Fleiri fréttir

Dr. Gunni verður ekki formaður strætó

Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, mun ekki verða formaður Strætó BS. eins og kom fram eftir að nýr meirihluti tók við í Reykjavík 15. júní síðastliðinn. Ástæðan er sú að hann er varaborgarfulltrúi og má því ekki taka starfið að sér. Aðeins borgarfulltrúar mega gegna starfinu. Þetta segir Dr. Gunni á heimasíðu sinni.

Sagði blaðamanni að matreiða viðtalið eins og hann vildi

Blaðamaður Fréttablaðsins, Klemens Ó. Þrastarson, sem ræddi og skrifaði viðtal við Pétur Blöndal þingmann, í Fréttablaðinu í gær, segir viðbrögð Péturs koma honum á óvart. Pétur sagði í viðtali á Bylgjunni í gær að hann hefði ekki vitað að hann hefði verið í viðtali við Fréttablaðið þegar ummælin voru eftir honum höfð.

Útséð um sátt á ársfundi hvalveiðiráðsins

Tilraunir til þess að koma á sátt í Alþjóðahvalveiðiráðinu hafa mistekist. Á ársfundi ráðsins sem nú stendur yfir var reynt að komast að samkomulagi um málamiðlun sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. BBC greindi hinsvegar frá því í dag að viðræðurnar hafi farið út um þúfur og að eftir tveggja daga fundarhöld sé ljóst að ekkert samkomulag mun nást.

Jafnréttisstofa spyr hvar konurnar séu á HM

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir að á undanförnum dögum hafi borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna við lýsingar á leikjum á HM í Suður-Afríku.

Sýknaður af kynferðisbroti

Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir kynferðisbrot gegn átta ára gamalli frænku sinni. Stúlkan er dóttir systur mannsins en það var faðir stúlkunnar sem kærði. Þau stóðu í skilnaði á sama tíma.

Makríllinn setur strandveiðimenn í bobba

Strandveiðisjómenn eru komnir í þá klípu að mega hvorki hirða né henda þeim makríl, sem óhjákvæmilega slæðist á öngla þeirra við veiðar á öðrum tegundum. Þeir eru lögbrjótar, hvað sem þeir gera.

Skattaflótti til Mónakó stöðvaður

Norðurlöndin, auk sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands og Færeyja, undirrituðu samning í dag um skipti á upplýsingum við Mónakó. Samningurinn er árangur umfangsmikils starfs sem unnið er innan Norrænu ráðherranefndarinnar og felst í því að stöðva skattaundanskot. Hann mun veita norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla sem reyna að komast hjá því að greiða tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt.

ASÍ: Lítið bólar á verðlækkunum á matvöru

Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar enn lítið á verðlækkunum á innfluttum neysluvörum að sögn ASÍ. Í frétt á heimasíðu sambandsins segir að forsvarsmenn verslunarinnar hafi fullyrt að verslunin hafi almennt tekið á sig afkomuskerðingu vegna veikra stöðu krónunnar og að það ráðist einkum af veltuhraða hversu hratt styrking á gengi krónunnar gæti í vöruverði.

Fjármálaráðherra líst vel á bankaskatt

„Ég held að þetta sé að mörgu leyti rétt hugsun og mér fellur hún vel. Að til viðbótar innlánstryggingakerfi sem á að fjármagna sig sjálft með iðgjöldum innlánsstofnana, sé lagt í einhvern stöðugleikasjóð. Þannig er kerfið sjálft látið bera hluta kostnaðarins sem áföll í fjármálakerfinu hafa þegar valdið. Þannig að þetta verður örugglega skoðað hér, allavega stendur minn hugur til þess," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, spurður um hugmyndir sem settar hafa verið fram um sértækan tekjuskatt á banka.

Litlar líkur á sátt í hvalveiðiráðinu

Innbyrðis deilur andstæðinga hvalveiða á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins virðast ætla að koma í veg fyrir að samkomulag takist um málamiðlun, sem fæli í sér takmarkaðar hvalveiðar. Andrúmsloft innan ráðsins hefur þó batnað.

Kveikti eld í íbúðarhúsnæði

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir íkveikju. Manninum er gefið að sök að hafa í janúar á síðasta ári hellt bensíni inn í stigagang húss við Tryggvagötu í Reykjavík og kveikt síðan í.

Mótmælir umfjöllun um laun lækna

Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir í grein í Fréttablaðinu í dag neikvæðar og villandi upplýsingar einkenna umræðu um laun lækna í fjölmiðlum undanfarið.

