Fleiri fréttir

Vinnuferðir en ekki boðsferðir

„Starfsmennirnir sem fóru í þessar ferðir – þeir voru ekki að þiggja neitt boð. Það er meginatriði og þess vegna voru þetta engar boðsferðir,“ sagði Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, í viðtali við Kastljós RÚV í gærkvöldi.

Vill rannsókn á lífeyrissjóðum

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, mun á næstunni leggja fram þingsályktunartillögu um að Alþingi skipi rannsóknarnefnd til að rannsaka starfsemi lífeyrissjóðanna frá árinu 1997 til 2011.

Ferðakonan í Hvalfirði þakkaði Neyðarlínunni fyrir hjálpina

Dönsk ferðakona, sem björgunarsveitarmenn komu til hjálpar í ofsaveðri í Hvalfirði í fyrrinótt, heimsótti starfsfólk Neyðarlínunnar í gærkvöldi og færði því körfu með góðgæti, í þakklætisskyni fyrir þátt þeirra í björguninni.

Framsýn vill fund um málefni Stapa-lífeyrissjóðs

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að fara þess á leit við stjórn Stapa-lífeyrissjóðs að þegar í stað verði boðað til fulltrúaráðsfundar í sjóðnum.

Óreglumaður í haldi grunaður um morð

Ungur maður kom í annarlegu ástandi á lögreglustöð í gær og átti erfitt með að gera sig skiljanlegan. Í kjölfarið fannst látin kona á heimili hans og svo virðist sem henni hafi verið ráðinn bani með hníf. Maðurinn er góðkunningi lögreglu.

Brottnám PIP-púða kostar tugi milljóna

Velferðarráðherra mælist til að allar konur með PIP-púða geti látið fjarlægja þá á Landspítalanum. Hópur kvenna vill nýta aðgerðina til að fá nýja púða. Gætt verður að hagsmunatengslum og enginn mun vísa á sjálfan sig, segir ráðherra.

Íbúarnir fóru út úr brennandi húsi

Eldur kom upp í húsi í Eikjuvogi í Reykjavík um klukkan hálf átta í kvöld. Þegar slökkvilið kom á staðinn voru tveir íbúar í húsinu komnir út. Slökkviliðið náði hinsvegar tökum á eldinum á skömmum tíma og hefur nú slökkt hann. Oddur Hallgrímsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir í samtali við fréttastofu að tjón sé vegna elds og reyks en unnið er að því að reykræsta húsið. Eldsupptök eru ókunn.

Gefa skýrslu um fundinn fræga 7. febrúar nái Landsdómsmál fram að ganga

Verði ákæra á hendur Geir H. Haarde ekki felld niður fær þjóðin í fyrsta sinn frásögn fyrir dómi um hvaða upplýsingum bankastjórn Seðlabankans kom á framfæri við þrjá ráðherra í ríkisstjórninni um alvarlega stöðu íslensku bankanna sjöunda febrúar 2008. Fimmtíu og sex eru á vitnalista ákæruvaldsins í málinu en þar má finna ráðherra, bankastjóra og embættismenn.

Ólafur sendi nýjum forseta Finnlands kveðju frá þjóðinni

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag nýkjörnum forseta Finnlands, Sauli Niinistö, hamingjuóskir frá íslensku þjóðinni. Í kveðjunni minnti Ólafur Ragnar á trausta og langvarandi vináttu Finna og Íslendinga, þjóða sem báðar tilheyrðu hinni norrænu fjölskyldu. Í tilkynningu frá embættinu segir að Ólafur hafi jafnframt bent á að málefni Norðurslóða væru sameiginlegt hugðarefni þjóðanna sem hafa mundi sívaxandi þýðingu á komandi áratugum.

Stal lunda og fór með hann á Lundann

Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero. Þetta kemur fram á vefnum Eyjarfréttir.is

Lilja kynnir nýtt stjórnmálaafl - hvorki til vinstri né hægri

Lilja Mósesdóttir hefur formlega stofnað nýtt stjórnmálaafl en framboðið mun bjóða fram í öllum kjördæmum landsins samkvæmt tilkynningu frá Lilju. Sjálf sagði Lilja sig úr þingflokki Vinstri grænna fyrir um ári síðan ásamt Atla Gíslasyni. Síðar sögðu þau sig formlega úr flokknum sjálfum.

Átt þú þessa skartgripi?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda skartgripa sem eru í hennar vörslu. Gripirnir sjást á meðfylgjandi mynd og einnig er leitað að eiganda snyrtivara sem sjást líka á myndinni.

Stjórnarmeirihlutinn jókst um einn mann

Stjórnarmeirihlutinn styrktist um einn mann í dag þegar Arndís Soffía Sigurðardóttir, þingmaður VG, tók sæti sem varamaður Atla Gíslasonar þingmanns á Alþingi. Ólíkt Atla, sem hefur yfirgefið þingflokk VG, styður Arndís Soffía stjórnarmeirihlutann. Því má segja að meirihlutinn hafi styrkst tímabundið um einn mann. Ríkisstjórnin verður því með 33 manna meirihluta næsta hálfa mánuðinn í stað 32 eins og venja er þegar Atli Gíslason er á þingi.

