Korn og gras virðist spretta betur í dökkri öskunni 23. júní 2010 18:58
Askan úr Eyjafjallajökli virðist hafa þau áhrif að bæði korn og gras vaxa betur en áður. Bóndi við Pétursey segir að dökk askan valdi því að meiri hiti sé í jarðveginum. Hjónin í Eystri-Pétursey voru í heyskap í dag. Húsfreyjan Kristín Magnúsdóttir sló túnið en bóndinn Sigurjón Eyjólfsson fylgdi á eftir og sneri. Bæirnir undir Pétursey voru meðal þeirra sem urðu fyrir hvað mestu öskufalli í eldgosinu í vor. Sigurjón segir að þau hafi haft talsverður áhyggjur af því að heyin yrðu rykmenguð. Þau séu nú bjartsýnni og þetta líti betur út en þau þorðu að vona. Ummerki öskufallsins sjást glöggt í túninu en um þriggja sentímetra þykkt öskulag er að jafnaði í rótinni. Sigurjón segir að það hafi sérstaklega verið mikið af þessu fína ryki sem kom í restina. Þau slá grasið ofarlega og ætla að hirða heyið í blautari kantinum í von um rykið verði þá minna. Við hliðina á túninu er bygg að vaxa í dökkri öskunni en öfugt við það sem flestir myndu ætla þá vex kornið nú sem aldrei fyrr. Sigurjóni sýnist kornsprettan ætla að verða mjög góð þetta árið. Hann telur að jarðvegurinn sé heitari í rótinni þegar sólin hitar upp öskuna og segir að mjög mikil gróska sé í korninu. Og sama virðist gilda um grasvöxtinn og kveðst bóndinn ekki frá því að hann sé einnig ívið meiri. Mikil spretta hafi verið í grasinu síðustu daga.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Sjá meira