Innlent

Eldingu laust niður í flugvél Icelandair

Eldingu laust niður í flugvél Icelandair snemma í morgun. Vélin var að koma frá Boston þegar eldingu laust niður í vélina.

Flugvélar eru hannaðar með það í huga að eldingu geti slegið niður í vélarnar. Því var lítil hætta á ferð samkvæmt upplýsingafulltrúa Icelandair.

Aftur á móti þurfti flugvélin að gangast undir skoðun sem seinkaði áætlunarflugi til Oslóar um tvo og hálfan tíma í morgun.

Þess má svo geta að eldingu laust niður í flutningslínu Landsnets á Mosfellsheiði stuttu eftir klukkan átta í gærkvöldi sem olli rafmagnstruflunum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×