Leikskólakennarar gáfu sveitarfélögum tæpar 400 þúsund

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags Leikskólakennara, afhenti í dag Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands sveitarfélaga, risaávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Peningurinn er afrakstur söfnunar sem leikskólakennarar efndu til með styrktartónleikum fyrir sveitarfélögin vegna kjarabaráttu sinnar. Ávísunin er afhent í tilefni þess að í dag er Dagur leikskólans.

Sjá gjaldtöku ekki sem lausn

"Þetta er ekki lausn á málinu og við höfum ekki hugsað út í þetta á þennan hátt," segir Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunar- og slysavarnarsviðs hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, um hugmyndir Ólínu Þorvarðardóttur vegna tryggingamála í tengslum við bíla sem sitja fastir í snjósköflum og ófæru.

Tvö fyrirtæki nota Skráargatið

Að minnsta kosti tvö matvælafyrirtæki hér á landi hafa ákveðið að taka upp hollustumerkið Skráargatið á völdum vörum. Þó er ekki búið að innleiða merkið formlega hér á landi.

Þyrlan farin í loftið - veður frekar slæmt

Þyrla Landhelgisgæslunnar er farinn í loftið til þess að sækja breskan ferðmann sem slasaðist á göngu sinni frá Laugafelli suður í Nýjadal eða Sprengisandsleið eins og gönguleiðin er að jafnan kölluð.

Elísabet hefur verið sextíu ár í hásætinu

Sextíu ár eru liðin í dag frá því Elísabet Englandsdrottning tók við bresku krúnunni við andlát föður hennar. Í tilefni dagsins sendi hún frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist vilja þjóna þjóð sinni áfram. Áfanganum verður fagnað með margvíslegum hætti út þetta ár og hyggur drottningin á mikil ferðalög um breska samveldið til að hitta sem flesta þegna sína.

Hugsanlegt að björgunarsveitir taki gjald fyrir aðstoð í ófærð

Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og björgunarsveitamaður segir að Slysavarnafélagið Landsbjörg verði að fara að íhuga hvort skynsamlegt yrði að taka gjald fyrir þjónustu sem veitt er þegar bílar eru dregnir út úr snjósköflum og ófærum. Fréttablaðið greinir frá því í dag að björgunarsveitir beri ábyrgð á skemmdum sem verða við þessar aðstæður. Sveitirnar þurfi að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins.

Madonna gerði allt vitlaust á Super Bowl

Super Bowl leikurinn fór fram í nótt en þar er um að ræða einn stærsta íþróttaviðburð sem fram fer í Bandaríkjunum ár hvert. Tónlistaratriðin í hálfleik eru yfirleitt í glæsilegri kantinum og í gegnum tíðina hafa flestar skærustu poppstjörnur heims komið fram á leiknum.

Veðrið kom niður á stundvísinni

Þrjár af hverjum fjórum flugferðum Icelandair til og frá landinu voru á réttum tíma á seinni hluta janúarmánaðar. Hjá Iceland Express var hlutfallið 57 prósent. Í mínútum talið voru tafir lengri nú að meðaltali en undanfarin tímabil og munar þar mestu um að öllu morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli var seinkað fram yfir hádegi þann 26. janúar.

Rannsaka færi á nýtingu sjávarorku

Fjármagn verður sett í rannsóknir á umfangi og nýtingarmöguleikum sjávarorku á Íslandi, verði þingsályktunartillaga sem lögð var fram á föstudag samþykkt. Tuttugu og einn þingmaður í öllum flokkum standa að tillögunni og verður því að teljast líklegt að hún verði samþykkt.

Vinnuslys í Straumsvík

Starfsmaður í álverinu í Straumsvík slasaðist í gærkvöldi þegar hann ók lyftara utan í stólpa við höfnina.

Síðasta norska loðnuskipið siglir heim

Síðasta norska loðnuskipið hélt út úr íslenskri lögsögu áleiðis til Noregs í gær, þar sem Noðrmenn eru búnir með loðnukvóta sinn við Ísland á þessari vertíð.

Mótmælir því að hafa fjárfest án rannsóknar

Helgi Magnússon,formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir tjón lífeyrissjóðanna við hrunið auðvitað tilfinnanlegt. Mikilvægt sé hins vegar að miða við tímann frá hruni. Þá sé heildarrýrnunin um 380 milljarðar króna en ekki 480 milljarðar.

Hægt að tuttugufalda orkuna

Valdimar Össurarson rekur fyrirtækið Valorku sem hefur hannað samnefndan sjávarhverfil. Hann fékk í október fyrstu verðlaun í keppni Alþjóðasamtaka félaga hugvitsmanna, IIA, fyrir hverfilinn. Valorka stefnir að því að virkja hæga strauma sem eru í röstum og við annes.

Sjá næstu 50 fréttir