Innlent

Hönnun bruna-reits verðlaunuð

Lækjargata 2 og 2b og Austurstræti 22 brunnu til kaldra kola en hafa verið byggð upp í upprunalegri mynd.
Lækjargata 2 og 2b og Austurstræti 22 brunnu til kaldra kola en hafa verið byggð upp í upprunalegri mynd. fréttablaðið/vilhelm
Dómnefnd Phillipe Rotthier-stofnunarinnar hefur veitt arkitektastofunum ARGOS, Gullinsniði og Studio Granda sérstaka viðurkenningu fyrir hönnun endurbyggingar eftir miðbæjarbrunann.

Viðurkenningin er veitt fyrir besta endurnýjun í borgum, bæjum eða byggingum í Evrópu síðastliðin fimm ár. Verðlaunin eru virt meðal arkitekta. Verðlaunin verða veitt á morgun við hátíðlega athöfn í Arkitektúrsafninu í La Loge í Brussel.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×