Stjórnin hefur ekkert með ákvörðun Páls að gera Boði Logason skrifar 23. júní 2010 16:52 Páll Magnússon, útvarpsstjóri.
Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að stjórn Ríkisútvarpsins muni væntanlega ræða þá ákvörðun hans að ráða Sigrúnu Stefánsdóttur sem dagskrástjóra á fundi sínum á þriðjudag. Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið hefur stjórnin ekkert með, þá ákvörðun hans um að ráða Sigrúnu, að gera.Stjórnin ekkert með ráðninguna að gera Ari Skúlason, stjórnarmaður í RÚV, sagði í samtali við Pressuna í morgun að hann vænti þess að hann myndi beita sér fyrir því að staðan yrði auglýst. Hann sagði einnig að „ekki sé eðlilegt að öllu jöfnu að ráða í stöður án auglýsingar" en hann reikni með að ráðning Páls sé ekki til frambúðar heldur tímabundin. Þá hefur Pressan eftir heimildum að sú skoðun að auglýsa stöðuna á nýjan leik njóti stuðnings innan stjórnarinnar. Á Eyjunni er haft eftir Svanhildi Kaaber, formanni stjórnarinnar, að hún eigi ekki von á því að stjórnin muni setja sig upp á móti ákvörðun Páls. Samkvæmt 10.gr laga um Ríkisútvarpið ohf. segir: „Útvarpsstjóri ræður aðra starfsmenn Ríkisútvarpsins ohf." - Því virðist sem stjórnin hafi ekki aðkomu að ákvörðun Páls um að ráða Sigrúnu, það er því hans ákvörðun sem útvarpsstjóra.Einungis brugðist við aðstæðum Páll segir að ráðningin Sigrúnar sé ekki tímabundin, eins og Ari býst við, og það sé ekki skylda Ríkisútvarpsins að auglýsa stjórnunarstöður en það sé hins vegar meginstefnan. „Það er meginstefna RÚV að auglýsa lausar stjórnarstöður sem hér eru og þess vegna voru þessar tvær stöður auglýstar, staða dagskrástjóra sjónvarps og mannauðstjóra," segir Páll og tekur fram að ekki sé skylda RÚV að auglýsa stöður. „Það geta hins vegar komið upp þær aðstæður að menn víki út frá þeirri meginreglu og þær aðstæður sköpuðust í vikunni og því var brugðist við þeim."Stjórn RÚV mun svo hittast á þriðjudaginn og býst Páll við að ráðningin beri á góma þar. „Stjórnin mun væntanlega ræða málið þá og þá skal ég ræða við þig um þetta mál," segir Páll.
Tengdar fréttir Gagnrýnir ráðningu Sigrúnar sem dagskrárstjóra Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, gagnrýnir ráðningu Sigrúnar Stefánsdóttur í stöðu dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins. Hann telur að Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefði þess í stað átt að líta til þeirra sem sóttu um stöðuna í mars. 22. júní 2010 20:15 Páll: Kom til greina að auglýsa starfið aftur Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að það hafi vel komið til greina að auglýsa starf dagskrástjóra aftur eftir að Erna Kettler, tiltölulega nýráðin sem dagskrástjóri sjónvarps, sagði starfi sínu lausu vegna heilsufarsástæðna í dag. 22. júní 2010 16:30 Nýráðin dagskrástjóri sjónvarps segir starfi sínu lausu Erna Kettler, nýráðin dagskrárstjóri sjónvarpsins, hefur sagt starfi sínu lausu af heilsufarsástæðum. Þetta kemur fram á vef RÚV. 22. júní 2010 14:40 Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira
Gagnrýnir ráðningu Sigrúnar sem dagskrárstjóra Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, gagnrýnir ráðningu Sigrúnar Stefánsdóttur í stöðu dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins. Hann telur að Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefði þess í stað átt að líta til þeirra sem sóttu um stöðuna í mars. 22. júní 2010 20:15
Páll: Kom til greina að auglýsa starfið aftur Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að það hafi vel komið til greina að auglýsa starf dagskrástjóra aftur eftir að Erna Kettler, tiltölulega nýráðin sem dagskrástjóri sjónvarps, sagði starfi sínu lausu vegna heilsufarsástæðna í dag. 22. júní 2010 16:30
Nýráðin dagskrástjóri sjónvarps segir starfi sínu lausu Erna Kettler, nýráðin dagskrárstjóri sjónvarpsins, hefur sagt starfi sínu lausu af heilsufarsástæðum. Þetta kemur fram á vef RÚV. 22. júní 2010 14:40