Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vatnstjón í Drápuhlíð og mikill erill í sjúkraflutningum Mikið vatnstjón varð í kjallara húsnæðis heilsugæslunnar í Drápuhlíð þegar heitavatnslögn virðist hafa gefið sig. Slökkviliðið var kallað á vettvang um klukkan hálf fimm í nótt vegna lekans. 16.10.2011 09:53
Aftur kveikt í á Bergstaðastrætinu Enn og einu sinni var kveikt í mannlausu húsi á horni Bergstaðastrætis og Spítalastígs. 16.10.2011 09:47
Mikið um hálkuslys Mikil hálka var í morgun og virtist koma mörgum í opna skjöldu. Þannig urðu sjö umferðaróhöpp í nótt og tvær bílveltur á Suðurlandsvegi eftir miðnætti í nótt. 16.10.2011 09:35
Vildu ekki vinna eineltisálit með minnihluta vegna tengsla við skólann N listinn í Sveitarfélaginu Garði hefur óskað eftir að fá afrit af bréfi því sem bæjarstjóri og meirihluti skólanefndar sendu til Mennta og menningarráðuneytisins, undirritað af þeim, samkvæmt frétt Víkurfrétta um málið. 15.10.2011 19:48
Manngerðir jarðskjálftar: "Það er alls ekki í lagi“ "Ég hef aldrei orðið fyrir alvarlegum óþægindum af þessu eins og ég segi er ég ekki hrædd, manni bara bregður. En sú tilhugsun að þetta er af mannavöldum? Það finnst mér aftur ekki í lagi, alls ekki í lagi,“ segir Anna Halla Hallsdóttir, íbúi í Hveragerði um jarðskjálftana en íbúum er verulega brugðið eftir morguninn, enda skóku tveir skjálftar bæinn á innan við klukkustund. Báðir mældust fjórir á richter. 15.10.2011 19:30
Íslenskt jeppafyrirtæki á heimsmet í að fara yfir Suðurpólinn Jeppafyrirtækið Arctic Trucks hefur slegið heimsmet í að fara yfir Suðurpólinn á sem skemmstum tíma. Meðalhraðinn var engu að síður 21 kílómetra hraði á klukkustund. 15.10.2011 18:46
Rólegt á starfakynningu Það var rólegt um að litast á starfakynningu Vinnumálastofnunar og evrópsku vinnumiðlunarinnar í dag, þar sem Íslendingar gátu kynnt sér atvinnutækifæri í öðrum Evrópuríkjum. 15.10.2011 18:35
Fjölmenn mótmæli í miðborginni Fjölmenni eru samankomin á Austurvelli þar sem Hörður Torfason heldur byltingaræðu. Þar fara nú fram önnur mótmæli dagsins, en hin eru á Lækjartorgi, og eru hluti af heimsmótmælum. 15.10.2011 15:28
Eldingu laust niður í flugvél Icelandair Eldingu laust niður í flugvél Icelandair snemma í morgun. Vélin var að koma frá Boston þegar eldingu laust niður í vélina. 15.10.2011 14:45
Skjálftarnir voru fjórir á richter Báðir jarðskjálftarnir í morgun reyndust vera fjórir á richter samkvæmt upplýsingum jarðvísindamanna á Veðurstofu Íslands. 15.10.2011 13:51
Orkumálastjóri: Skjálftarnir ekki endilega af mannavöldum „Á þessu svæði, sem verið er að vinna á, þá hafa skjálftar verið í mesta lagi fimm til sex á ricther,“ segir Guðni Albert Jóhannesson, Orkumálastjóri, en Orkumálastofnun hefur að beiðni iðnaðarráðuneytisins fylgst með niðurdælingum Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu, sem hefur skapað fjölda smáskjálfta. 15.10.2011 13:22
Geðhjúkrunarfræðingar: Aðstaðan á Kleppi betri en á Sogni Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga hefur lýst yfir stuðningi við að starfsemi réttargeðdeildarinnar á Sogni verði færð á Kleppspítala í Reykjavík. 15.10.2011 12:48
Bæjarstjóri Hveragerðis: Ólíðandi að búa við manngerða skjálfta Íbúar Hveragerðis hafa fengið sig fullsadda af manngerðum skjálftum Orkuveitu Reykjavíkur segir bæjarstjóri. Tveir snarpir jarðskjálftar urður við Hellisheiðarvirkjun í morgun og fundust þeir allvíða á suðvesturlandi. 15.10.2011 12:08
