Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Landsbankamenn ósáttir við að Kvos fékk að kaupa Plastprent Landsbankinn er ósáttur við að fyrirtæki sem nýlega fékk milljarða afskriftir hjá bankanum hafi fengið að kaupa Plastprent af Framtakssjóði Íslands. Fulltrúi bankans í stjórn sjóðsins greiddi atkvæði gegn samkomulaginu. 23.7.2012 18:39
Við erum fullorðið fólk og getum alveg stjórnað hvað við viljum gera Íbúi á Hrafnistu segir að talað sé af vanvirðingu um eldri borgara í umræðunni um vínsölu á dvalarheimilum. Forstjóri Hrafnistu segir að umræðan hafi komið á óvart. 23.7.2012 19:43
Verð á metani hækkaði um 18 krónur um helgina Verð á metaneldsneyti hækkaði um átján krónur á rúmmetran um helgina. Það er meðal annars til þess að Sorpa geti ráðist í framkvæmdir til að framleiða meira metaneldsneyti svo hægt sé að anna eftirspurn. 23.7.2012 19:29
Telja að parið sé komið til byggða Talið er öruggt að erlenda parið sem leitað hefur verið að í dag sé komið til byggða, segir varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögreglan hefur fengið upplýsingar um ferðir fólksins eftir að myndir birtust af þeim í fjölmiðlum í dag. "Við erum áhyggjulausir. Við erum ekki hræddir um að þau sé á fjöllum,“ segir varðstjórinn. Ekkert hafði spurst til parsins frá 14. júlí síðastliðnum. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en hefur ekki gert það. Lögreglan mun þó halda áfram að reyna ná sambandi við fólkið. 23.7.2012 17:46
Brynjar: Kröfur öryrkja hafa ekkert með mannréttindi að gera Brynjar Níelsson, fyrrum formaður Lögmannafélagsins, tekur undir með Sigurði Líndal að kröfur Öryrkjabandalagsins (ÖBÍ) um ógildingu forsetakosninganna séu frekja. Í nýjum pistli á Pressunni segir hann að vel megi vera að einhverjum fötluðum kjósendum finnist betra að njóta aðstoðar nákominna aðila heldur en aðstoðar kjörstjórnar. "Þau þægindi hafa hins vegar ekkert með réttlæti að gera hvað þá mannréttindi," segir hann. 23.7.2012 16:04
Bensínþjófur slapp án refsingar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 35 ára gamlan karlmann fyrir að stela bensíni á bíl sinn af bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Hann stal bensíni í þrjú skipti, af N1 og Skeljungi, fyrir samtals um 30 þúsund krónur. Manninum var ekki gerð refsing en hann mun þurfa að endurgreiða Skeljungi bensínið og vexti í ofanálag. 23.7.2012 13:33
Skátar létu rigninguna ekkert á sig fá Hvorki íslenskir skátar, né erlendir gestir þeirra á Landsmóti skáta, sem sett var í gær, létu rigningu á sig fá. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussiaeff, eiginkona hans, heimsóttu skátana og slógu þau á létta strengi með mótsgestum. Í setningarávarpi sínu ræddi Hrólfur Jónsson mótsstjóri meðal annars 100 ára sögu skátahreyfingarinnar á Íslandi. Ávarpi Hrólfs lauk skyndilega þegar jarðálfar og eldspúandi púkar brutust fram á sjónarsviðið en þar var á ferðinni skrílsleiftur (e. Flash-mob) sem undirbúið hafði verið af yfir 70 skátum af fjórum þjóðernum. Áður en langt um leið sungu og dönsuðu viðstaddir við sigurlag Eurovision 2012, Euphoria, áður en mótseldurinn var kveiktur við mikinn fögnuð. 23.7.2012 11:12
Þarf ekki að greiða vask af lyftum fyrir fatlaða Lögum samkvæmt bar tollstjóra að endurgreiða virðisaukaskatt af tveimur lyftum fyrir fatlað fólk sem sveitarfélag fékk að gjöf til nota í sundlaug. Þetta var niðurstaða Umboðsmanns Alþingis í máli gefandans. 23.7.2012 10:09
Sýna stuðning við Hinsegin daga í verki Iceland Express styrkir Hinsegin daga í Reykjavík og til að sýna þann stuðning í verki er vönduðu dagskrárriti hátíðarinnar dreift um borð í flugvélum félagsins. Þá skarta flugfreyjur okkar regnbogaslæðum og flugþjónar regnbogabindum til að minna á hátíðina sem hefst hinn 6. ágúst næstkomandi og stendur til 12. ágúst. 23.7.2012 09:44
Ölóður maður reyndi að ganga í skrokk á lögreglumönnum Til átaka kom þegar ölóður ökumaður ætlaði að ganga í skrokk á lögreglulmönnum, sem höfðu stöðvað för hans í Kópavogi í nótt. 23.7.2012 06:42
Skærgrænt hjól við sumargötu Reykjavík öðlaðist í morgun nýtt kennileiti þegar skærgrænt hlið úr notuðu reiðhjóli var sett upp á Laugarvegi til að hindar bílaumferð. Hjólahliðið vakti strax athygli ferðamanna sem stilltu sér unnvörpum upp við hjólin og brostu í myndavélar. 23.7.2012 16:15
Eldurinn kom upp í rafmagnstöflu Orsakir þess að eldur kom upp í skipinu Maggý VE á fimmtudag í síðustu viku eru raktar til þess að loki við lensidælu í vélarrúmi hafi ekki lokast og síðuloki virkaði ekki. Sjór lak því inn um lensirör skipsins og komst þannig inn í vélarrúmið. Í framhaldi af þessu kviknaði eldur í rafmagnstöflu. Eins og fram kom á fimmtudag voru sjö í bátnum þegar eldurinn kom upp. Björgunarsveitabátar úr Grindavík og Vestmannaeyjum voru kallaðir til aðstoðar og jafnframt þyrla Landhelgisgæslunnar. Báturinn var svo dreginn til hafnar í Vestmannaeyjum. 23.7.2012 16:10
Starfsmenn sérstaks saksóknara enn til skoðunar Rannsókn Ríkissaksóknara á málum tveggja starfsmanna embættis sérstaks saksóknara, þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar, stendur enn yfir. Samkvæmt upplýsingum frá Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, er búist við að henni ljúki á næstu vikum. Mennirnir tveir eru grunaðir um brot á þagnaskylduákvæði í störfum sínum þegar þeir seldu þrotabúi Milestone upplýsingar sem þeir urðu sér úti um í störfum sínum fyrir sérstakan saksóknara. Embætti sérstaks saksóknara kærði mennina í maí síðastliðnum og hefur rannsókn staðið yfir síðan þá. 23.7.2012 15:47
Eldmar, Ebonney og Einbjörg voru öll samþykkt Mannanafnanefnd samþykkti þrjú ný eiginnöfn þann 11. júlí síðastliðinn. Um er að ræða karlmannsnafnið Eldmar og kvenmannsnöfnin Ebonney og Einbjörg. Í rökstuðningi mannanafnanefndar segir að nöfnin taki íslenskri beygingu í eignarfalli og samræmist að öðru leyti lögum um mannanöfn. 23.7.2012 15:38
Rækjuveiðar bannaðar og leyfðar aftur Sjávarútvegsráðuneytið hefur fellt úr gildi reglugerð sem sett var á fimmtudaginn síðasta um stöðvun úthafsrækjuveiða. Atburðinn má að öllum líkindum rekja til klaufaskapar í ráðuneytinu eða þess að afladagbækur voru ekki skoðaðar nógu vel. 23.7.2012 15:18
Leit hafin að erlendu pari Ekkert hefur spurst til þýsks pars sem er á ferðalagi hér á landi frá 14. júlí síðastliðnum. Lögreglan á Hvolsvelli er að hefja leit og eftirgrennslan að parinu. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en hefur ekki gert það. Þegar heyrðist til þeirra þann 14. júlí voru þau stödd austan Torfajökuls. Lögreglan biður þá sem geta mögulega gefið einhverjar upplýsingar um fólkið að hafa samband í síma 4884110. 23.7.2012 14:10
Íslenskir ólympíufarar láta umferðartafir ekki spilla stemningunni Íslensku ólympíufararnir eru lagðir af stað út en Andri Stefánsson, fararstjóri íslensku keppendanna, kom í Ólympíuþorpið á föstudaginn var. Hann segir að stemningin í hópnum sé góð. 23.7.2012 13:56
Velti bíl við að sveigja frá lömbum Fjórir erlendir ferðamenn komust í hann krappann þegar lömb hlupu skyndilega upp á þjóðveginn og í veg fyrir bíl þeirra í Hestfirði við sunnanvert Ísafjarðardjúp í gærkvöldi. 23.7.2012 12:13
Vinsældir Ísafjarðar hjá siglingafólki aukast Skútuheimsóknum á Ísafirði hefur fjölgað ár frá ári. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri á Ísafirði, segir að draumurinn sé koma upp góðri aðstöðu, ráðast í markaðsátak og gera Ísafjörð að nokkurs konar skútubækistöð norðursins. 23.7.2012 11:24
Gulir hundar þurfa meira pláss Ef hundur er með gulan borða, gula slaufu eða eitthvað með gulum lit á taumnum eða hálsbandinu þá er óráðlegt að nálgast hann. Þetta eru skilaboð herferðar sem nefnist Guli hundurinn og er að ryðja sér til rúms hér á landi. 23.7.2012 10:40
Rifjar upp afskriftir aðalkeppinautanna "Er þetta réttlæti?" spyr Kristþór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ísafoldarprentsmiðju ehf., í grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fjallar um afskriftir skulda aðalkeppinauta prentsmiðjunnar. 23.7.2012 09:33
Hátt í 30 þúsund eiga inneign hjá Tryggingastofnun Um 29 þúsund bótaþegar eiga inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins eftir síðasta ár, en endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins liggur fyrir. Í flestum tilfellum er um óverulegar upphæðir að ræða því að um 70% eiga inneign undir 100 þúsund krónum. Aftur á móti eru um 14 þúsund sem hafa fengið ofgreitt á síðasta ári og Tryggingastofnun á því kröfu á þessa aðila. Þar er líka í flestum tilfellum um óverulegar upphæðir að ræða því að um 70% þeirra skulda Tryggingastofnun innan við 100 þúsund krónur. 23.7.2012 09:30
Fá ekki vínveitingaleyfi að sinni "Það er formið sem setur okkur stólinn fyrir dyrnar,"? segir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkur, um breytingu á fyrri afgreiðslu embættis hennar á umsókn Hrafnistu um vínveitingaleyfi. 23.7.2012 08:00
Virkja íbúana gegn lúpínunni "Nú er tíminn til að herja á þennan skaðvald sem ógnar íslensku flórunni á stórum svæðum hér í og við þéttbýlið. Íbúum sem vilja leggja framtakinu lið eru gefnar frjálsar hendur með að slá lúpínuna niður hvar sem hana er að finna og mega byrja strax,? segir í ákalli umhverfisnefndar Djúpavogshrepps og áhugahóps um eyðingu lúpínu. 23.7.2012 07:00
Teknir með kannabis og vopn Þegar lögreglumenn ætluðu að hafa tal af ökumanni bíls í Breiðholti, við venjubundið eftirlit upp úr miðnætti, gaus kannabislykt á móti þeim. 23.7.2012 06:49
Handtekinn eftir innbrot í apótek Lögreglunni var tilkynnt um að maður hefði brotist inn í apótek í Kópavogi laust fyrir klukkan fimm í morgun. 23.7.2012 06:48
Ferðamenn sluppu ómeiddir frá umferðaróhappi Fjórir erlendir ferðamenn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum í Hestfirði við sunnanvert Ísafjarðardjúp í gærkvöldi. Bíllinn hafnaði á réttum kili, en var óökufær. 23.7.2012 06:47
Allir komust til og frá Eyjum með Herjólfi í gærkvöldi Allir farþegar, sem áttu pantað far með Herjólfi til og frá Eyjum í gær, komust leiðar sinnar í tveimur ferðum skipsins í gærkvöldi til Landeyjahafnar. 23.7.2012 06:23
Íbúð gjöreyðilagðist í eldsvoða á Tálknafirði Engan sakaði þegar íbúð í fjölbýlishúsi á Tálknafirði gjöreyðilagðist í eldi í gærkvöldi. 23.7.2012 06:16
Vilja að ríkið hefji rannsóknir Skotveiðifélag Íslands, Skotvís, skorar á hið opinbera að hefja rannsóknir á þeim áhrifum sem kynnu að fylgja því að koma hreindýrahjörðum til Vestfjarða. Sigmar B. Hauksson, sem haft hefur forgöngu um málið, segir að málefnið hafi verið rætt ýtarlega og eftir standi að rannsaka hvort smithætta yrði þessu samfara og hvort dýrin myndu þrífast vel þar. 23.7.2012 06:00
Um sex þúsund leirdúfur liggja Nú stendur yfir hin svokallaða Dúfnaveisla en hún býður meðal annars upp á það að menn án byssuleyfis geti gert sér ferð á næsta leirdúfnavöll og fengið að skjóta á leirdúfu undir handleiðslu reyndra manna. 23.7.2012 06:00
Klætt steini á tveimur árum Vestmannaeyjar Þjóðhátíðarnefndin í Vestmannaeyjum hefur fengið tveggja ára frest til að ganga endanlega frá nýja þjónustuhúsinu í Herjólfsdal. Bæjarstjórnin hafði sett ófrávíkjanleg skilyrði um að húsið verði klætt með náttúrusteini. Að auki á að klæða þak þess með grasi. Bæjarstjórnin kveðst hafa fullan skilning á því að þessar framkvæmdir séu bæði dýrar og tímafrekar og veitir þjóðhátíðarnefndinni áðurnefndan frest.- 23.7.2012 06:00
Þrengt að botnvörpuveiðum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) samþykkti á fimmtudag að banna veiðar ákveðinna fisktegunda utan 200 mílna fiskveiðilögsögunnar í Norðaustur-Atlantshafinu. Tegundirnar eru allar því marki brenndar að vera botnsæknar og hafa verið sóttar með botnvörpum. 23.7.2012 05:00
Þarf vefsíu gegn barnaklámi Lögregla telur mikilvægt að Ísland gangi inn í samstarf um netvarnir til að sporna gegn dreifingu myndefnis sem sýnir börn á kynferðislegan hátt. Samkvæmt nýjum lögum liggur allt að tveggja ára fangelsi við því að skoða slíkt efni á netinu. Norsk vefsía stöðvar þúsundir heimsókna á barnaklámssíður þar í landi á hverjum degi. 23.7.2012 05:00
Hollenskur bergrisi í Almannagjánni Mér fannst það bara alveg borðleggjandi að láta risa stíga út úr berginu, ég er jú á Íslandi þar sem tröll og ýmsar vættir ráða ríkjum,? segir hollenski hreyfimyndaframleiðandinn Auke de Vries. Hann gerði myndskeið þar sem bergrisi brýst út úr berginu í Almannagjá. 23.7.2012 05:00
Vopnfirðingar óttast um sitt heldra fólk Starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði eru uggandi en yfirmenn Heilbrigðistofnunar Austurlands tilkynntu starfsmönnum hjúkrunarheimilisins, á fundi sem boðað var til 26. júní síðastliðinn, að þeim yrði sagt upp. Þetta segir Steingerður Steingrímsdóttir, formaður stjórnar Austur-landsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands. 23.7.2012 04:00
Fjórðungsaukning á verðmæti Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa jókst um fjórðung fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við sama tíma í fyrra. Verðmætið nam 58,5 milljörðum króna í ár, en 46,6 í fyrra. Það er aukning um 11,9 milljarða, eða 25,5 prósent, á milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. 23.7.2012 04:00
Ekki merkt hvaðan grænmetið kemur "Í sumum verslunum eru haugar af erlendu grænmeti í lausu í grænum plastkössum merktum okkur. Þetta er sárt að sjá þegar nóg er til af íslensku grænmeti. Þegar ekki kemur fram að um erlent grænmeti sé að ræða telur neytandinn sig væntanlega að vera að kaupa íslenska tómata vegna kassanna sem þeir eru í. Það eru þar að auki skýr lög um að neytandinn eigi að vita hvaðan varan kemur,? segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna. 23.7.2012 03:00
"Þyngri dómur en ég bjóst við“ "Þetta er þyngri dómur en ég bjóst við," segir Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi fangelsisstjóri á Kvíabryggju, sem fyrir helgi var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að draga sér fé og muni frá fangelsinu, samtals að andvirði 1,6 milljóna. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir. 23.7.2012 02:00
Bensínþjófur þarf að greiða bensínið til baka Karlmaður var í dag dæmdur til að greiða Skeljungi skaðabætur en hann stal þaðan bensíni fyrir tæplega 20 þúsund krónur árið 2011. Hann var einnig ákærður fyrir að stela bensíni frá N1 í Ártúnshöfða en þar sem fulltrúi frá N1 mætti ekki við þingfestingu málsins þurfti hann ekki að greiða þeim skaðabætur. Maðurinn er fæddur árið 1976 en hann rauf skilorð með brotunum. Honum verður þó ekki gerð sérstök refsing - en hann þarf þó að borga bensínið til baka, eins og áður sagði. 23.7.2012 18:18
Landsmót skáta sett Búið er að setja Landsmót skáta við Úlfljótsvatn. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ávarpaði gesti við setningu mótsins. Talið er að um 3.000 manns sæki mótið í ár. 22.7.2012 21:16
Lítil hetja sigraðist á sjaldgæfu krabbameini Sigrúnu Láru Kjartansdóttur var vart hugað líf þegar hún greindist með beinkrabbamein einungis fimm mánaða gömul. Í dag er hún tæplega tveggja ára og tókst eftir tíu mánaða meðferð að sigrast á krabbanum. Mamma hennar mun á morgun leggja af stað í göngu til styrktar rannsóknum á þessu meini. 22.7.2012 20:30
Fjöldi mála á síðustu stundu Kaupþing höfðaði tugi riftunarmála í lok júní þegar frestur slitastjórnarinnar til að höfða slík mál rann út. Mörg málanna varða endurkaup á skuldabréfum sem slitastjórn telur að líta beri á sem endurgreiðslu skulda fyrir gjalddaga. 22.7.2012 19:45
Versta fjöldamorð norðurlanda á okkar tímum Fjöldamorðin í stjórnarráðshverfinu í Ósló og Útey eru þau versta á norðurlöndum á okkar tímum. Ljóst er að voðaverkin eru afrakstur margra ára undirbúnings Anders Behring Breivik. Afleiðinga þeirra verður þó fundið um ókominn ár. 22.7.2012 19:15
"Þetta var erfitt en líka ofboðslega gott" Norðmenn minntust þess í dag að eitt ár er liðið frá voðaverkunum í Útey og Osló þar sem fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik drap 77 manns og særði 242. Formaður ungra jafnaðarmanna sem viðstödd var minningarathöfn í Útey í dag segir daginn hafa verið óraunverulegan. 22.7.2012 18:30