Notkun sýklalyfja við unglingabólum áhyggjuefni 14. október 2011 19:30
Hátt í þrjú hundruð börn á aldrinum 10 til 14 ára taka að jafnaði sýklalyf á hverjum degi vegna unglingabóla. Yfirlæknir á sýkladeild segir notkun sýklalyfja áhyggjuefni en fjölónæmum sýklum fer fjölgandi hér á landi. Fjölónæmir sýklar eru vaxandi vandamál hér á landi. Slíkir sýklar valda sýkingum sem oft getur verið erfitt að ráða við. Þannig þarf oft bæði sterkari og dýrari sýklalyf til að vinna bug á sýkingunum. Karl Kristinsson, yfirlæknir á sýkladeild Landspítalans hefur áhyggjur af vaxandi sýklalyfjaónæmi. Hann telur að í sumum tilfellum sé verið að nota of mikið af sýklalyfum og nefnir þar sem dæmi svokölluð tetrasýklalyf, sem eru að hans mati of mikið notuð við meðhöndlun unglingabólna. Aðeins eitt slíkt lyf er í notkun hér á landi það er doxýsýklín, sem er breiðvikt sýklalyf. Notkunin er mest í aldurshópnum 10 til 14 ára en árið 2009 voru að jafnaði 266 börn að taka þetta sýklalyf á hverjum degi. „Ég held við séum allavega Evrópumeistarar, ef ekki heimsmeistarar í notkun á þessum lyfjum. Það skýrist nánast að mestu leyti, ef ekki öllu leyti af mikilli notkun við unglingabólum." segir Karl, en sterk fylgni er á milli sýklalyfjanotkunar og sýklalyfjaónæmis. „Eftir því sem sýklalyfjanotkun er meiri því mun meira er um sýklalyfjaónæmi og hraðari þróun." Hann segir því að mikilvægt sé að draga úr óhóflegri og mikilli notkun sýklalyfja til að tefja þessa þróun. Þegar séu komnar bakteríur sem engin lyf ráða við en þær hafi sem betur fer enn ekki borist hingað til lands. „Þróun á nýjun skýklalyfjum hefur nánast stöðvast og það eru engin ný sýklalyf í sjónmáli."
Mest lesið „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Gular viðvaranir taka gildi Veður Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Samfélagsmiðlabann án fræðslu stoðar lítið Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Sjá meira
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“