Fiskarnir synda á ný í Vesturbæjarlaug 24. júní 2010 06:00 Barnabarnabörn Gísla Halldórssonar arkitekts, sem hannaði Vesturbæjarlaugina, hjálpuðu til. fréttablaðið/arnþór
Hulunni var svipt af forláta fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar í gær. Mímir, vináttufélag Vesturbæjar, stóð fyrir söfnun meðal íbúa Vesturbæjar og í gær varð afraksturinn öllum ljós. „Þetta er merkur áfangi sem við erum að ná hérna í dag,“ sagði Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður Mímis, við þetta tilefni og bætti við: „Þetta er verkefni sem byggist á skemmtilegu „konsepti“ sem við getum kallað íbúafrumkvæði og byggist á gömlum og góðum gildum. Við erum mjög stolt af því að hafa átt frumkvæði af því að borgararnir hafi áhuga, vilja og getu til þess að hafa áhrif á sitt nærumhverfi.“ Lengi vel stóð fiskabúr í anddyri laugarinnar sem hannað var af Gísla Halldórssyni arkitekt. Það var hins vegar tekið niður árið 1985. Gísli, sem verður 96 ára á árinu, var verndari söfnunarinnar og las Margrét Leifsdóttir, barnabarn hans og einn hönnuða nýja búrsins, upp ávarp frá honum við afhjúpunina. Í því kom fram að gamla fiskabúrið hefði verið sérlega vinsælt hjá unga fólkinu. Hönnuðir búrsins að þessu sinni eru Bjarki Gunnar Halldórsson arkitekt, Margrét Leifsdóttir og Sigurður Gunnarsson verkfræðingur. Allir sem að verkefninu komu gáfu vinnu sína og nánast allur útlagður kostnaður var vegna efnis. Íþrótta- og tómstundaráð mun taka við rekstri búrsins. Félagar í Mími eru ekki hættir þótt fiskabúrið sé komið upp, að því er kom fram í gær, fleiri verkefni bíði í Vesturbænum. Þeir hittast einu sinni í mánuði á Mímisbar á Hótel Sögu. Allir áhugamenn um Vesturbæinn eru velkomnir á fundi félagsins. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira