Innlent

Enn ósamið við flugfreyjurnar

Verkfall flugfreyja er boðað 24. og 25. október.
Verkfall flugfreyja er boðað 24. og 25. október.
Liðsmenn Flugfreyjufélags Íslands felldu nýjan kjarasamning við Icelandair. Er þetta öðru sinni í þessari lotu sem flugfreyjur hjá fyrirtækinu hafna samningi sem samninganefnd þeirra hefur gert.

„Þetta eru viss vonbrigði en við áttum alveg eins von á þessu,“ segir Margrét Svavarsdóttir, gjaldkeri Flugfreyjufélagsins. Að sögn Margrétar greiddu 119 atkvæði með samningnum en 128 voru á móti og fjórir skiluðu auðu. Þátttakan í atkvæðagreiðslunni var 65 prósent. Margrét segir að ný samninganefnd verði skipuð um helgina. Verkfall er boðað hjá flugfreyjum dagana 24. og 25. október. Ekki náðist í talsmann Icelandair.

- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×