Innlent

Kona og barn flutt á spítala eftir umferðaróhapp

Atvikið átti sér stað skammt frá Litlu kaffistofunni.
Atvikið átti sér stað skammt frá Litlu kaffistofunni.
Kona misst stjórn á bifreið sinni á Suðurlandsveginum, skammt frá Litlu Kaffistofunni, snemma í morgun. Með konunni í bílnum var lítið barn.

Sjúkrabíll frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu flutti konuna og barnið á Landspítalann. Konan var nokkuð lemstruð eftir óhappið en hvorugt var illa slasað.

Hálka var á veginum þegar óhappið varð. Bíllinn er óökufær eftir slysið.

Þá þurfti lögreglan að aðstoða nokkra íbúa á höfuðborgarsvæðinu vegna vatnsleka. Í flestum tilvikum var um minniháttarleka að ræða. Í Skeiðarvoginu lak hinsvegar í kjallara fjölbýlishúss. Skemmdir voru þó ekki miklar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×