Innlent

Nammidagar varhugaverðir

Elva Gísladóttir
Elva Gísladóttir
„Slíkt er ekki samkvæmt opinberum ráðleggingum,“ segir Elva Gísladóttir, verkefnisstjóri næringar hjá landslæknisembætti, sem mælir á móti vikulegum nammidögum.

Að sögn Elvu er af og frá að líkamanum sé hollt að fá vikulegt sjokk skyndibita og sykurs með einum sukkdegi. Slíkt sé bábilja sem líkamsræktarfólk prédiki gjarnan.

Þá hvetur hún fólk til að vanda sælgætisval fyrir börn því víða sé pottur brotinn í merkingum á litarefnum sem eru talin tengjast ofvirkni barna.

- þlg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×