Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tengsl þyngdar og blóðsykurs rannsökuð Þeir sem eru of þungir ættu síður að neyta óhollra skyndibita en þeir sem er í kjörþyngd þar sem blóðsykur þyngri einstaklinga hækkar meira eftir neysluna samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Ekki er nóg að horfa á kaloríufjölda og fitumagn þegar matvörur er valdar í innkaupakörfuna. 5.2.2012 18:47
Innbrot og ölvunarakstur í dag Tilkynnt var um fjögur innbrot í höfuðborginni í dag. Þar á meðal var brotist inn í listagallerí við Smiðjustíg í Reykjavík. Þar var brotin rúða í kjallara en engu var stolið. Nágranni kom að innbrotsaðila og forðaði hann sér af vettvangi. 5.2.2012 17:32
Engar viðræður í Kópavogi í dag Meirihlutaviðræður í Kópavogi munu halda áfram á morgun. Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknarflokks, sagðist hafa verið í símabandi við oddvita Sjálfstæðisflokksins og lista Kópavogsbúa. 5.2.2012 17:03
Segir Davíð vera pólitískan hryðjuverkamann Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri Grænna, fer hörðum orðum um Davíð Oddson á bloggsíðu sinni og segir að hann sé réttnefndur pólitískur hryðjuverkmaður. 5.2.2012 15:51
Vélsleðamanni komið undir læknishendur Nú fyrir stuttu lenti þyrla Landhelgisgæslunnar við Landspítalann í Fossvogi og var slösuðum vélsleðamann komið undir læknishendur. 5.2.2012 15:27
Telur þjóðina hafa minnkandi tiltrú á ríkisstjórninni Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson var gestur í útvarpsþættinum Sprengisandi ásamt Benedikt Jóhannessyni, ritstjóra Vísbendingar. Þeir voru beðnir um álit sitt á stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar. 5.2.2012 13:24
Hlutfall kvenna með rofna PIP púða hærra hér á landi Velferðarráðherra segir ekkert komið fram sem skýrir hvers vegna hlutfall kvenna með rofna PIP púða virðist vera mun hærra hér en í öðrum löndum. Ráðherrann segir að mörgum spurningum sé enn ósvarað. 5.2.2012 12:44
Plus500 býður fjárfestum að veðja á verðbreytingar Bresk vefsíða sem býður fjárfestum upp á skuldsetta stöðutöku í hlutabréfum, hrávöru og gjaldmiðlum án þess að raunveruleg viðskipti liggi að baki stöðutökunni reynir nú að lokka íslenska fjárfesta í viðskipti. Fjármálaeftirlit erlendis hafa varað við síðunni. 5.2.2012 12:10
Jón Ásgeir hafnar ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum aðaleigandi Baugs, hafnar því að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á falli Glitnis. Honum finnst hins vegar miður að sjóðirnir hafi tapað á Baugi. Lífeyrissjóðirnir töpuðu samtals 77 milljörðum króna á félögum tengdum Baugi. 5.2.2012 12:04
Lífeyrissjóðirnar fjármagna Hverahlíðavirkjun Fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, Björgvin G. Sigurðsson, upplýsti á opnum fundi í Árborg í gær að lífeyrissjóðirnir myndu sjá um að fjármagna Hverahlíðavirkjun á Hellisheiði, ekki Orkuveita Reykjavíkur. 5.2.2012 11:41
LV hafnar ásökunum rannsóknarnefndar Lífeyrissjóður verzlunarmanna hafnar því að hann hafi brotið lög með gerð gjaldmiðlavarnarsamninga en í skýrslu rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna er slíkt gefið í skyn þar sem segir að sjóðurinn hafi með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008 aukið áhættu sjóðsins - þvert á lögbundið hlutverk sitt. 5.2.2012 10:30
Sveitarfélög í erfiðleikum með ákvæði sveitastjórnarlaga Sum sveitarfélög munu eiga erfitt með að uppfylla ákvæði nýrra sveitastjórnarlaga um skuldsetningu að mati starfshóps sem innanríkisráðherra skipaði í haust til að meta gildi fjármálareglna fyrir sveitarfélög. 5.2.2012 10:30
Skíðasvæði opin í dag Skíðasvæðin í Oddsskarði og Hlíðarfjalli verða opin í dag á milli klukkan tíu og fjögur síðdegis, en opið er til fimm í Bláfjöllum. 5.2.2012 09:35
Bjarga vélsleðamanni í fjallshlíðum Esju Sleðahópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú á leið í útkall í fjallshlíðum Esju. 5.2.2012 14:49
Meirihutaviðræður halda áfram í dag Ómar Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í Kópavogi, segir að meirihlutaviðræður í Kópavogi muni halda áfram í dag. 5.2.2012 14:35
Björt framtíð stofnuð í dag Nýtt stjórnmálaafl, frjálslynt, grænt og alþjóðlega sinnað var formlega stofnað í dag. Formenn flokksins eru tveir og í stjórn hans situr meðal annarra Borgarstjórinn í Reykjavík. 4.2.2012 19:29
Landsbankinn hagnast á hækkandi verðlagi Misvægi í verðtryggðum eignum og skuldum Landsbankans gerir það að verkum að bankinn hagnast um meira en milljarð í hvert skipti sem verðlag hækkar um prósent. Misvægið hefur aukist í Landsbankanum frá hruni, meðan hinir tveir hafa dregið úr því. 4.2.2012 18:54
Aumingja Ísland, til hamingju! Brot úr kvikmyndinni Aumingja Ísland var birt á vefsíðunni YouTube fyrr í vikunni. Myndin er framleidd af kvikmyndagerðarmanninum Ara Alexander Ergis Magnússyni. 4.2.2012 17:07
Hræddar um að læknar skrifi ekki upp ísetningu nýrra brjóstapúða Konur með PIP púða hafa áhyggjur af því að læknar muni ekki skrifa upp á ísetningu nýrra brjóstapúða fyrir þær í aðgerðum á Landspítalanum, þar sem þeir vonist sjálfir eftir viðskiptum þeirra síðar meir. 4.2.2012 19:33
Skilanefndarmenn með 1.650.000 á mánuði Skilanefndarmenn þurfa að reikna sér tvöfalt hærri laun en þeir sérfræðingar sem hæst laun hafa í sjálfstæðum rekstri á öðrum sviðum. Gert er ráð fyrir að þeir hafi að minnsta kosti 1650 þúsund krónur á mánuði eftir hækkun á reiknuðu endurgjaldi. 4.2.2012 18:46
Hreyfingin tilnefnir Bradley Manning til Nóbelsverðlauna Þinghópur Hreyfingarinnar hefur tilnefnt Bradley Manning til friðarverðlauna Nóbels. Manning er sakaður um að hafa lekið þúsundum skjala til uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks og bíður nú þess að verða dreginn fyrir herdómstól í Bandaríkjunum. 4.2.2012 16:16
Nýr ritstjóri Eyjunnar ráðinn Stjórnmálafræðingurinn Magnús Geir Eyjólfsson hefur verið ráðinn ritstjóri Eyjunnar. Magnús tekur við af Karli Th. Birgissyni en hann lét störfum hjá Eyjunni nýlega. 4.2.2012 15:19
Seinni ferð Herjólfs fellur niður Seinni ferð Herjólfs fellur niður í dag vegna veðurspár. Spáin gerir ráð fyrir 28m/s vindhraða og 6 metra ölduhæð. 4.2.2012 14:26
Starfsemi Bitru færist yfir á Sogn Nú stendur til að breyta húsnæðinu á Sogni í Ölfusi í opið fangelsi. Þetta tilkynnti fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, Björgin G. Sigurðsson á opnum fundi Samfylkingarinnar í Árborg í morgun. 4.2.2012 14:02
Uglurnar í Laugardalnum flúðu vetrarhörkur Líffræðingur segir að uglurnar sem nú hafa hópast saman í Laugardalnum hafi líklega flúið vetrarhörkur og villst af leið yfir norðursjó. 4.2.2012 13:33
Tveir sjúklingar fluttir með sjúkraflugi Flogið var sjúkraflug til Grænlands á fimmtudaginn. Sérútbúin flugvél Mýflugs flaug þá til Ammassalik þar sem tveir sjúklingar biðu. Aðeins var hægt að flytja einn sjúkling í einu og þurfti því að fara tvær ferðir. 4.2.2012 11:46
Erilsöm nótt í höfuðborginni Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur. Sú fyrri átti sér stað við Nonnabita á Hafnarstræti en þar hafði stúlka slegið mann í andlitið svo á sást. Gerandinn flúði af vettvangi og eru óljósar upplýsingar um hann. Sá sem var sleginn ætlar ekki að kæra. 4.2.2012 11:18
Stóra systir merkir Goldfinger með Gillz-límmiðum Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir hengdi í dag límmiða á dyr skemmtistaðarins Goldfinger í Kópavogi. Gulur borði var einnig dreginn um innganginn að hætti lögreglumanna. 4.2.2012 10:42
Pústrar og ölvunarakstur í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að skemmtistaðnum Spot í Kópavogi vegna slagsmála um tvöleytið í nótt. Einn var handtekinn eftir áflogin og hann vistaður í fangageymslu. 4.2.2012 10:10
Skíðasvæði opin um allt land - nema í Bláfjöllum Opið verður á skíðasvæði Siglufjarðar í dag frá 10 - 16 en mikil brettasýning fer þar fram. Er sýningin á vegum Brettafélags Íslands. Aðstandendur sýningarinnar segja að mikið verði hoppað og stokkið og er fjöldi manns komin í bæinn til að taka þátt. 4.2.2012 10:02
Enginn með allar tölur réttar í Lottóinu Enginn var með allar tölur réttar í Lottóinu í kvöld. Tölurnar voru 7-9-19-28-32 og bónustalan var 8. 4.2.2012 19:26
Starfi ekki einir í félagsmiðstöð Starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar Eldingar í Garði vilja ekki vera einir á vakt á opnunartíma. Þetta kom fram á fundi æskulýðsnefndar í Garði. „Getur þetta haft alvarlegar afleiðingar ef ásakanir kæmu fram um eitthvað misjafnt eða slys verður á staðnum. Einnig ef eitthvað kæmi fyrir starfsmanninn sjálfan. Nefndin er sammála að þetta þurfi að skoða nánar og færa til betri vegar,“ segir æskulýðsnefndin og vísar ábendingunni til bæjaryfirvalda.- 4.2.2012 09:00
Uglur hópast saman í Laugardal Uglur hafa hópast saman og haldið til í Laugardalnum í Reykjavík frá því um miðjan janúar. Bæði hafa sést branduglur og eyruglur, en suma daga hafa margir fuglar af þessari sérstöku tegund hópast saman á litlu svæði. 4.2.2012 08:00
Ráðherra prófar nýja bifreið Meðal þeirra sem fá að reynsluaka metanbíl frá Metanorku er Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra. Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri Metanorku afhenti bílinn síðdegis í gær. 4.2.2012 07:00
Sjá engin rök fyrir sameiningu Foreldrar barna í Hamraskóla í Grafarvogi eru ósáttir við flutning unglingadeildar skólans yfir í Foldaskóla. Harðorð ályktun var send út eftir fjölmennan fund í skólanum á miðvikudag þar var sameiningunni er hafnað og farið fram á að fallið verði frá henni. 4.2.2012 06:00
Ráðherra kallar til samráðs um safnið Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kallaði eftir því á Alþingi í gær að ráðuneytið myndi efna til samráðs, hugsanlega á vettvangi Allsherjar- og menntamálanefndar, um hvaða skal að gert í málefnum Náttúruminjasafns Íslands. Hún segir söfn landsins almennt orðin verulega aðkreppt og því verði að gefa gaum við fjárlagagerð í haust, enda ljóst að komið sé að þolmörkum í niðurskurði. 4.2.2012 06:00
Gæti skilað inn 12,5 milljónum á ári Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra leggur til að fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli borgi um fimm þúsund krónur fyrir hverja bakgrunnsskoðun starfsmanna sinna. Talið er að fjöldi skoðana sé um 2.500 talsins sem skili um 12,5 milljónum króna á ársgrundvelli. Ráðherra mælti fyrir gjaldtökunni, sem felur í sér breytingu á lögum um loftferðir, á ríkisstjórnarfundi í gær. 4.2.2012 05:00
Skipt um fulltrúa í bankaráði Ingibjörg Ingvadóttir, lektor við lagadeild Háskólans á Bifröst, hefur verið kjörin í bankaráð Seðlabankans. Ingibjörg hefur verið varamaður í ráðinu en tekur nú við af þýska hagfræðingnum Daniel Gros. Sæti hennar sem varamaður tekur Jón Helgi Egilsson, hagfræðingur. 4.2.2012 04:00
Fleira skýrir minni akstur en vond færð Vegagerðin hefur kallað eftir veðurupplýsingum allt frá árinu 1995 til að reyna að finna fylgni milli tíðarfars og samdráttar í umferð. Nýjar tölur sýna að umferð í nýliðnum janúarmánuði dróst saman um ríflega 10 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Samdrátturinn er sá mesti milli janúarmánaða frá því að samanburður var hafinn. 4.2.2012 04:00
Hefur stýrt umferðarljósunum í yfir 40 ár „Umferðarmenningin hefur breyst mjög mikið, og til hins betra,“ segir Dagbjartur Sigurbrandsson, sem um þessar mundir lætur af störfum hjá Reykjavíkurborg eftir að hafa stýrt umferðarljósum borgarinnar í 41 ár. 4.2.2012 03:30
Fá ekki fólk til að bera út bréf „Ef bréfberar fást ekki til starfa er það vísbending um að launakjör séu ekki viðunandi,“ segir bæjarráð Grundarfjarðar sem mótmælir harðlega óviðunandi póstútburði í bænum. Borið hafi á að póstur hafi ekki verið borinn út og það skýrt með skorti á bréfberum. Íslandspóstur geti ekki borið því fyrir sig að fólk fáist ekki til starfa því í Grundarfirði sé fólk í atvinnuleit. 4.2.2012 03:15
Má búast við miklum vindhviðum Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli í kvöld og fram á nóttina, eftir því sem Veðurstofan segir. Einnig má gera ráð fyrir miklum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Öræfasveit. Versnandi veður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. 3.2.2012 22:23
Vilja skattaívilnanir fyrir þá sem spara fyrir íbúðarkaupum Níu þingmenn á Alþingi lögðu fram frumvarp í dag þar sem gert er ráð fyrir sérstökum skattívilnunum til handa þeim sem eru að spara vegna húsnæðisöflunar. Frumvarpið er hugsað til viðbótar öðrum opinberum úrræðum sem auðvelda eiga fólki að eignast húsnæði, til dæmis vaxtabótakerfi og Íbúðalánasjóði. 3.2.2012 20:07
VIll að PIP fyllingarnar verði fjarlægðar úr öllum konum Geir Gunnlaugsson landlæknir telur ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera. Þetta er niðurstaða hans eftir að Vísindanefnd Evrópusambandsins um nýjar og vaxandi heilsuvár gaf út skýrslu um PIP púðana í gær. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir mat landlæknis byggt á faglegum forsendum og að velferðarráðuneytið muni bregðast við í samræmi við þær ábendingar sem þar komi fram. Unnið verði að skipulagningu viðbragða og framkvæmd aðgerða á næstu dögum og muni ráðherra taka málið fyrir á fundi ríkisstjórnar næstkomandi þriðjudag. 3.2.2012 19:46
Orkusalan vefur ársins á SVEF-verðlaununum Orkusalan.is var rétt í þessu valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykavíkur, afhenti verðlaunin. Samtök vefiðnaðarins standa að verðlaununum og var athöfnin haldin í Tjarnarbíói. Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 11 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna og sá dómnefnd um að stilla upp í tilnefningar til verðlaunanna sem félagsmenn kusu síðan um. Þetta er í 11. skipti sem Íslensku vefverðlaunin eru haldin. 3.2.2012 19:00