákörlum og sterkum hafstraumum. 24.7.2012 20:03
Tónleikar til styrktar Nikólu í Fríkirkjunni í kvöld Fjölmargir landsþekktir tónlistarmenn koma fram á tónleikum í Fríkirkjunni í kvöld til styrktar hinni fjórtán ára gömlu Nikólu, sem hefur barist við krabbamein í um ár. Við hittum hetjuna ungu nú rétt fyrir fréttir þar sem hún var að hafa sig til fyrir tónleikana. 24.7.2012 19:14
Íslendingar reykja, drekka og borða minna sælgæti en fyrir hrun Efnahagshrunið hefur haft jákvæð áhrif á heilsu landsmanna. Dregið hefur úr reykingum, drykkju og neyslu sælgætis. 24.7.2012 18:45
Ólafur Ragnar hitti Bjarna geimfara Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fund með Bjarna Tryggvasyni geimfara sem er í heimsókn hér á landi. Bjarni fór með geimferju á braut umhverfis jörðu árið 1997 en hann var fyrsti maðurinn fæddur á Norðurlöndunum til að fara út í geiminn. Á fundinum dag ræddu þeir um möguleika á samvinnu við íslenska aðila á sviði tækni og vísinda, að því er fram kemur á vef forsetans. 24.7.2012 18:17
Erfitt að átta sig á því hverjir berjast gegn hverjum Hernaðaraðgerðir erlendra þjóða gegn ríkisstjórn Assads forseta Sýrlands geta haft geysileg ruðningsáhrif í för með sér, að mati sérfræðings í málefnum Mið-Austurlanda. 24.7.2012 19:58
Verða væntanlega sendir úr landi Útlendingastofnun hefur synjað báðum mönnunum sem fóru um borð í vél Icelandair um landvistarleyfi hér á Íslandi. Annar þeirra unir niðurstöðunni, en óvíst er um mál hins. Mennirnir verða því væntanlega sendir af landi brott þegar lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið meðferð mála þeirra og þau hafa farið fyrir dóm. Fram kom í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum fyrr í dag að athæfi mannanna, þegar þeir laumuðust um borð í vél Icelandair, eru talin varða við almenn hegningarlög og lög um loftferðir. Töluverð umræða skapaðist um mál mannanna þegar þeir komu hingað til lands en þeir villtu á sér heimildir og sögðust vera mun yngri en þeir eru að öllum líkindum. 24.7.2012 16:33
Lýst eftir Rebekku Rut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rebekku Rut Baldvinsdóttur, 15 ára. Rebekka er ca. 156 sentimetrar á hæð með sítt skollitað hár og grannvaxin. Rebekka var klædd í brúna hettupeysu með blettatígurs munstri og loðkraga, svartar Pink leggins með ljós blárri rönd og doppum efst og eldrauða Reebook skóm. 24.7.2012 16:08
Icelandair krefur hælisleitendurna um skaðabætur Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið rannsókn á máli hælisleitendanna tveggja sem laumuðust inn í flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Talið er að brot þeirra varði við almenn hegningarlög og log um loftferðir. Auk þess að hafa laumast inn í flugvélina eru mennirnir taldir hafa reynt að laumast með Eimskipum til Bandaríkjanna. Annar mannanna er að auki grunaður um þjófnaði, en mennirnir stálu meðal annars fatnaði til að líkjast starfsfólki Keflavíkurflugvallar. 24.7.2012 16:01
Afar óvenjulegt atvik á Hringbrautinni "Þetta er mjög óvanalegt og ég veit ekki hvað gæti hafa valdið þessu,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, um það þegar kviknaði í tveimur bílum eftir að árekstur varð á Hringbraut í gær. Einar Magnús segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar um atvikið. 24.7.2012 15:33
Kynjaleiðrétting var nauðsyn en ekki val hjá Hrafnhildi "Kynleiðrétting er ekki val, hún er nauðsyn,“ segir Hrafnhildur sem eftir 26 ára þögn tilkynnti fjölskyldu sinni og vinum að hún væri ekki strákur - heldur stelpa. Hún hafði þá lengi reynt að bæla niður tilfinningar sínar og lifa sem strákurinn Halldór Hrafn. 24.7.2012 14:26
Tónleikarnir í Hljómskálagarðinum verða nýttir í myndband Krakkarnir í Of Monsters and Men segja að myndatökur frá tónleikum í Hljómskálagarðinum hafi gengið svo vel að þau hyggjast nýta það í tónlistarmyndband. Þau hafa því biðlað til gesta á tónleikunum um aðstoð. 24.7.2012 14:07
Skrifar greinar fyrir vefsíðu Locarno Íslendingurinn Ari Gunnar Þorsteinsson hefur ásamt sjö öðrum verið valinn til að skrifa greinar fyrir vefsíðu Locarno kvikmyndahátíðarinnar, sem er ein sú virtasta í heimi. 24.7.2012 13:04
Til stóð að senda laumufarþegann úr landi Hælisleitandinn sem fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr á leið til Bandaríkjanna í fyrrakvöld hafði áður fengið ákvörðun Útlendingastofnunar um að hann yrði sendur úr landi til tiltekins Evrópulands. Það mál er nú í kæruferli í innanríkisráðuneytinu. Þetta segir Kristín Völundardóttir með þeim fyrirvara að maðurinn sé sá sem hann segist vera. 24.7.2012 12:10