Birta dóm í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á netinu Embætti ríkissaksóknara hefur birt dóminn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á vefsvæði sínu vegna mikillar, "og stundum villandi, umfjöllunar um svonefnt Guðmundar- og Geirfinnsmál undanfarið“ eins og segir í tilkynningu frá embættinu. Þar má lesa bæði dóm sakadóms Reykjavíkur og Hæstaréttar í sakamálinu á hendur Erlu Bolladóttur, Guðjóni Skarphéðinssyni, Kristjáni Viðari Viðarssyni, Sævari Marinó Ciesielski, Tryggva Rúnari Leifssyni og fleirum. 15.10.2011 11:32
Ófært á Hrafnseyrarheiði vegna snjóflóða Allar aðalleiðir eru auðar um sunnanvert landið og eins á Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Vesturlandi er snjóþekja á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Fróðárheiði og Svínadal. 15.10.2011 11:11
Geðhjúkrunarfræðingar vilja réttargeðdeild á Klepp Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga lýsti yfir stuðningi við að starfsemi réttargeðdeildarinnar á Sogni verði færð á Klepp á fundi í gær. 15.10.2011 10:50
Tvenn mótmæli í miðbænum í dag Boðað hefur verið til tveggja mótmælafunda í miðbæ Reykjavíkur, en kveikjan að þeim báðum eru alþjóðleg mótmæli sem fram fara víða um heim í dag. 15.10.2011 10:32
Réðust á lögregluna Þrír menn réðust að nokkrum lögregluþjónum í Sandgerði um ellefuleytið í gærkvöldi. Lögregla var kölluð að heimahúsi í bænum og stöðvaði mennina þegar þeir voru á leið þar út. 15.10.2011 10:29
Flugfreyjur á leið í verkfall Flugfreyjufélag Ísland felldi í gær nýjan kjarasamning við Icelandair og er þetta í annað sinn sem flugfreyjur hjá fyrirtækinu hafna samningi sem samninganefnd þeirra hefur gert. 15.10.2011 10:05
Tveir snarpir jarðskjálftar nærri Hveragerði Jarðskjálfti upp á 3,8 á richter skók jörðu rétt eftir klukkan níu í morgun. Upptök skjálftans voru við Hellisheiðarvirkjun samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. 15.10.2011 09:44
Kona og barn flutt á spítala eftir umferðaróhapp Kona misst stjórn á bifreið sinni á Suðurlandsveginum, skammt frá Litlu Kaffistofunni, snemma í morgun. Með konunni í bílnum var lítið barn. 15.10.2011 09:39
Eldur í barnaherbergi Eldur kviknaði í barnaherbergi í húsinu Birkifelli, sem er Við Laugar í Reykjadal, skammt frá Húsavík. 15.10.2011 09:34
Ætlar sér að stefna Regnbogabörnum Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti ætlar sér að stefna samtökunum Regnbogabörnum fyrir að hafa ekki greitt sér fyrir bókina fyrir átta árum. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2003 þegar höfundurinn, Harpa Lúthersdóttir, gerði samkomulag við þáverandi framkvæmdastjóra samtakanna, Freyju Friðbjarnardóttur, um að gefa öllum börnum sem áttu að byrja í skóla haustið 2004 bókina að gjöf. Fjöldi barna það ár var 4.173 og lét Harpa því prenta 5.000 eintök. Framtakið var auglýst í bæklingi frá samtökunum árið 2003, en ekkert varð síðan af gjöfinni, því bókin var ekki talin nægilega góð til að gefa til grunnskólanna, að mati sérfræðinga. Harpa lagði út um tvær milljónir króna í útgáfu bókarinnar á sínum tíma. Hún hefur verið í reglulegum samskiptum við forsvarsmenn Regnbogabarna síðan bókin var gefin út, en upplagið hefur verið geymt í húsnæði samtakanna í fjölda ára. „Þetta er mjög sárt. Mér líður eins og ég hafi verið svikin,“ segir Harpa, sem var sjálf lögð í mikið einelti alla sína barnæsku og var það kveikjan að bókinni, sem ber heitið „Má ég vera memm?“. Samtökin hafa boðið Hörpu hálfa milljón króna og allar bækurnar til baka, en hún vill ekki taka því. „Ég viðurkenni að ég var svo vitlaus að trúa því að eineltissamtök stæðu við orð sín,“ segir Harpa. „En ég er með sannanir sem sýna fram á að samkomulagið var gert áður en ég lét prenta bækurnar.“ Stefán Karl Stefánsson, stofnandi Regnbogabarna, viðurkennir vissulega að mistök hafi verið gerð á sínum tíma. „Þetta voru mistök og bráðlæti í fólki í upphafi. Við tökum hluta af því á okkur,“ segir Stefán Karl. „Við buðum henni 500 þúsund og bækurnar til baka, en hún vildi ekki taka því. En við viljum leysa úr þessu máli í góðu, það er engin spurning.“ Stefán Karl segir samtökin hafa reynt allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma til móts við Hörpu, en allt komið fyrir ekki. Lögfræðingur Hörpu er nú að undirbúa stefnu á hendur Regnbogabörnum, og hefur fundað með forsvarsmönnum þeirra. sunna@frettabladid.is 15.10.2011 09:15
Kólnandi veður á landinu næstu daga Veður fer kólnandi á landinu á morgun með norðanátt á Vesturlandi og snjókomu. Úrkoman færir sig svo yfir Norður- og Austurlandið í næstu viku. Suðurland sleppur mestmegnis við snjó, en norðanáttin verður köld og nokkuð hvöss. 15.10.2011 09:00
Vændi verði síður aðgengilegt Fréttablaðið og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa efnt til samstarfs um að koma í veg fyrir birtingar hugsanlegra dulinna vændisauglýsinga. 15.10.2011 08:45
Íslendingar næsthamingjusamastir á eftir Dönum Íslendingar eru næsthamingjusamasta þjóð veraldar á eftir Dönum. Þetta er niðurstaða Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) sem hefur gefið út skýrslu um vellíðan og hamingju í 40 löndum víða um heim. 15.10.2011 08:30
Mesta virknin líklega að baki Orkustofnun, með liðsinni Veðurstofu Íslands, ÍSOR og Orkuveitu Reykjavíkur, er að leggja lokahönd á minnisblað vegna smáskjálftavirkni á Hengilsvæðinu. Skjálftarnir tengjast niðurdælingu á jarðhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun. Úttektin er gerð að frumkvæði iðnaðarráðuneytisins en skjálftavirknin hefur valdið íbúum nærliggjandi byggða nokkrum áhyggjum. 15.10.2011 08:15
Hönnun bruna-reits verðlaunuð Dómnefnd Phillipe Rotthier-stofnunarinnar hefur veitt arkitektastofunum ARGOS, Gullinsniði og Studio Granda sérstaka viðurkenningu fyrir hönnun endurbyggingar eftir miðbæjarbrunann. 15.10.2011 08:00
Stefna að því að gera veskið óþarft Valitor mun bráðlega fara af stað með verkefni þar sem hópi viðskiptavina fyrirtækisins verður boðið að nota farsíma sinn sem kreditkort. Um er að ræða samstarfsverkefni Valitor, Visa í Evrópu og norska tækniöryggisfyrirtækisins Oberthur en Ísland verður tilraunamarkaður fyrir þessa nýju tækni. 15.10.2011 07:45
Forseti í viðtal vegna Airwaves Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fór í gærkvöldi í viðtal við bandarísku útvarpsstöðina KEXP, sem sendir nú út beint frá Kex hostel í miðborg Reykjavíkur. 15.10.2011 07:30
Bjarg á við rútubíl valt niður að byggð „Þetta hefði farið í gegnum hvaða íbúðarhús sem er eins og ekkert væri,“ segir Þorleifur Ágústsson, sem horfði á gríðarstór björg hrynja úr Gleiðarhjalla ofan Ísafjarðarbæjar á fimmtudag og staðnæmast rétt ofan við íbúabyggð. 15.10.2011 07:00
Reglurnar ekki í gildi þegar keypt var inn „Ábending Ríkisendurskoðunar um meint lögbrot ríkislögreglustjóra við innkaup á búnaði var byggð á reglugerð sem var ekki í gildi þegar innkaupin áttu sér stað.“ Þetta segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, spurður um innihald greinargerðar sem embætti ríkislögreglustjóra sendi innanríkisráðherra, Ögmundi Jónassyni, fyrr í mánuðinum í kjölfar ábendinga Ríkisendurskoðunar um innkaup löggæslustofnana á tímabilinu 2008 til 2011. Ríkisendurskoðandi taldi að ríkislögreglustjóri hefði átt að bjóða út kaup fyrir 12,6 milljónir króna og leita verðtilboða fyrir um sjö milljónir króna. 15.10.2011 06:45
Félag gegn lokun athvarfs fyrir fólk með geðraskanir Vin við Hverfisgötu, athvarf Rauða Krossins fyrir fólk með geðraskanir, mun loka dyrum sínum eftir tveggja áratuga starf, í lok mars á næsta ári að öllu óbreyttu. Meðlimir nýstofnaðs hollvinafélags athvarfsins, Vinafélagið, hyggjast standa vörð um starfsemina. 15.10.2011 06:30
164 milljarða afskriftir Fjármálafyrirtæki höfðu í lok ágúst afskrifað lán til einstaklinga um 163,6 milljarða króna. Niðurfærsla vegna hinnar svokölluðu 110 prósenta leiðar nemur um 27,2 milljörðum en enn eru fimm þúsund mál í vinnslu. Þá nemur niðurfærsla vegna sértækrar skuldaaðlögunar tæpum 5,6 milljörðum króna en 600 mál eru enn í vinnslu. 15.10.2011 06:00
Nammidagar varhugaverðir „Slíkt er ekki samkvæmt opinberum ráðleggingum,“ segir Elva Gísladóttir, verkefnisstjóri næringar hjá landslæknisembætti, sem mælir á móti vikulegum nammidögum. 15.10.2011 05:45
Ísafold prentar fyrir útlendinga Prentun fyrir erlenda viðskiptavini verður í framtíðinni verulegur hluti af veltu Ísafoldarprentsmiðju. Þetta segir prentsmiðjustjórinn Kjartan Kjartansson, sem nú er staddur á bókamessunni í Frankfurt. 15.10.2011 05:30
Enn ósamið við flugfreyjurnar Liðsmenn Flugfreyjufélags Íslands felldu nýjan kjarasamning við Icelandair. Er þetta öðru sinni í þessari lotu sem flugfreyjur hjá fyrirtækinu hafna samningi sem samninganefnd þeirra hefur gert. 15.10.2011 05:00
Ægir Geirdal stefnir ritstjóra Ægir Geirdal listamaður hefur stefnt Steingrími Sævari Ólafssyni, ritstjóra vefmiðilsins Pressunnar, fyrir meiðyrði. Hann krefst ómerkingar á sex ummælum þar sem hann er sakaður um kynferðisbrot. 15.10.2011 04:45
Alheimsmótmæli teygja anga sína til Íslands Boðað hefur verið til mótmælafundar á Lækjartorgi á morgun, þann 15. október, sem ber yfirskriftina „Tökum Torgin“. Þessi fundur mun hinsvegar ekki einungis vera bundinn við Lækjartorg, þar sem alls er áætlað að mótmælt verði í hátt í eitt þúsund borgum víðsvegar um heim. 15.10.2011 00:00
Rekstur hitaveitunnar aftur kominn í jafnvægi Rekstur hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu er nú aftur kominn í jafnvægi eftir að víðtæk truflun í raforkukerfinu á Suður- og Vesturlandi sló út dælum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var frá Orkuveitu Reykjavíkur nú fyrir stuttu. 14.10.2011 22:43
Eldingar valda truflunum hjá Orkuveitu Reykjavíkur Heitavatnsdælum sló út á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í kvöld vegna spennusveiflna í rafmagnskerfinu, en eldingum hefur slegið niður víða á Suður- og Vesturlandi í kvöld. 14.10.2011 21:07
Rannsakar þolendur snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri Margir þeirra sem lentu í snjóflóðunum í Súðavík og á Flateyri fyrir 16 árum og aðstandendur þeirra þjást enn af áfallastreituröskun og öðrum kvillum sem rekja má til hamfaranna. Þetta kemur fram í nýrri doktorsritgerð Eddu Bjarkar Þórðardóttur, doktorsnema í lýðheilsuvísindum og sálfræði við Háskóla Íslands. 14.10.2011 20:00
Notkun sýklalyfja við unglingabólum áhyggjuefni Hátt í þrjú hundruð börn á aldrinum 10 til 14 ára taka að jafnaði sýklalyf á hverjum degi vegna unglingabóla. Yfirlæknir á sýkladeild segir notkun sýklalyfja áhyggjuefni en fjölónæmum sýklum fer fjölgandi hér á landi. 14.10.2011 19:30
Engin skýrsla af sjeiknum Ekki hefur enn tekist fá skýrslu frá aðal vitninu í ein stærsta sakamáli efnahagshrunsins, sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, kaup sjeiksins Al-Thani á hlutabréfum í Kaupþingi. Sjeikinn nýtur diplómatískrar friðhelgi og hefur ekki orðið við ósk um að bera vitni í málinu. 14.10.2011 18:49
Eldingaveður á Suður- og Vesturlandi Nokkuð mikið hefur verið um eldingar á landinu í kvöld og fregnir hafa borist af rafmagnsleysi á Suður- og Vesturlandi. Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segist ekki geta staðfest að tenging sé á milli rafmagnsleysisins og veðurfarsins, en eldingarnar kynnu að halda áfram frameftir kvöldi. 14.10.2011 20:41