Vill fá ferðamenn í sjósund í Skagafjörð 25. júlí 2012 05:15 Fimmhundraðasta leyfi Ferðamálastofu féll Benedikt í skaut svo nú er hann með pappíra upp á vasann til að fara með ferðamenn í sjósund. mynd/ferðamálastofa
Sjósundkappinn og listamaðurinn Benedikt Lafleur hefur uppi áform um að koma á laggirnar ferðaþjónustu tengdri sjósundi. Benedikt fékk í síðustu viku ferðaskipuleggjandaleyfi og ætlar að hefja tilraunaferðir á næstu vikum en ryðja sér síðan braut á ferðamarkaðnum næsta sumar. „Þar sem ég er nú hérna í Skagafirðinum þá mun ég náttúrulega nýta mér þessar kjöraðstæður á Reykjaströnd eins og sumir,“ segir hann en eins og menn vita tók Grettir Ásmundsson land þar þegar hann var eldfæralaus úti í Drangey. Á Reykjaströnd er síðan Grettislaug þar sem gott er að ylja sér eftir volkið. Enn fremur segir hann að hann muni bjóða upp á sjósundferðir víðar á landinu. Benedikt er að vinna að mastersverkefni um áhrif sjósunds á heilsuna og segir það verkefni krefjast ýmissa tilrauna og rannsókna. Eins er hann að undirbúa sig fyrir mikla sjósundferð sem hann vill reyndar ekki segja meira um á þessu stigi málsins. Í þeim tilgangi synti hann um síðustu helgi frá Hegranesi til Sauðárkróks sem er tæplega fimm og hálfs kílómetra sund. Hann segist vongóður um að þessari nýlundu verði vel tekið. Leyfið sem Benedikt fékk er það 500. sem Ferðamálastofa gefur út en þessar leyfisveitingar hafa verið á könnu Ferðamálastofu frá árinu 2006.- jse
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira