Fleiri fréttir Erfið staða hjá Samkeppniseftirlitinu Fjárheimildir Samkeppniseftirlitsins hafa dregist saman um átta prósent á sama tíma og málafjöldi hefur aukist um áttatíu prósent. Þessi staða gengur ekki upp til lengdar, segir forstjóri eftirlitsins. 8.4.2012 18:30 Áhyggjuefni að færri feður fari í fæðingarorlof Velferðarráðherra segir það áhyggjuefni að feðrum sem taka fæðingarorlof fari fækkandi. Verið sé að skoða að hækka aftur hámarksgreiðslur Fæðingarorlofssjóðs til að bregðast við þessu. 8.4.2012 12:30 Karl segir siðferðisgildin ekki horfin úr þjóðarvitundinni Hátíðarguðsþjónustum er nú að ljúka um allt land, en í Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, predikaði í Dómkirkjunni klukkan átta í morgun. Þar sagði hann gömlu, góðu siðferðisgildin ekki horfin úr vitund þjóðarinnar. 8.4.2012 11:40 Danir vilja pólitískan fanga heim Utanríkisráðherra Danmerkur, Villy Soevndal, hefur óskað eftir því að yfirvöld í Barein framselji pólitíska fangann Abdul al-Khawaja til Danmerkur. 8.4.2012 10:45 Lítið skíðafæri á landinu í dag Nánast ekkert skíðafæri er á landinu í dag. Lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli sem og í Oddskarði en þar er rigning og mjög blautur snjór. 8.4.2012 10:30 Óvissa ríkir um vopnahlé í Sýrlandi Mikil óvissa ríkir um vopnahlé sem á að hefjast í Sýrlandi eftir tvo daga eftir að stjórnvöld í landinu kröfðust þess að stjórnarandstaðan undirriti skriflega yfirlýsingu um vopnahléið. 8.4.2012 10:15 Tíðindalaus páskahelgi hjá lögreglunni Nóttin var hin rólegasta hjá lögreglunni um allt land, og engar upplýsingar hafa borist um neitt stórvægilegt. 8.4.2012 09:56 Morðingja leitað í Oklahoma Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum leitar nú að karlmanni sem skaut fimm manns, þar af þrjá til bana, í borginni Tulsa í gær. 8.4.2012 09:29 Skjálftavirkni við Vatnajökul í morgun Að minnsta kosti tíu jarðskjálftar hafa mælst norðaustan við Kistufell í morgun. 8.4.2012 09:24 Tannlæknar sjá illa farið munnhold 8.4.2012 17:42 Fjárframlög til Samkeppniseftirlitsins hafa dregist saman 8.4.2012 17:41
Sjá næstu 50 fréttir
Erfið staða hjá Samkeppniseftirlitinu Fjárheimildir Samkeppniseftirlitsins hafa dregist saman um átta prósent á sama tíma og málafjöldi hefur aukist um áttatíu prósent. Þessi staða gengur ekki upp til lengdar, segir forstjóri eftirlitsins. 8.4.2012 18:30
Áhyggjuefni að færri feður fari í fæðingarorlof Velferðarráðherra segir það áhyggjuefni að feðrum sem taka fæðingarorlof fari fækkandi. Verið sé að skoða að hækka aftur hámarksgreiðslur Fæðingarorlofssjóðs til að bregðast við þessu. 8.4.2012 12:30
Karl segir siðferðisgildin ekki horfin úr þjóðarvitundinni Hátíðarguðsþjónustum er nú að ljúka um allt land, en í Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, predikaði í Dómkirkjunni klukkan átta í morgun. Þar sagði hann gömlu, góðu siðferðisgildin ekki horfin úr vitund þjóðarinnar. 8.4.2012 11:40
Danir vilja pólitískan fanga heim Utanríkisráðherra Danmerkur, Villy Soevndal, hefur óskað eftir því að yfirvöld í Barein framselji pólitíska fangann Abdul al-Khawaja til Danmerkur. 8.4.2012 10:45
Lítið skíðafæri á landinu í dag Nánast ekkert skíðafæri er á landinu í dag. Lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli sem og í Oddskarði en þar er rigning og mjög blautur snjór. 8.4.2012 10:30
