Risalaxeldi í Berufirði fyrir vistvænar kröfur 25. júlí 2012 08:30 Sveitarstjórinn segir sjávarútveg vera hryggjarstykkið í atvinnulífi Djúpavogshrepps auk þess sem ferðaiðnaður eigi þar stóran þátt. Hann vonast til að mikil uppbygging fylgi laxeldi í Berufirði. Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta er fiskur sem keppir á öðrum mörkuðum en hefðbundið laxeldi,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, um áform Fiskeldis Austfjarða ehf. í Berufirði. Fiskeldi Austfjarða keypti á dögunum fiskeldi HB Granda í Berufirði. Þar var nokkuð þorskeldi sem lagt var af eftir söluna. Fiskeldi Austfjarða réði hins vegar alla þrjá starfsmenn HB Granda á staðnum og hefur þegar sett fimmtíu þúsund laxa í sjókvíarnar í Berufirði. Það er þó aðeins blábyrjunin því á árinu 2014 er ætlunin að um tvær milljónir fiska verði í stöðinni. Það segir Gauti bæjarstjóri að samsvari á að giska sex þúsund tonna ársframleiðslu. „Það er talað um að innan ekki margra ára komi tugir manna til með að starfa við þetta og þessu fylgir umtalsverð uppbygging. Við erum líka sérstaklega ánægð með að þetta samræmist vel stefnu sveitarfélagsins um að vera á vistvænum nótum,“ segir Gauti. „Þeir nota til dæmis ekki litarefni eins og er yfirleitt notað til að fá kjötið í fiskinum rauðara og fóðrið sem þeir nota er samsett á annan hátt en hið hefðbundna.“ Aðspurður hvort slík magnframleiðsla þurfi ekki að fara í umhverfismat segir Gauti svo ekki vera. „Þeir taka við eldi frá HB Granda sem er með átta þúsund tonna leyfi, bæði fyrir þorsk og lax. Það geta menn fært á milli tegunda án þess að það sé stórmál,“ svarar hann. Ekki náðist í forsvarsmenn Fiskeldis Austfjarða í gær en í bókun sveitarstjórnar Djúpavogshrepps segir að þeir séu bjartsýnir á framhaldið enda hafi áætlanir staðist hingað til. Fyrirtækið vonist eftir góðu samstarfi við stjórnendur, starfsmenn og íbúa hreppsins. Tengt Fiskeldi Austfjarða sé félagið Náttúra fiskeldi ehf. í Þorlákshöfn. „Sveitarstjórn er þess fullviss að þessi jákvæða innspýting í atvinnumálin sem fyrirhuguð er á svæðinu eigi eftir að styrkja samfélagið á Djúpavogi í heild mjög mikið á komandi árum,“ segir í bókuninni. Gauti undirstrikar þó að atvinnuástandið á Djúpavogi sé ágætt. Sveitarfélagið sé það eina á Austurlandi þar sem íbúum hafi fjölgað á tveimur síðustu árum. „Okkar styrkur í gegn um tíðina hefur kannski legið í því að við erum þannig í sveit sett að við höfum aldrei verið að bíða eftir neinu. Það var aldrei neitt sem var alveg að koma og átti að redda okkur.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Erlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Sjá meira