Merkið sett til að auka öryggi Mynd sem hefur gengið á Netinu og sýnir vegamerkingu á miðri akbraut á leiðinni til Þingvalla hefur vakið mikla furðu. Jafnvel hefur verið fullyrt að merkið kunni að valda árekstri. 24.7.2012 11:59
Laumufarþegi fannst um borð í skipi frá Íslandi Laumufarþegi fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr, sem var á leiðinni frá Íslandi Bandaríkjanna. Þetta staðfestir Kristín Völundardóttir, forstjóri útlendingastofnunar í samtali við Vísi. Maðurinn fannst í fyrrakvöld. Talið er að þarna sé um að ræða hælisleitanda sem hafi verið hér á landi. Fréttastofa ræddi við tvo flóttamenn á Fit Hostel á dögunum þar sem fram kom í máli þeirra að félagi þeirra væri á leið frá Íslandi um borð í skipi. 24.7.2012 11:02
Tæp tíu tonn á sjóstangveiðimóti Sjóstangveiðifélag Snæfellsness hélt opið sjóstangveiðimót síðustu helgi í Ólafsvík. Keppendur voru 33 og var róið á tíu bátum klukkan sex um morgun báða helgardagana og veitt til tvö. Aflinn var allur vigtaður og nam 9,5 tonnum í heild. 24.7.2012 10:59
Íbúar standa sig vel í sorpflokkun Íbúar Snæfellsbæjar standa sig vel í flokkun á sorpi. Fyrstu endurvinnslutunnurnar voru settar upp í júní og eftir fyrstu sorplosun var endurvinnanlegt sorp 48% af heildar sorpmagni. 24.7.2012 10:36
Upprættu kannabispartý í miðborginni Lögreglan upprætti kannabispartý í íbúðarhúsi í miðborginni nótt. Upphaflega var hún kölluð á vettvang vegna hávaða frá samkvæminu. 24.7.2012 07:01
Siglufjarðarvegi lokað við Strákagöng Siglufjarðarvegi, vestan við Strákagöng, var lokað í gærkvöldi vegna vatnsaga og skriðufalla. 24.7.2012 06:58
Hópur gæsa olli umferðarslysi á Hringbraut Hópur gæsa olli umferðarslysi á Hringbraut, vestan Njarðargötu, um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi, þar sem einn maður slasaðist og tveir bílar eyðilögðust í bruna. 24.7.2012 06:28
Lög um reynslulausn verði gerð skýrari Umboðsmaður Alþingis telur að skýra þurfi löggjöf um útreikning á afplánunartíma og reynslulausn fanga. Þetta kemur fram í áliti Róbert R. Spanó, setts umboðsmanns Alþingis, um útreikning refsitíma og hvenær fangar eigi rétt á reynslulausn. 24.7.2012 11:00
Gnarr fer á færeyskt Gaypride í Þórshöfn „Búningurinn verður surprise,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, sem tekur þátt í gleðigöngunni Faroe Pride í Færeyjum á föstudaginn. 24.7.2012 09:15
Öflugur jarðskjálfti við Grímsey Allt hefur verið með kyrrum kjörum í Grímsey í nótt, eftir að heimamenn fundu greinilega fyrir skjálfta upp á 3,7 á richter, sem varð um 27 kílómetra aust-suðaustur af eynni rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi. 24.7.2012 07:05
Lokað fyrir strandveiðar á austursvæðinu Lokað var fyrir strandveiðar á austursvæðinu á miðnætti, þar sem júlíkvótinn var uppurinn. Það er í fyrsta sinn sem mánaðarkvóti klárast á austursvæðinu í sumar. 24.7.2012 06:56
Telja ríkið vanbúið í leyfismálum Þrjár stjórnsýslukærur hafa borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að leyfi Hraðfrystihússins Gunnvarar fyrir eldi á 7.000 tonnum af laxi og regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi skuli ekki háð umhverfismati. 24.7.2012 06:45
Endurreiknar 57,7 milljarða Tryggingastofnun þarf að endurreikna 57,7 milljarða króna af lífeyri og öðru bótafé eftir að uppgjör samkvæmt tekjum eftir skattframtali hefur verið gert. 24.7.2012 06:00
Engin stefna um virkjanir Þar til Rammaáætlun hefur verið samþykkt er stefna ríkisstjórnar í virkjanamálum aðeins orðin ein. Ekkert er því til fyrirstöðu að sækja um rannsóknarleyfi á svæðum sem eru í verndarflokki. 24.7.2012 04:30
Kviknaði í bíl á Hringbraut - myndir Eldur kom upp í bifreið sem keyrði aftan á aðra á Hringbrautinni rétt eftir klukkan tíu í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var enginn fluttur á slysadeild en ekki er vitað á þessari stundu hvers vegna eldur gaus upp. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu á svæðinu, en Hringbrautinni var lokað um tíma. Fjöldi fólks var á staðnum að fylgjast með slökkviliðinu að ráða niðurlögum eldsins og þá var nokkuð um forvitna ökumenn sem stoppuðu og horfðu á slökkvistarf. Talið er að annar bíllinn sé gjörónýtur og hinn að minnsta kosti mikið skemmdur. 23.7.2012 22:43