Óvissa ríkir um vopnahlé í Sýrlandi Mikil óvissa ríkir um vopnahlé sem á að hefjast í Sýrlandi eftir tvo daga eftir að stjórnvöld í landinu kröfðust þess að stjórnarandstaðan undirriti skriflega yfirlýsingu um vopnahléið. 8.4.2012 10:15
Tíðindalaus páskahelgi hjá lögreglunni Nóttin var hin rólegasta hjá lögreglunni um allt land, og engar upplýsingar hafa borist um neitt stórvægilegt. 8.4.2012 09:56
Morðingja leitað í Oklahoma Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum leitar nú að karlmanni sem skaut fimm manns, þar af þrjá til bana, í borginni Tulsa í gær. 8.4.2012 09:29
Skjálftavirkni við Vatnajökul í morgun Að minnsta kosti tíu jarðskjálftar hafa mælst norðaustan við Kistufell í morgun. 8.4.2012 09:24
Þriggja ára og berst við illkynja æxli "Hún er harkan og fæst ekki til að liggja í rúminu" segir móðir Emmu Lindar Aðalsteinsdóttur þriggja ára stúlku sem berst nú við illkynja æxli. Frændi mæðgnanna heldur styrktartónleika í kvöld enda ekki annað hægt fyrir jafn æðislega frænku. 7.4.2012 18:38
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í Lottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 6, 7, 14, 29, 39 og bónustalan var 3. 7.4.2012 19:31
"Fjölmörg krabbameinsvaldandi efni í munntóbaki" Læknir óttast áhrif mikillar notkunnar ungmenna á nef- og munntóbaki. Um sé að ræða gríðarlega heilspillandi efni sem sannað sé að valdi sjúkdómum. Þá fylgi notkuninni mjög sterk fíkn. 7.4.2012 18:45
Feður fara sjaldnar í fæðingarorlof Feðrum sem taka fæðingarorlof heldur áfram að fækka en á milli áranna 2010 og 2011 fækkaði þeim um 10 prósent. Forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs segir marga feður ekki hafa tök á því að fara í fæðingarorlof eftir að hámarksgreiðslur sjóðsins voru lækkaðar. 7.4.2012 18:30
Rokkhátíð Alþýðunnar heillar Fólk á öllum aldri er nú statt í KNH-skemmunni á Ísafirði á rokkhátíð Alþýðunnar, Aldrei fór ég suður. Hátíðarhöldin gengu vel í gær og lítið sem ekkert að gera hjá Lögreglunni fyrir vestan. 7.4.2012 19:00
Búið að opna Hafnarfjarðarveg Búið er að opna Hafnarfjarðarveg á ný. Loka þurfti veginum vegna umferðaslyss sem átti sér stað á fjórða tímanum í dag. 7.4.2012 17:38
Þóra náði lágmarksfjölda undirskrifta Þóra Arnórsdóttir hefur náð lágmarksfjölda undirskrifta í öllum landshlutum vegna forsetaframboðs síns. Stuðningsmenn Þóru hófu söfnun meðmælenda í morgun. 7.4.2012 17:09
Rífandi stemning á Aldrei fór ég suður Tónlistarhátíðin "Aldrei fór ég suður" er nú haldin í níunda sinn á Ísafirði. Jón Þór Þorleifsson, rokkstjóri hátíðarinnar, segir að mun fleiri hafi sótt hátíðina nú en fyrri ár. 7.4.2012 16:50
Tilfinningaþrungin stund í Aþenu Það var tilfinningaþrungin stund í Aþenu í dag þegar Dimitri Christoula var borinn til grafar. 7.4.2012 14:45
Hrísey verður heimili hamingjusamra landnámshæna Hugvitssamir Hríseyjingar hyggjast nú koma á fót eggjabúi í eyjunni með hátt í þúsund íslenskum landnámshænum. Hugmyndin er að nýta gamla einangrunarstöð fyrir svín undir hænurnar. 7.4.2012 13:35
"Það er eitthvað skringilegt við þetta kerfi" Fyrrum sveitarstjóri Dalabyggðar og Bolungarvíkur segir aflaverðmæti útgerðarfyrirtækjanna skila sér að litlu leyti til samfélagana úti á landi. Peningar flæði til að mynda í gegnum Bolungarvík, en þar hafi ekki verið malbikuð gata um árabil. 7.4.2012 13:00
Þrjátíu tonn af nef- og munntóbaki seld á síðasta ári Sala á nef- og munntóbaki hjá ÁTVR hefur þrefaldast síðastliðinn áratug. 7.4.2012 12:11
