Innlent

Réðust á lögregluna

Þrír menn réðust að nokkrum lögregluþjónum í Sandgerði um ellefuleytið í gærkvöldi. Lögregla var kölluð að heimahúsi í bænum og stöðvaði mennina þegar þeir voru á leið þar út.

Þeir tóku afskiptum lögreglu illa með fyrrgreindum afleiðingum og eftir nokkur átök var þeim skellt í járn og gista nú fangageymslur. Enginn hlaut alvarleg meiðsli í ryskingunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×