Koma til móts við atvinnulaus ungmenni

Hitt húsið stendur fyrir þríliða sumardagskrá fyrir ungt fólk í júní og júlí með það að markmiði að virkja ungt fólk félagslega og þjálfa það í að setja sér markmið.

Kýldu mann og brutu tennur

Lögreglustjórinn á Húsavík hefur ákært tvo menn fyrir grófa líkamsárás. Þeim er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst 2009, á Þórshöfn, slegið mann hnefahöggum og sparkað í hann liggjandi. Tennur brotnuðu í fórnarlambinu, það fékk glóðarauga og áverka á hnakka.

Nágrannavarsla í Reykjanesbæ

Íbúar við Kjarrmóa í Reykjanesbæ hafa bundist samtökum um nágrannavörslu í samstarfi við bæjarfélagið. Munu íbúarnir fylgjast með húsum nágranna sinna þegar þeir eru að heiman og gæta eigna.

Safna 15 milljónum fyrir barnaheimili

Styrktarfélagið Sóley og félagar stendur um helgina fyrir sölu á tauboltum, en ágóðinn mun fara í byggingu nýs heimilis fyrir um 100 börn í Tógó.

Ók ölvaður á kyrrstæðan bíl

Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í kvöld. Á níunda tímanum barst tilkynning um að bifreið hefði verið ekið á kyrrstæða bifreið á Laugarnesvegi. Ökumaðurinn ók í burtu en lögreglumenn höfðu hendur í hári hans skömmu síðar. Ökumaðurinn er talinn hafa ekið undir áhrifum áfengis.

Kviknaði í grillinu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan sjö í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í gasgrilli á svölum í Búðagerði. Varðstjóri segir að húsráðendum hafi tekist að ráða niðurlögum eldsins áður en að slökkvilið kom á staðinn og því var dælubíl snúið við. Óverulegar skemmdir hlutust af eldinum.

Gagnrýnir ráðningu Sigrúnar sem dagskrárstjóra

Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, gagnrýnir ráðningu Sigrúnar Stefánsdóttur í stöðu dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins. Hann telur að Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefði þess í stað átt að líta til þeirra sem sóttu um stöðuna í mars.

Karlarnir prjóna og drekka bjór

Sænskur karlmaður, búsettur á Íslandi, hefur gefið út prjónabók en þar kemur fyrir nafnið á þriðja landinu því bókin heitir Rússneskt hekl á íslensku.

Auðveldar neytendum verðsamanburð

Fjarskiptamarkaðurinn er frumskógur í huga margra og hefur Póst og fjarskiptastofnun því hleypt af stokkunum reiknivél til að auðvelda neytendum verðsamanburð.

Gylfi Magnússon: Best að stjórnvöld gefi ekki skipanir

Tugir, ef ekki hundruð, lögfræðinga hafa skoðað gengislánin á síðustu níu árum án þess að sjá nokkurt athugavert við þau, segir forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann segir margt í uppnámi eftir myntkörfudóma Hæstaréttar. Viðskiptaráðherra vonast til að óvissunni linni á næstu dögum um hvernig eigi að greiða af gengislánum næstu mánuði.

Kanna hugsanlega hvort styrkirnir hafi farið í einkaneyslu

Til greina kemur að skattyfirvöld kanni hvort framboðsstyrkjum til stjórnmálamanna hafi verið varið í kosningabaráttu eða til eigin nota. Styrkirnir eru tekjuskattsskyldir hafi þeir runnið beint í vasa stjórnmálamannanna.

Kókaínsmygl: Einum sleppt og öðrum haldið

Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir manni sem grunaður er um aðild að innflutningi á 1,6 kílóum af kókaíni með flugi frá Alicante í apríl. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá þeim tíma. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. júlí en Hæstiréttur stytti tímann um fjóra daga en þá verða liðnar tólf vikur frá því hann hóf vistina.

Páll: Kom til greina að auglýsa starfið aftur

Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að það hafi vel komið til greina að auglýsa starf dagskrástjóra aftur eftir að Erna Kettler, tiltölulega nýráðin sem dagskrástjóri sjónvarps, sagði starfi sínu lausu vegna heilsufarsástæðna í dag.

Ferðamaðurinn kominn á spítala

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti um klukkan þrjú við Landspítalann í Fossvogi en þyrlan flutti slasaðan ferðamann sem hafði hlotið höfuðmeiðsl og bakmeiðsl.

Svandís: Almenningur njóti vafans

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að við ákvörðun um leyfilegt magn brennisteinsvetnis í andrúmslofti hafi heilsa og hagsmunir almennings fengið að njóta vafans. Gústaf Adolf Skúlason aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að ákvörðunin hafi valdið vonbrigðum og benti hann á að reglur hér á landi séu orðnar þrefallt strangari en Alþjóða heilbrigðisstofnunin miðar við.