Hægri grænir fagna rammaáætlun Hægri grænir, flokkur fólksins, fagnar rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem nú hefur verið lögð fram á Alþingi. 7.4.2012 11:55
Stuðningsmenn Þóru safna undirskriftum í dag Stuðningsmenn Þóru Arnórsdóttur hófu söfnun meðmælenda í morgun vegna forsetaframboðs hennar. Söfnun fer fram um allt land taka um það bil 320 manns þátt í henni. 7.4.2012 11:43
Þriggja saknað eftir brotlendingu í Virginíu Þriggja er saknað eftir að bandarísk F-18 herþota hrapaði í íbúðarhverfi í Virginíu í gær. Að minnsta kosti sjö særðust. 7.4.2012 11:15
Færð víðast hvar góð Vegir eru auðir á Suðurlandi og Vesturlandi. Sama er að segja um vegi á Vestfjörðum. Þeir vegir sem opnir eru greiðfærir en Dynjandisheiði og Hrafnseyrar heiðir eru enn ófærar eftir veturinn. 7.4.2012 10:45
Víða gott skíðafæri í dag Á Ísafirði verða skíðasvæðin opin frá klukkan tíu til fimm en í Seljarlandsdal fer fram keppni í hinni svokölluðu hótelgöngu og hefst hún klukkan tíu og stendur til hálf tólf. 7.4.2012 10:30
Skjálftahrina við Tungnafellsjökul Á skírdag hófst hrina jarðskjálfta norðaustan Tungnafellsjökuls, vestan við mynni Vonarskarðs. 7.4.2012 09:50
Rólegt á Ísafirði í nótt Rólegt var hjá lögreglunni á Ísafirði í nótt en tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hófst þar í gær. Samkvæmt varðstjóra er bærinn troðfullur af fólki - það er þó ekk vitað með hversu margir hafa sótt Ísafjarðarbæ heim þetta árið. Fyrir utan eitt ölvunarakstursmál og tvö smávægileg fíkniefnabrot var fólk almenn rólegt að sögn varðstjóra. 7.4.2012 09:35
Hafnarfjarðarvegur lokaður Umferðarslys varða á Hafnarfjarðarvegi í Engidal, vestan Lyngás um klukkan 16:10 í dag. Hafnarfjarðarvegur verður lokaður á gatnamótum við Lækjarfit - Lyngás í báðar áttir í óákveðinn tíma. 7.4.2012 17:00
Smábátaútgerðir kikna undan klyfjunum Smábátaútgerðir munu ekki geta staðið undir auknum álögum á greinina sem boðaðar eru í frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem Alþingi hefur nú til meðferðar að mati forsvarsmanna Landssambands smábátaeigenda. 7.4.2012 09:00
Villikettir herja á íbúa í Borgarnesi Kattafaraldur geisar nú í Borgarnesi og er fjöldi katta þar farinn að valda mörgum íbúum ónæði. Í flestum tilfellum er um villiketti eða óskráða ketti að ræða. Ástandið er orðið svo slæmt að að gæludýraeftirlitsmaður hefur verið sendur út af örkinni til að handsama óskráða ketti. Átakið mun standa næstu vikur. 7.4.2012 07:00
Óhöppum hjá Strætó fækkar Óhöpp voru miklu færri hjá strætisvögnum Strætó bs. á fyrstu þremur mánuðum ársins en árin þar á undan. Sautján óhöpp urðu í akstri á þessum mánuðum, en á sama tíma í fyrra voru þau 37. Það var þó óvenju lág tala miðað við árstíma, að því er fram kemur á vef Strætó. Árið 2011 var metár hvað varðar öryggi í akstri hjá fyrirtækinu. 7.4.2012 06:00
Náttúran á undir högg að sækja vegna ágangs manna Landnýting á Suðurlandi er miklu meiri en í öðrum landshlutum á Íslandi. Þetta kemur fram í meistaraverkefni Elke Wald sem hún vann við Háskóla Íslands og kynnt var í síðustu viku. Landsvæðið sem rannsakað var sérstaklega er láglendi Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Kom í ljós að þar er ágangur manna á landið mestur. Rannsóknartímabilið sem verkefnið spannar eru árin 1900 til 2010, tímabil róttækustu breytinga íslensks þjóðfélags. Niðurstöðurnar sýna að áhrifin eru meiri en gert var ráð fyrir á svæðisbundin lífríki. 7.4.2012 05:00
Endurvekja á vörumerki ódýari bifreiða Bílar Volkswagen hefur keypt hið gamla og fornfræga bílamerki Borgward og undirmerkin Goliath og Lloyd. Fram kemur á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda að Borgward hafi verið nokkuð þekkt bíltegund hér á landi upp úr 1950 og fram á miðjan sjöunda áratuginn. Tegundinni er stundum sagt hafa verið ruglað saman við Wartburg, en á milli Borgward og Wartburg var enginn skyldleiki. 7.4.2012 04:00
Á annað hundrað erindi á mánuði Á annað hundrað mál hafa borist til Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna í hverjum mánuði það sem af er árinu. Að meðaltali bárust 128 erindi í mánuði sem er veruleg aukning frá síðasta ári, þegar 87 erindi bárust að meðaltali í hverjum mánuði. 7.4.2012 03:15
Hnúfubakur lék listir sínar Þótt víðast hvar hafi ekki verið mikil afþreying í boði í dag hefur Hvalalíf boðið upp á hvalaskoðunarferðir. Róbert Róbertsson náði við það tækifæri þessum mögnuðu myndum af hnúfubaki sem lék lystir sínar fyrir áhorfendur eins og hann væri í hringleikahúsi. 6.4.2012 19:22
Þyrlan sótti barn í Flatey Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, var kölluð út laust fyrir klukkan tvö í dag eftir að barn varð fyrir óhappi í Flatey á Breiðafirði. Farið var í loftið klukkan 14:22 og flogið beint í Flatey þar sem lent var klukkan 15:30. Sjúklingur var þá fluttur um borð í þyrluna og var farið nýju í loftið stundarfjórðungi síðar. 6.4.2012 17:42
Stuðningsmenn Kristínar láta mæla fylgið við hana Stuðningsmenn Kristínar Ingólfsdóttur létu framkvæma könnun á fylgi frambjóðenda til embættis forseta Íslands og hennar stöðu í baráttunni um Bessastaði. Enn á eftir að kynna lokaniðurstöðurnar. 6.4.2012 18:52
Erlendur ferðamaður þrisvar tekinn af lögreglunni Ölvaður erlendur ferðamaður tæmdi minibar á hóteli á Suðurnesjum á dögunum, en átti ekki pening til að borga fyrir veigarnar. Lögreglan var kölluð til og var maðurinn fluttur á lögreglustöð, að eigin beiðni, þar sem hann fékk að sofa úr sér. Tveimur dögum síðar, í 6.4.2012 16:19
Sérkennileg hljóð í ferðatösku Starfsmaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar óskaði í vikunni eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum þegar hann heyrði torkennilegt hljóð úr farangurstösku sem verið var að hlaða um borð í farþegavél er var á leiðinni til New York. Lögreglumaður mætti á staðinn ásamt öryggisverði og var eigandi töskunnar kallaður til. Þegar skyggnst var í töskuna kom í ljós að suðið kom frá rakvél sem í henni var. Eftir þessa niðurstöðu var taskan sett um borð í vélina. 6.4.2012 16:13
Passíusálmarnir fluttir víða í dag Passíusálmar Hallgríms Péturssonar eru víða lesnir í kirkjum landsins í dag, enda er hefð fyrir því á föstudaginn langa. Þeir eru meðal annars fluttir í Hallgrímskirkju, í Grafarvogskirkju og í Seltjarnarneskirkju. 6.4.2012 15:41
Mynda Heillakeðju fyrir Barnaheill Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki í ár sem mynda keðju stuðningsaðila og taka að sér einn mánuð til stuðnings samtökunum. 6.4.2012 15:56
Apríl sjaldnast kaldasti mánuðurinn Janúar og febrúar eru yfirleitt köldustu mánuðir ársins hér á landi miðað við tölur frá síðustu 189 árum. Apríl hefur aðeins þrisvar komist á blað sem kaldasti mánuðurinn og því lítil hætta á að kuldametið þetta árið verði bætt fyrr en næsta vetur. 5.4.2012 21:00