Innlent

Til stóð að senda laumufarþegann úr landi

BBI skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Mynd/Stefán
Hælisleitandinn sem fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr á leið til Bandaríkjanna í fyrrakvöld hafði áður fengið ákvörðun Útlendingastofnunar um að hann yrði sendur úr landi til tiltekins Evrópulands. Það mál er nú í kæruferli í innanríkisráðuneytinu. Þetta segir Kristín Völundardóttir með þeim fyrirvara að maðurinn sé sá sem hann segist vera.

„Það sem gerist, komi hann til baka, er að málið fer í bið eftir niðurstöðu úr ráðuneytinu," segir Kristín og telur jafnvel líkur á að málinu verði flýtt. Samkvæmt upplýsingum frá skipamiðlara stendur ekki til að snúa skipinu við en hins vegar er líklegt að maðurinn verði sendur til baka þegar skipið nær höfn þar ytra.

Maðurinn laumaðist að öllum líkindum um borð í skipið þegar það lá við festar við Miðbakkann í Reykjavík. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis ræddi við tvo flóttamenn á Fit Hostel fyrir helgi þar sem þeir fullyrtu að félagi þeirra væri á leið frá Íslandi um borð í skipi. Ekki ber á öðru en að þarna sé sá maður á ferðinni.

Ekki hefur komið fram hvort maðurinn var undir langa siglingu búinn, en siglingin milli landanna tekur viku. Því hefur maðurinn þurft að vera einhverjum vistum búinn fyrir slíka siglingu.

Ef maðurinn hefði slysast upp í t.d. flutningaskip frá Eimskipum hefði það getað haft slæmar afleiðingar fyrir félagið. „Þá væri þetta stórt mál. En af því þetta er bandarískt rannsóknarskip þá hefur þetta engar sérstakar afleiðingar," segir Björn Hólmsteinsson, talsmaður skipamiðlarans TVG Zimsen cruise agency.


Tengdar fréttir

Laumufarþegi fannst um borð í skipi frá Íslandi

Laumufarþegi fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr, sem var á leiðinni frá Íslandi Bandaríkjanna. Þetta staðfestir Kristín Völundardóttir, forstjóri útlendingastofnunar í samtali við Vísi. Maðurinn fannst í fyrrakvöld. Talið er að þarna sé um að ræða hælisleitanda sem hafi verið hér á landi. Fréttastofa ræddi við tvo flóttamenn á Fit Hostel á dögunum þar sem fram kom í máli þeirra að félagi þeirra væri á leið frá Íslandi um borð í skipi.

Auðvelt að laumast inn í flugvélina

Hælisleitendurnir sem fundust um borð í flugvél Icelandair fyrir um tveimur vikum segja að auðvelt hafi verið að komast fram hjá öryggisgæslunni og inn í vélina.

"Núna er vinur okkar á leið til Ameríku í skipi“

Hælisleitendur sem fundust um borð í flugvél fyrir tveimur vikum segja að vini sínum hafi tekist að koma sér úr landi og sé nú á leið til Bandaríkjanna. Þeir eru sjálfir staðráðnir í að reyna aftur að komast úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×