Fleiri fréttir

Hægt að koma málum fyrir dóm án lagabreytinga

Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, telur ekki þörf á sérstakri flýtimeðferð einkamála eins og Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til á þingi í morgun.

Sveinn Andri: Ástæða til að óttast klofning í Sjálfstæðisflokknum

Sjálfstæðismenn hafa ástæðu til að óttast klofning flokksins verði tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka borin upp á landsfundi flokksins um helgina. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna.

Jón Gnarr: Verð bara í jakkafötum við sérstök tilefni

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík hefur ákveðið að ganga aðeins í jakkafötum við sérstök tilefni. Þetta segir hann í dagbók sinni sem hann heldur úti á fésbókinni. Þar segir hann einnig að hann hafi heimsótt Fjölskylduhjálp Íslands sem og Konukot í gær og „fundað um allskonar".

Eðlan svæfð í morgun

Meters-langa eðlan, sem fannst í húsgarði á Selfossi í gærkvöldi, var aflífuð í morgun. Lögreglan fann eðluna og kom fundurinn lögreglunni í opna skjöldu, enda óárennilegt kvikindi viti maður ekkert um það.

Gekk með öxi og stal kardimommudropum og bikiní

Fimmtugur karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að stela fjórum glösum af kardimommudropum og bikiní. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að bera öxi á almannafæri þar sem hann gekk eftir Hverfisgötunni í janúar síðastliðnum.

Heimdallur vill ekki ríkisafskipti vegna dómsins

Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að sitja á sér með afskipti af svokölluðum myntkörfulánum og samningum þess efnis í kjölfar dóms Hæstaréttar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið hefur sent fjölmiðlum.

Vill að gengistryggingarmál fái flýtimeðferð

Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ásamt fleiri þingmönnum Sjálfstæðisflokksins lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um meðferð einkamála sem tryggja að mál sem varða gengistryggð lán og álitaefni þeim tengd fái flýtimeðferð í dómskerfinu.

Sveitastjóri blæs á lygasögur

Gengið verður til kosninga í Reykhólahreppi þann 24. júlí næstkomandi. Endurtaka þarf kosningarnar vegna mistaka sveitastjórans en það láðist að senda íbúum Flateyjar upplýsingar um sveitastjórnarkosningarnar á dögunum. Sveitastjórinn blæs á sögur þess efnis að hann hafi þegar sótt um aðra sveitastjórastöðu.

„Þau geta bara vandræðast með þessar undirskriftir innanhúss“

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, fékk rúmlega 700 undirskriftir mótmælenda við yfirlýsingu um árásir á alþingi afhentar í morgun. Ásta Ragnheiður fékk undirskriftirnar afhentar úr höndum Ragnheiðar Ástu, fyrrum þulu RÚV, en Ásta Ragnheiður hitti þrjátíu manna hóp fyrir utan Alþingishúsið.

Orkan sektuð fyrir auglýsingu

Orkan hefur verið sektuð af Neytendastofu vegna auglýsinga fyrirtækisins. Alls þarf Orkan að greiða 600 þúsund krónur í stjórnvaldssekt. Neytendastofu barst kvörtun frá Olíuverslun Íslands vegna fullyrðinga í auglýsingum Bensínorkunnar sem rekur bensínstöðvar Orkunnar.

Vilja starfandi stjórnarformann

Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík mun leggja til að Haraldur Flosi Tryggvason verði starfandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Það þýðir að hann mun gegna formennsku í fullu starfi á hærri launum en fyrrum formenn.

Fréttaskýring: Um hvað snúast fundahöld stjórnmálaflokka um helgina?

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um helgina, auk flokksráðsfunda Samfylkingarinnar og Samfylkingarinnar. Á fundunum verður meðal annars rætt um niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis og niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna, þar sem allir hefðbundir flokkar töpuðu fylgi frá kosningunum fyrir fjórum"arum.

Kennslu í ritmáli ábótavant

Tæpur þriðjungur nemenda í Háskóla Íslands (HÍ) telur sig vanbúinn að skrifa ritgerðir eða skýrslur þegar í HÍ er komið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem unnin var í HÍ.

Fiskarnir synda á ný í Vesturbæjarlaug

Hulunni var svipt af forláta fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar í gær. Mímir, vináttufélag Vesturbæjar, stóð fyrir söfnun meðal íbúa Vesturbæjar og í gær varð afraksturinn öllum ljós.

Skólar búa námsfólk misvel undir háskóla

Nemendur úr framhaldsskólum telja sig misvel búna undir háskólanám eftir því í hvaða skóla þeir stunduðu nám. Nokkrir skólar skera sig úr og nemendur þeirra virðast betur undirbúnir.

Íslendingar til fyrirmyndar

Þjóðarátakinu „Til fyrirmyndar“ verður hleypt af stokkunum í dag með opnun heimasíðunnar tilfyrirmyndar.is.

Földu lyf og efni í bifreið

Lögreglan á Selfossi handtók tvo karlmenn og eina konu síðastliðinn föstudag vegna gruns um tilraun til að smygla lyfjum og öðrum efnum inn í fangelsið á Litla-Hrauni. Aðferðin fólst í því að fela efnin í bifreið sem annar karlmannanna hafði ætlað að láta bóna og þrífa á Litla-Hrauni.

Kosið aftur í Reykhólahreppi

Kosið verður á ný í Reykhólahreppi laugardaginn 24. júlí. Kosningin fer fram í skrifstofum sveitarfélagsins að Reykhólum.

Metfjöldi ungmenna fær vinnu

Aldrei áður hafa jafnmörg ungmenni fengið vinnu við Jafningjafræðslu Hins hússins en alls fengu nítján ungmenni á aldrinum 17 til 21 árs vinnu í sumar. Þessi störf eru gríðarlega eftirsóknarverð hjá ungu fólki en árlega sækja um 400 til 500 ungmenni um störfin.

Mikill áhugi á jurtalituninni

Gríðarlegur áhugi er á jurtalitun um þessar mundir. „Það er algjör sprenging í jurtalitun. Við finnum fyrir gríðarlegum áhuga," segir Þorgerður Hlöðversdóttir textíllistakona.

Bætt aðgengi að Gunnuhver

Opnað var fyrir aðgengi ferðamanna að Gunnuhver í landi Grindavíkurbæjar í gær. Síðustu tvö ár hefur svæðið verið lokað.

Staðan furðugóð miðað við samdrátt

Almennt er staða á biðlistum eftir skurðaðgerðum á sjúkrahúsum og læknastofum góð ef miðað er við sama tímabil fyrir ári. Þó eru þar undantekningar á, svo sem vegna gerviliðaaðgerða á hné, að því er fram kemur á vef landlæknisembættisins.

„Lánþegar hafa mátt þola nóg“

„Samræður aðila eru fyrsta skref í átt að lausn. Einhliða ákvarðanir stjórnvalda og þeirra sem Hæstiréttur dæmdi brotlega er hvorki lögleg leið, né réttlát eða leið til sátta,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Samtökum lánþega og talsmanni neytenda.

Ræðir um hindurvitni og hnignun skynseminnar

„James er þekktur fyrir að afhjúpa miðla og svikahrappa. Í erindi sínu mun hann fjalla um hindurvitni og hnignun skynseminnar," segir Sigurður Hólm Gunnarsson hjá Siðmennt, félagi siðrænna húmanista á Íslandi, um heimsókn Bandaríkjamannsins James Randi til Íslands.

Þór Saari: Þeir gengu alveg fram af mér

„Þeir gengu alveg fram af mér og að ég held flestum fundarmönnum með afstöðu sinni til þessara dóma og með afstöðu sinni til almennings í landinu. Mér líst miklu verr á stöðuna eftir þennan fund þó hann hafi vissulega verið upplýsandi,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.

Mokað undan brúnni yfir Svaðbælisá

Byrjað var í dag að moka ösku undan brúnni yfir Svaðbælisá á hringveginum undir Eyjafjöllum en í aurflóðum vegna eldgossins fylltist farvegur hennar næstum undir brúargólf.

Halldór hlaut Gaddakylfuna

Ragna Árnadóttir dómsmáláráðherra afhent Halldóri E. Högurði rithöfundi Gaddakylfuna í dag fyrir bestu sakamálasöguna í glæpasmásögukeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags.

Lítið bólar á verðlækkunum á innfluttum vörum

Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar lítið á verðlækkunum á innfluttum vörum. Forsvarsmenn verslunarinnar fullyrða að þeir hafi tekið á sig afkomuskerðingu. Hagfræðingur ASÍ segir skerðinguna ekki vegna þess að vöruverð hafi ekki hækkað. Skýringar séu aðrar.

Náðu ekki samkomulagi um hvalveiðar

Tilraunir til að ná samkomulagi um hvalveiðar á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem fram fór í Marokkó runnu út í sandinn. Reynt var að komast að samkomulagi um málamiðlun sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. Eftir tveggja daga fundarhöld sé ljóst að ekkert samkomulag mun nást.

Skaftárhlaup í hámarki í dag

Hlaupið í Skaftá, sem reynst hefur stærra en talið var í fyrstu, virðist hafa náð hámarki í dag. Verulegar líkur eru taldar á öðru hlaupi innan fárra mánaða.

Enginn með allar tölur réttar

Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í dag. Vinningurinn verður því tvöfaldur í næstu viku. Tölurnar voru 21, 24, 36, 38, 45 og 48. Bónustölurnar voru 12 og 37. Ofurtalan var 10.

Frumvarp um gjaldþrotaskipti frestast

Frumvörp um greiðsluaðlögun, tímabundin úrræði fyrir þá sem eiga tvær fasteignir og umboðsmann skuldara verða afgreidd á Alþingi á morgun, á síðasta þingfundi fyrir sumarfrí. Þá verður einnig afgreitt frumvarp um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda.

Icelandair segir upp 54 flugmönnum

Icelandair hefur sagt upp 54 flugmönnum í júní. Í byrjun mánaðarins fengu 26 flugmenn flugfélagsins uppsagnarbréf sem tekur gildi 1. september. Í dag var haldinn flugmannafundur hjá félaginu þar sem tilkynnt var um 28 uppsagnir í viðbót.

Stjórnin hefur ekkert með ákvörðun Páls að gera

Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að stjórn Ríkisútvarpsins muni væntanlega ræða þá ákvörðun hans að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur sem dagskrástjóra á fundi sínum á þriðjudag. Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið hefur stjórnin ekkert með, þá ákvörðun hans um að ráða Sigrúnu, að gera.

Þorsteinn J.: Vill bara bestu sérfræðingana

„Kjarni málsins er að ég, sem ritstjóri þáttarins, vill fá bestu sérfræðingana til þess að tala um leikina og mín skoðun er sú að Hjörvar, Pétur og Auðunn eru þeir bestu,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson, sem sér um HM þættina á Ríkisútvarpinu en framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu, Kristín Ástgeirsdóttir, segir að á undanförnum dögum hafi borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður-Afríku.

Vill íbúakosningar um ráðningu bæjarstjóra Hafnarfjarðar

Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun bæjarbúa til þess að knýja á um íbúakosningu vegna ráðningu Lúðvíks Geirssonar, sem var ráðinn bæjarstjóri eftir að hafa fallið út úr bæjarstjórn. Hann sat í sjötta sæti lista Samfylkingarinnar en flokkurinn náði aðeins fimm mönnum inn. Lúðvík hefur hinsvegar verið bæjarstjóri í átta ár.

Ísland á öruggustu vatnsbirgðir jarðar

Ný skýrsla leiðir í ljós að Ísland á öruggustu vatnsbirgðir heimsins. Sómalía er hinsvegar í mestum vandræðum og þar á eftir koma Afríkuríkin Mauritanía, Súdan og Níger.

Tveir friðargæsluliðar til Kabúl

Tveir friðargæsluliðar á vegum Íslensku friðargæslunnar, Þorbjörn Jónsson, sendiráðunautur í utanríkisþjónustunni, og Guðrún S. Þorgeirsdóttir, sérfræðingur frá Varnarmálastofun, eru í þann mund að hefja störf hjá fjölþjóðaliðinu (ISAF) í Kabúl í Afganistan.

Sjá næstu 50 fréttir