Kvartað vegna utanvegaaksturs í Mosfellsbæ

Nokkuð hefur borið á kvörtunum um utanvegaakstur í Mosfellsbæ að undanförnu og virðist umferð jeppa, fjórhjóla og torfæruhjóla utan merktra vegslóða í hlíðum fella í Mosfellsbæ, s.s. Úlfarsfells og Æsustaðafells, vera algengur.

Fundu 1 kíló af hassi í bíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni í bifreið í Árbæ í Reykjavík um hádegisbil í gær. Um var að ræða um 1 kg af hassi. Umráðamaður bílsins, karl um þrítugt, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu en í henni fundust nokkrir tugir kannabisplantna. Á sama stað var einnig lagt hald á fáeina muni sem grunur leikur á að séu þýfi.

Samorka: Reglugerð Svandísar veldur vonbrigðum

Gústaf Adolf Skúlason - aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi segir að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um að setja ströng viðmið um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti valdi mönnum þar á bæ talsverðum vonbrigðum. Gústaf segir að ákvörðunin sé greinilega tekin á pólitískum forsendum en Samorkumenn töldu sig hafa unnið að málinu í góðu samstarfi við ráðuneytið og bjuggust menn við því að viðmiðin yrðu í samræmi við reglur alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar sem leyfa 150 míkrógrömm á rúmmetra. Nýja reglugerðin er hinsvegar mun strangari og leyfir aðeins 50 míkrógrömm á rúmmetra.

J-listinn ætlar ekki að kæra úrskurð kjörnefndar

J-listi ætlar ekki að kæra úrskurð kjörnefndar sýslumannsins á Akureyri um niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð í endan maí síðastliðinn. Í tilkynningu sem framboðið sendi frá sér segir að það sé mat þeirra sem skipa listann að það séu hagsmunir sveitarfélagsins að óvissu ljúki sem fyrst og að bæjarstjórn með starfhæfan meirihluta taki til starfa svo fljótt sem verða má og vinni að þeim brýnu verkefnum sem fyrir liggja.

Þyrlan kölluð út eftir bílslys á Snæfjallaströnd

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp vegna bílslyss sem var tilkynnt lögreglu klukkan hálf tólf. Samkvæmt lögreglunni á Ísafirði er ekki vitað um tildrög slyssins. Bíllinn valt og slösuðust útlent par sem var í bílnum.

Körfuboltamaður ætlar að áfrýja nauðgunardómi

Sigurður Á Þorvaldsson, landsliðsmaður í körfuknattleik og leikmaður Snæfells, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga 17 ára stúlku í samkvæmi í nóvember í fyrra. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætlar Sigurður að áfrýja dómnum.

Barn hætt komið í verslun - lífshættulegar rúllugardínur

Nýlega var ungt barn hætt komið þegar það vafði snúru úr rúllugardínu í kringum hálsinn á sér að sögn Herdísar L. Storgaard, Forstöðumans Forvarnarhússins. Hún segir að barnið hafi verið statt í verslun þegar slysið varð en foreldri þess leit af því eitt augnablik á meðan á afgreiðslu stóð.

Skarphéðinn Berg: Fóru offari með stuðningi fjármálaráðherra

Skarphéðinn Berg Steinarsson segir skattinn hafa farið offari gegn sér og að yfirvöld hefðu aldrei ráðist í kyrrsetningu eigna án stuðnings fjármálaráðherra, en Hæstiréttur felldi úr gildi kyrrsetningu eigna hans. Skattrannsóknarstjóri svarar ekki skilaboðum fréttastofu.

Pétur vissi ekki að hann væri í viðtali

Pétur Blöndal þingmaður segir í samtali við fréttastofuna að hann hafi ekki vitað að hann væri í viðtali við Fréttablaðið, en hann segir í blaðinu í morgun að þingmannsstarfið sé mannskemmandi og illa borgað. Svo sé honum stillt upp „eins og glæpamanni" vegna styrkjamála, en hann hefur ekki gefið upp nöfn hjóna sem prentuðu fyrir hann kosningabækling.

Umferðarstofa: Ekki stytta ykkur leið í gegnum hverfin

Upplýsingafulltrúi Umferðarstofunnar, Einar Magnús Magnússon, hvetur ökumenn til þess að sleppa því að stytta sér leið í gegnum íbúðarhverfin, til dæmis Réttarholtsveg eða Sogaveg, í ljósi þess að vinstri beygjur eru bannaðar á annatímum á Bústaðaveginum.

Sjá næstu 50 fréttir